Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn og við fjöllum um netöryggi barna í þættinum. Frá árinu 2001 hafa Barnaheill - Save the Children á Íslandi starfrækt ábendingalínu fyrir ólöglegt og óviðeigandi efni á neti, í samstarfi við Ríkislögreglustjóra. Ábendingalína Barnaheilla er þátttakandi í samstarfi ábendingalína á heimsvísu í gegnum alþjóðasamtökin Inhope. Þær Þóra Jónsdóttir, frá Barnaheill og Guðrún Sesselja Baldursdóttir komu í þáttinn og sögðu okkur frekar frá.
Gönguverkefnið Svalur er fyrir alla foreldra og unglingana þeirra þar sem markmiðið er að skapa gæða samverustundir í góðum gönguferðum úti í náttúrunni. Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir fjallamennsku og útivist og inniber fræðslu um búnað og nesti, hvernig á að pakka, ganga með bakpoka, vaða ár og hita súpu uppi á fjalli. Við spjölluðum við mæðginin Hönnu Grétu Pálsdóttur og Aron Frey Stefánsson um þetta verkefni.
Í dag heyrðum við gamalt viðtal úr safni útvarpsins. Skemmtilegt og áhugavert viðtal við merkilegan mann, Jóhannes Jósefsson, eða Jóhannes á Borg, sem Stefán Jónsson tók í tilefni áttræðisafmælis Jóhannesar árið 1963 í sumarbústað hans, Lundi við Hítará á Mýrum. Í því talar Jóhannes um veiðimennsku og vísur, sem hann meðal annars orti sjálfur. Hann ræðir einnig um áflog í æsku, íslensku glímuna svo rifjar hann upp nokkrar frægðarsögur frá því þegar hann ferðaðist um heiminn og glímdi við hvern þann sem vildi spreyta sig að standa gegn honum, meðal annars japanskan glímukappa sem aldrei hafði verið lagður og hnífamann í Portúgal. Að lokum rifjar hann upp þegar Hótel Borg var opnuð honum til mikillar ánægju.
Umsjón í dag Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson