MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAGINN 3.MAÍ - KYNNING Á EFNI
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Lísa Páls ætlar að skoða leigumarkaðinn, mikið hefur verið talað um ástandið þar undanfarið. Leiguverð er mjög hátt hér á landi, þá helst á höfuðborgarsvæðinu og leigjendur segja sínar farir ekki sléttar af reynslu sinni á markaðnum. Það hefur jafnvel verið talaðu um að þar sé frumskógarlögmálið við lýði. Lísa forvitnast um málið hjá sömtökum leigjenda á Íslandi síðar í þættinum.
Við segjum frá tónleikum Söngfjelagsisns sem mun flytja Misa Criolla, hið þekkta Argentíska verk, á Korpúlfssstöðum næsta laugardag.
Söngfjelagið flytur inn sérstaklega suður-amerísku hljómsveitina Inti Fusion, til að ná fram stemmningu. Meðal félaga Söngfjelagsins er Ana Stanicevic frá Serbíu en hún kom hingað árið 2011 til að læra íslensku og kennir nú útlendingum íslensku í Háskóla Íslands. VIð ræðum við Önu og Ingibjörgu Grétu sem segja okkur nánar frá þessum viðburði.
Orðræða listasýninga er yfirskrift hádegisfyrirlestrar sem Goddur, Guðmundur Oddur Magnússon, heldur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á morgun. Þar mun hann fjalla um orðræðu mynda og myndmáls, en margir verða hvumsa þegar þeir rýna í texta í sýningaskrám og kynningum á sýningum og skammast sín jafnvel fyrir að skilja ekki neitt. Goddur mun gera tilraun til þess að útskýra á mannamáli hvað átt er við með þessum ritsmíðum sem voru upphaflega hugsaðar til að auka skilning á myndmáli en geta endað á því að flækja hann í raun. Við heyrum í Goddi í þættinum.