Föstudagsgest Mannlega þáttarins í þetta sinn þarf varla að kynna... en við gerum það nú samt. Hann er einn ástsælasti leikari landsins sem hefur leikið í fjölda leiksýninga, sjónvarpsþátta og kvikmynda í næstum fjóra áratugi. Í Spaugstofunni fékk hann, ásamt félögum sínum, landann til að hlægja í mörg hundruð þáttum sem náðu slíkum vinsældum að það er ekki víst að það verði nokkurn tíma leikið eftir. En nú upp á síðkastið hefur hann fetað nýjar slóðir, þó hann sé ennþá að leika á fullu, er hann leiðir ferðamenn um landið, fræðir þá og án efa skemmtir þeim. Örn Árnason var hjá okkur og ræddi við okkur um lífið og tilveruna, leiklistina og ferðamennskuna og kom að auki með fjársjóð sem hann fann fyrir skemmstu, hljóðsnældu með viðtali við föðurafa sinn, Tryggva Jóhannsson, sem Jónas Jónasson tók árið 1965, þegar Tryggvi var 86 ára. Við hlustuðum á stuttan bút úr viðtalinu þar sem Tryggvi talaði meðal annars um Árna son sinn, föður Arnar.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir var svo hjá okkur, eins og aðra föstudaga, með matarspjall sitt. Í dag talaði hún um sumarmat, henni finnst tími til kominn að leggja þungan vetrarmat, eins og hún kallar hann, til hliðar og létta til í ísskápnum.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson