Harpa Njálsdóttir hefur stundað rannsóknir á velferð og fátækt á Íslandi um árabil. Í desember skrifaði hún grein í Morgunblaðið þar sem hún beindi sjónum að lífskjörum eldri borgara og þá sérstaklega afleiðingar breytinga á almannatryggingalöggjöfinni sem tók gildi í ársbyrjun 2017. Þá voru frítekjumörk afnumin, það er að segja frítekjumörk atvinnutekna, lífeyrissjóðstekna og fjármagnstekna. Hún vill meina að með þessari breytingu sé gróflega vegið að réttindum fjölda fólks þar sem stór hluti tekna eldri borgara landsins er gerður upptækur með sköttum og skerðingu, sem hún kallar hreina eignaupptöku. Harpa fór yfir stöðuna í þættinum í dag.
Við fengum fyrsta póstkort ársins frá Magnúsi R. Einarssyni í París í dag. Þar fjallaði hann um áramótin í París sem hann segir hafa verið mjúk og róleg og svo talaði hann um tónlistina sem hægt er að njóta til dæmis úr hverju horni í neðanjarðarlestakerfinu, sem hann segir að sé í mun meiri gæðum en til að mynda í Lundúnum, enda gilda strangar reglur um það hverjir mega spila fyrir ferðalanga í metrókerfinu í París. Að lokum sagði hann frá aðstæðum heimilislausra og flóttafólks í París um þessar mundir.
Endurmenntun Háskóla Íslands hefur lengi boðið uppá ótrúlega fjölbreytt og fróðleg námskeið og á morgun kynnir Sigurður Flosason, tónlistarmaður, stórsveitir og tónlist Swingtímabilsins; 1930 - 1945.
Námskeiðið tengist tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur í Eldborg í Hörpu 7. janúar nk. en þá flytur Stórsveitin, ásamt glæsilegum gestum, samnefnda efnisskrá; Gullöld Sveiflunnar. Kíkt verður í nótnasöfn hljómsveita á borð við Benny Goodman, Glenn Miller, Duke Ellington, Count Basie o.s.frv. Sigurður kom í þáttinn.
Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson