Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þórunn Sigurðardóttir. Hún hefur unnið sem leikari, leikstjóri, handritshöfundur, stjórnandi Listahátíðar og margt fleira. Við kynntumst henni betur, hvaðan hún kemur, hvar hún gekk menntaveginn, en hún lauk til dæmis háskólaprófi í kennslufræði sjötug að aldri.
Sögur - verðlaunahátíð barnanna verður í beinni útsendingu á RÚV frá Eldborgarsal Hörpu næsta sunnudag. Hátíðin hófst í haust þegar KrakkaRÚV óskaði eftir innsendum sögum frá krökkum á aldrinum 6-12 ára. Sigyn Blöndal kom í þáttinn og sagði okkur meira frá þessari verðlaunahátíð.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, var með sitt matarspjall í þættinum í dag. Í þetta sinn talaði hún um Claude Monet, málverkin hans, en ekki síst um mataruppskriftir tengdar honum sem hafa verið gefnar út í fjölda bóka, enda var hann annálaður sælkeri og fagurkeri.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson