Íslenska teiknimyndin Lói - þú flýgur aldrei einn verður frumsýnd á föstudaginn. Þetta er gríðarlega stórt verkefni sem tekið hefur yfir fimm ár í vinnslu á Íslandi og í Belgíu. Myndin er framleidd af fyrirtækinu GunHil sem Gunnar Karlsson og Hilmar Sigurðsson standa á bak við, en þeir stóðu meðal annars að baki Hetjur Valhallar - Þór, fyrstu íslensku teiknimyndarinnar í fullri lengd sem er mest sótta íslenska kvikmyndin utan landsteinanna. Þessi nýja mynd, Lói - þú flýgur aldrei einn hefur verið seld til sýninga í kvikmyndahúsum í yfir 60 löndum. Við fengum þá Árna Óla Ásgeirsson, leikstjóra og Gunnar Karlsson til að segja okkur meira frá henni.
Hundrað ár eru síðan spænska veikin, mannskæðasti faraldur allra tíma gekk hér á landi. Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalæknir segir að von sé á öðrum svona faraldri það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær hann komi. Hvernig erum við í stakk búin til að takast á við slíka pest? Bergljót Baldursdóttir ræddir við hann um það og annað tengt influensu á heilsuvaktinni í dag.
Eru börnin okkar að verða þrælar tækninnar eða skilja íhaldssamir foreldrar ekki nýjan heim? Hvað geta foreldrar gert til að stuðla að því að börn nýti snjalltæki, samfélagsmiðla og tölvuleiki í uppbyggjandi tilgangi, í leik, námi og starfi? Hvað telst vera góð notkun og hvað ekki? Þessum spurningum og fleirum verður leitast við að svara á málstofu á vegum Háskólans í Reykjavík. Málstofan er haldin í samstarfi við Rannsóknir og greiningu, Heimili og skóla, SAFT og velferðarsvið Reykjavíkur. Jóhanna María Svövudóttir, nemandi í tölvunarfræði er ein þeirra sem tala á málstofunni, hún kom í þáttinn í dag.
Umsjón í dag Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson