Helga Birgisdóttir er hjúkrunarfræðingur, myndlistarkona, ljósmóðir, NLP meðferðar- og markþjálfi og frumkvöðull SMILER. Hún heldur bæði fyrirlestra og námskeið sem stuðla að andlegri og líkamlegri heilsu. M.a. kennir hún aðferð Byron Katie (höfund bókarinnar Elskaðu það sem er) The Work sem er áhrifarík leið til að losa sig við streitu og öðlast innri frið og hamingju. Helga sagði okkur sögu sína, hvernig hún reis upp, virkjaði sköpunarkraft sinn og fann leiðina að hamingjunni.
Umhverfið og hvernig mannvirki eru hönnuð hefur áhrif á líðan og sálarlíf fólks. Samt er ekki tekið mikið tillit til þess við skipulag hverfa og hönnun mannvirkja. Fjallað var um umhverfissálfræði á heilsuvaktinni í dag Bergljót Baldursdóttir ræddi við Páll Jakob Líndal dr. í umhverfissálfræði.
Stefán, Ingólfur, Kristín og Iðunn Öddu- og Steinsbörn, bjóða til kvöldvöku á morgun í Hannesarholti, sem þau nefna Tungu-mál. Systkinin úr Tungu hafa sýslað margt um dagana, á ferilskrá þeirra gefur að líta ótrúlega fjölbreytta blöndu af hinu og þessu, til að nefna örfá dæmi, ritstjórn, þýðingar, ýmsar lækningar og síldarsöltun, kennsla á öllum aldursstigum, talsíma- og sendilsstörf, sýnataka og efnagreining, verksmiðjuvinna, grafið fyrir sjónvarpsstreng, gamalmenna gætt í Danaveldi, og fleira. Þær Kristín og Iðunn komu í þáttinn í dag.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson