Léttum á umferðinni var heitið á málþingi um samgöngur í Reykjavík sem haldið var fyrir helgi, þar var fyrirbærið Zipcar kynnt sem vakti áhuga okkar. Hvað er Zipcar og hvernig virkar það? Árni Sigurjónsson kom í þáttinn og sagði frá.
Við höfum verið að rifja upp áhugavert efni úr safni útvarpsins í þættinum undanfarið, sem hefur vakið talsverða athygli. Við héldum því áfram í dag og heyrum brot úr þættinum Staldrað við á Eyrarbakka, þætti tvö af þremur, sem Jónas Jónasson hafði umsjón með árið 1975. Í þættinum ræddi Jónas við ýmsa íbúa staðarins, embættismenn sem og venjulega íbúa, og hér heyrum við spjall hans við Þuríði Þórmundardóttur húsfrú, um líf ungrar konu, tómstundir, efnahag, uppeldi, barnaheimili o.fl.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Halldór Bragason, blúsgítarleikari. Blúshátíð í Reykjavík var sett á laugardaginn með blússkrúðgöngu niður Skólavörðustíginn og þrennir stórtónleikar verða á Hilton Nordica þessa vikuna. Halldór sagði frá hvaða bækur eru á náttborðinu hjá honum, hvað hann hefur verið að lesa og hvaða bækur eða höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.
Umsjón í dag, Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson