Strandabyggð er sameinað sveitarfélag fyrrum Bitruhrepps, Kirkjubóls og Fellshrepps, Hólmavíkurhrepps og Nauteyrarhrepps og nær yfir svæðið frá Bitrufirði í suðri að Selá við Steingrímsfjörð og í vestri frá
Kaldalóni og Ísafjarðarbotni. Í Strandabyggð búa um 450 manns og nú er kosningum til sveitastjórnar þessa víðfeðma sveitarfélags nýlokið. Enginn listi kom fram fyrir kosningarnar þannig að kosið var með
óhlutbundinni kosningu og hlaut oddviti fráfarandi sveitastjónar Jón Gísli Jónsson flest atkvæði. Kristín Einarsdóttir okkar kona á Ströndum hitti Jón Gísla og byrjaði á að forvitnast um kosningarnar.
Skín við sólu Skagafjörður, segir í laginu góða og við fórum í heimsókn að Löngumýri í Skagafirði. Gunnar Rögnvaldsson, formaður fræðsluseturs Kirkjunnar þar segir okkur fá hversu margháttuð og mikilvæg starfsemi fer þar fram. Við fengum einni gítarspil og fagran söng undir berum himni í undurfallegu veðri frá syni Gunnars, Sigvalda.
Svo fengum við að heyra enn einn gullmolann úr safni útvarpsins. Í dag var það bútur úr þættinum „Hellar og huldufólkstrú undir Eyjafjöllum" frá árinu 1975 í umsjón Gísla Helgasonar og Hjalta Jóns Sveinssonar. En á ýmsum stöðum á landinu hefur alþýðutrú verið mikil í gegnum tíðina, þar má ekki hrófla við nokkrum hlut án þess að fólk eigi það á hættu að verða fyrir skakkaföllum. En þeir Gísli og Hjalti gerðu sér ferð austur undir Eyjafjöll og hittu þar fyrir Sæmund Jónsson bónda frá Sólheimahjáleigu og Þórð Tómasson safnvörð á skógum, sem sögðu þeim frá hellum og huldufólki í sveitinni.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson