MANNEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 05.sept
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Á morgun verður stefnumót á Kjarvalsstöðum þar sem menningar- og fræðslustofnanir á höfuðborgarsvæðinu sem bjóða upp á endurgjaldslausa fræðslu af ýmsu tagi fyrir börn í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi í borginni koma saman. Lögð verður áhersla á að jafna aðgengi barna að listastarfsemi, menningu, vísindastarfi og útikennslu svo eitthvað sé nefnt. Hingað koma þær Harpa Rut Hilmarsdóttir, frá Reykjavíkurborg og Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla í Úlfarsárdal.
Hjálp, Barnið mitt er grænmetisæta! Þetta er titill á matreiðslubók sem kom út í fyrravor, matreiðslubók fyrir ráðvillta foreldra, vanafasta heimiliskokka, fátæka námsmenn og alla aðra sem ættu að borða meira grænmeti. Höfundurinn er Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og í kvöld ætlar Jón að mæta í Lífsstílskaffi í Gerðubergi og spjalla um bókina, en áður mætir hann hingað til okkar.
Guðlaug María Bjarnadóttir, leikkona og kennari hefur alla ævi strítt við meðfæddan ónæmisgalla. Hún er formaður Lindar félags um meðfædda ónæmisgalla sem núna stendur fyrir vitundarvakningu um sjúkdóminn. Margir stríða við hann án þess að vita af því og einnig eru dæmi um að læknar viti ekki hvernig bregðast á við honum. Rætt verður við hana á Heilsuvaktinni í dag.