Flestir kannast við, eða hafa að minnsta kosti heyrt af gríska heimspekingnum Sókrates sem var uppi frá 469 - 399 fyrir krist. En það er kannski ekki eins víst að eins margir þekki hans kenningar og speki. Og hvað er Sókrastísk aðferð og hvernig er hún notuð í verkefnastjórnun og stjórnun almennt í dag? Við fengum Hauk Inga Jónasson formann stjórnar MPM námsins við Háskólann í Reykjavík og einn af lykilkennurum þess til að fræða okkur um Sókrates og þessar aðferðir sem eru kenndar við hann.
Við fengum póstkort frá París í dag, í þessu póstkorti sagði Magnús R. Einarsson frá mikilli deilu sem stendur núna um áfengi og skaðsemi þess í Frakklandi. Allir hafa skoðun á málinu, allt frá forsetanum til rónans á götunni. Í deilunni takast á víniðnaðurinn og lýðheilsan og það eru miklir hagsmunir í húfi því víniðnaðurinn er undirstöðuatvinnugrein og skapar griðarlegar útflutninstekjur, en skaðinn af neyslunni er of mikill segja heilbrigðisyfirvöld.
Skinnhandritið AM510 geymir átta sögur, Víglundarsögu, Bósasögu, Jarlmannssögu og Hermanns, Þorsteins þátt bæjarmagns, Jómsvíkingasögu, Finnboga sögu ramma, Drauma-Jónssögu og Friðþjófssögu frækna. Sögunum í AM 5104 mætti öllum lýsa sem skemmtisögum fremur en sögum með sagnfræðilegt heimildargildi. Við heyrðum af erindi þar sem sjónum er beint að því hvernig handrit sem varðveitir einmitt þessar sögur getur gefið innsýn í heim sagnaskemmtunar á sextándu öld. Þórdís Edda Jóhannesdóttir er nýdoktor á handritasviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og stundakennari við Háskóla Íslands, hún kom í þáttinn í dag.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson