Gunnar Þór Bjarnason, sagnfræðingur verður með erindi á vegum Vitafélagsins á fræðslufundi, í húsnæði Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur að Grandagarði 18, í kvöld undir heitinu Merkasta ár Íslandssögunnar? Í erindinu mun Gunnar Þór fjalla um þetta merka ár 1918, hag íslensku þjóðarinnar, áföll sem dundu á þjóðinni, frostavetur, Kötlugos, spænsku veikina, áhrif heimsstyrjaldarinnar fyrri, fullveldið og millilandasiglingar og strandsiglingar. Gunnar Þór var gestur í Mannlega þættinum í dag.
Á fyrstu tónleikum ársins í tónleikaröðinni Jazz í hádeginu flytur Stína Ágústsdóttir jasssöngkona vókalísur við valin sóló sem flytjendur á borð við Duke Ellington, Miles Davis, Charlie Parker og fleiri hljóðrituðu á sínum tíma. Vókalísur eru sóló sem settur hefur verið nýr texti við. Í frétttilkynningu segir að ekki er vitað til að þetta hafi verið gert áður á Íslandi á þennan hátt og því er hér um einstakan viðburð að ræða. Leifur Gunnarsson bassaleikari sér um að koma jassinum í úthverfin og þau Leifur og Stína koma í þáttinn.
Við fengum póstkort frá París, frá Magnúsi R. Einarssyni, í þetta sinn sagði Magnús frá lestarferð til Versala og heimsókn í garða sólkonungsins. Hann segir líka frá því hvers vegna Parísardömur eru svo grannar og „fitt“ og í endann frá deilunni um loftkossana sem allir kyssa á hverjum morgni á öllum vinnustöðum í Frakklandi.
Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson