Heilaheill hefur gefið út nýtt app, eða snjallforrit, sem er ókeypis og virkar í flestum snjallstínum. Þar geta notendur skráð sig inn og fengið upplýsingar og fræðslu um það að fá heilaslag. Það lýsir fyrstu einkennum slags og getur hver og einn fræðst um einkennin. Þegar notandi er fullviss um að hann, eða honum nákominn, sé að fá slag sendist kennitalan sjálfvirkt í SMS (textaskilaboðum) í Neyðarlínuna. Hafi notandinn ekki burði til að tala eða gera grein fyrir hvar hann er, þá getur neyðarlínan sett í gang leitun að snjallsímanum með nokkurri nákvæmni og leiðbeint bráðaliðum. Mjög áhugavert og mikilvægt app, sem Þórir Steingrímsson frá Heilaheill sagði frá í þættinum.
Við slógum á þráðinn austur en í gær voru opnaðar þrjár sýningar í Safnahúsinu og Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Sýning með verkum 40 listamanna sem allir eiga það sameiginlegt að tengjast Fljótsdalshéraði á einn eða annan hátt. Önnur sýningin ber nafnið Austfirskt fullveldi - sjálfbært fullveldi? Sýningin er sett upp í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands og er hluti af stærra verkefni sem níu mennta-, menningar-, og rannsóknarstofnanir á Austurlandi hafa tekið höndum saman um. Þriðja sýningin Gull og gersemar er sýning með leikföngum barna á Héraði í gegnum tíðina. Við töluðum við Elsu Guðný Björgvinsdóttur, safnstjóra Minjasafns Austurlands um sýningarnar.
Lesandi vikunnar í þetta skiptið var engin önnur en stórleikonan Edda Björgvinsdóttr, sem var útnefnd í gær Borgarlistamaður Reykjavíkur og ekki nóg með það heldur fékk hún líka í gær Riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar. Hún var hjá okkur í dag og sagði okkur frá þessum viðburðarríka gærdegi, móttökunni sem hún fær á Bessastöðum í dag og svo hvaða bækur hún er að lesa og hvaða bækur og höfundar hafi haft áhrif á hana í gegnum tíðina
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson