Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Ný heimildarmynd um Sigurbjörn Bárðarson og Voces Masculorum
    Sigurbjörn Bárðarson, hestamaður, tamningameistari, landsliðsþjálfari og afreksmaður er þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025. Á laugardaginn verður frumsýnd ný íslensk heimildarmynd, Sigurvilji, um Sigurbjörn og hann var hjá okkur í dag og við ræddum við hann um þennan ótrúlega feril, heimildarmyndina, fjölskylduna og auðvitað samband hans við hestinn.
    Karlakórinn Voces Masculorum er að eigin sögn langbesti og hógværasti karlakór landsins. Kórinn var stofnaður árið 2000 og hefur aðallega helgað sig söng við jarðafarir. Nú er kórinn 25 ára og heldur uppá það með tónleikum og á dagskránni eru, eins og þeir orða það, aðallega lögin við vinnunna eða útfararsálmar en einnig hefðbundin karlakóraviðfangsefni bæði innlend og erlend. Gissur Páll Gissurarson og Hjálmar P. Pétursson komu til okkar í dag í spjall og við fengum í lokin að heyra í kórnum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Reiðmenn vindanna / Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna (Stan Jones, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Allir eru að fara í kántrí / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason)
    Heilig heilig / Voces Masculorum (Franz Schubert)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Börn með hjartagalla, hákarlaveiðar á 19. öld og hraðstefnumót fyrir eldri borgara
    Það fæðast að meðaltali 70 börn á ári með hjartagalla á Íslandi, mörg þeirra þurfa flóknar aðgerðir og ævilanga eftirfylgni. Þrátt fyrir að læknisfræðilegri aðstoð hafi fleygt fram, þá gleymist oft andlegi og félagslegi þátturinn, til dæmis hvernig börnin og aðstandendur þeirra upplifa lífið með hjartagalla. Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, formaður Neistans, styrktarfélags barna með hjartagalla og Óskar Ericsson, framkvæmdastjóri félagsins komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um málefni barna með hjartagalla og vitundarvikuna sem er framundan.
    Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir er með doktorspróf í sagnfræði og hún er sérfræðingur í sögu hákarlamanna fyrr á öldum og mun flytja erindi á málþingi næsta laugardag í boði Félags um átjándu aldar fræði. Dalrún mun fjalla um samband hákarlamanna við hákarlinn á 19.öld.En hún leggur stund á rannsóknir á náttúrusögu Íslands. Við fengum hana til að segja okkur frá hákörlum og samspilinu milli hákarla og hákarlamanna 19.öld, á blómaskeiði hákarlaveiði á Íslandi.
    Hraðstefnumót fyrir eldri borgara verður í Bíó Paradís í tilefni af frumsýningu myndarinnar Eftirlætis kakan mín (My Favourite Cake) í aðdraganda Valentínusardagsins en frumsýningin verður á miðvikudaginn 12. febrúar kl 14:00. Sett verða upp borð á kaffihúsi Bíó Paradís þar sem kaffi og kleinur verða í boði. Hver þátttakandi fær 5 mínútur á hverju borði og leiðbeinandi spurningarblað við komu þar sem fólk getur kynnst hvort öðru. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri Bíó Paradís kom og sagði okkur frá þessum viðburði í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Skítaveður / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
    Borgartún / Snorri Helgason (Snorri Helgason)
    Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Lítið og væmið / Valdimar (Valdimar Guðmundsson)
    Til þín ástin mín / Stefán Helgi Stefánsson (Óli H. Þórðarson, texti Viktor A. Guðlaugsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Börn og strætó, ástarljóð um eiginkonuna og veðurspjallið með Einari
    Um helgina fór fram fundur á vegum Umboðsmanns barna í samvinnu við ungmennaráðin á höuðborgarsvæðinu og UNICEF þar sem málefni Strætó voru rædd. Markmið fundarins var að koma á formlegum umræðum milli barna og ungmenna, Strætó og sveitastjórnum um umbætur á strætókerfinu með hag barna að leiðarljósi. Þau Dagur Jónsson og Júlíanna Rós Skúladóttir voru tveir af fulltrúum ungmenna á fundinum, þau voru hjá okkar í dag og sögðu okkur frá því helsta sem ungmennin komu á framfæri á fundinum, til dæmis öryggismál og samskipti við vagnstjóra og hvernig var tekið í tillögurnar.
    64 ára gamall húsasmiður og innanhúsarkitekt úr Hafnarfirði var að gefa út sína fyrstu bók, ljóðabók sem heitir Þú ert engill. Hans Unnþór Ólason heitir höfundurinn og hefur fengist við að raða saman orðum í rúmlega hálfa öld og yrkisefnið í þessari ljóðabók er konan hans Helena Mjöll en hann segir að hún sé engill í mannsmynd. Við töluðum við Hans í dag.
    Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í Veðurspjallið í dag. Hann talaði um ótíðina að undanförnu og djúpar lægðir á Atlantshafinu. Svo sagði hann okkur frá veðurspám sem verða sífellt nákvæmari og hvernig verkefni veðurfræðinga hefur því breyst frá því að spá í veðrið yfir í að túlka og vara við á réttum tíma og stöðum og þar mun gervigreindin, eða hermigreindin, gegna miklu hlutverki í túlkun veðurspárinnar. Svo ræddi hann um vetrarvertíð til forna sem hófst eftir Kyndilmessu (2.feb) og erfiða sjósókn um hávetur. Einar horfði svo til verstöðvarinnar í Dritvík og við enduðum á lestri Jóns Helgasonar á Áföngum, 3. erindi um Dritvík.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Önnur sjónarmið / Edda Heiðrún Bachman (Hilmar Oddsson)
    Dagný / Eivör Pálsdóttir og Egill Ólafsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson)
    Ást / Orri Harðarson (Orri Harðarson)
    Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Kristján Kristjánsson og Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Nýtt merki fyrir kynhlutlaust rými, fjárhagslegt uppeldi og Birta lesandinn
    Samtökin '78, Félag íslenskra teiknara og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa nú fyrir samkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl. Fimm ár eru liðin frá því að lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt og Ísland er fremst í flokki hvað varðar lög sem þessi. Hins vegar er vandað og skýrt tákn fyrir kynhlutlaus rými enn ekki til. Samtökin '78 fá margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum og stofnunum varðandi táknnotkun, bæði hérlendis og erlendis frá. Anton Jónas Illugason, formaður Félags íslenskra teiknara og Magnús Bjarni Gröndal rekstrarstjóri samtakanna 78 komu í þáttinn í dag.
    Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, var hjá okkur í dag eins og undanfarna mánudaga með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn ætlar hann að velta fyrir sér fjárhagslegu uppeldi og koma með einhver góð ráð í þeim málum.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Birta Björnsdóttir fréttakona, hún setti sér markmið fyrir nokkrum árum að lesa visst margar bækur á ári, en þurfti svo aðeins að endurskoða þau markmið. Við heyrðum betur af því og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Líkami okkar, þeirra vígvöllur e. Christinu Lamb
    Sjö fermetrar með lás e. Jussi Adler Olsen
    Bókasafn föður míns e. Ragnar Helga Ólafsson
    Isabel Allende, og Hús andanna
    Einar Kárason, Óvinafögnuður, Killiansfólkið, Djöflaeyjan og Gulleyjan.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir)
    Svarthvíta hetjan mín / Dúkkulísur (Gréta Jóna Sigurjónsdóttir)
    Hún ógnar mér / Flott (Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Benedikt Valsson föstudagsgestur og gult matarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var annar hluti tvíeykisins í Hraðfréttum, Bennni, eða Benedikt Valsson. Við þekkjum hann auðvitað fyrst og fremst úr Hraðfréttum, en hann hefur gert ýmislegt annað, vissulega flest með Fannari félaga sínum, leikstýrt og skrifað Skaupið, verið kynnir í Söngvakeppninni og nú hafa þeir hleypt af stokkunum nýju hlaðvarpi sem þeir kalla Hraðvarpið. En við fórum auðvitað aftur í tímann með honum á æskuslóðirnar og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti brydduðum við upp á nýjung, í tilefni allra þessara gulu viðvarana að hafa gult þema og skoða hvaða matur er gulur og hversu girnilegur hann er. Auk þess heyrðum við líka tillögur hlustenda að eftirréttum með þorramatnum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Glugginn / Flowers (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Birta / Friðrik Dór og Snorri Helgason (Friðrik Dór Jónsson)
    I’ve Got a Message to You / Keith Urban og Barry Gibb (Maurice Gibb, Barry Gibb og Robin Gibb)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Lífið er núna og slúður á vinnustöðum og í litlum samfélögum
    Lífið er núna dagurinn er haldin í dag, en þessi vitundarvakning Krafts er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins og stendur til 12.febrúar. Kraftur hvetur vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að bjóða upp á appelsínugular veitingar og jafnvel að klæðast í appelsínugul föt og einhverjar byggingar eru lýstar upp með appelsínugulri lýsingu sem er litur Krafts. Við ræddum við þær Ragnhildi Þóru Hafsteinsdóttur og Katrínu Petersen í dag. Ragnhildur sagði okkur frá þeirri lífsreynslu að greinast með bráðahvítblæði þegar hún var í mastersnámi og á 30. viku í meðgöngu af þriðja barni. Ragnhildur var greind á fimmtudegi og var líf hennar og ófædda drengsins hennar í húfi. Lyfjameðferð hófst strax tveimur dögum eftir greiningu og að auki kom í ljós hjartabilun sem gerði það að verkum að það yrði ekki öruggt fyrir hana að fara inn í fæðingu. Kraftur selur húfur til styrktar í tilefni vitundarvakningarinnar og ágóðinn af sölunni fer allur í styrktarsjóð Krafts.
    Hvernig er talað á þínum vinnustað? Er mikið slúðrað þar? Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, doktor í félagsfræði, sem kallar sig líka Doktor slúður, fer á vinnustaði, hittir hópa, félagasamtök og jafnvel bæjarfélög þar sem hún talar um slúður sem valdatæki og stjórnun, en í doktorsrannsókn sinni rannsakaði hún slúður í minni samfélögum um allt land. Gréta Bergrún útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Heima er hjá þér / Magni Ásgeirsson (Vignir Snær og Magni Ásgeirsson)
    Hér á ég heima / Fjallabræður og Sverrir Bergmann (Tómas Jónsson og Magnús Þór Sigmundsson)
    Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörns Grauengaards (Oddgeir Kristjáns, texti Ási í Bæ)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • G-vítamín, Quigong og Taiji og póstkort frá Magnúsi
    Þorrinn er hafinn og eins og undanfarin ár standa landssamtökin Geðhjálp fyrir geðræktarátakinu G-vítamín á þorranum með það að markmiði að setja geðrækt á oddinn. Af því tilefni gefa þau út geðræktardagatal, svona borðdagatal upp á gamla mátann, þar sem er einn skammtur af G-vítamíni á hverjum degi á þorranum, sem sagt ráðlagður dagskammtur. Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfseminni og dagatölunum.
    Við héldum svo áfram að tala um heilsueflingu og úrval leiða til að efla líkamlega og andlega heilsu. Í dag heyrðum við í Ólafi Guðmundssyni leikara og leiklistarkennara en hann kennir Qigong og Taiji. Hann fór til Tíbet og Kína síðasta sumar og við heyrðum af því og svo sagði hann okkur frá Qigong ot Taiji, en hann verður með námskeið í febrúar þar sem hann blandar þessu tvennu saman.
    Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Það hefur verið ótíð að undanförnu í Vestmannaeyjum og víst er að brælurnar verða fleiri og fleiri. Veðurfarið hefur truflandi áhrif á samgöngur eins og Magnús segir frá í póstkorti dagsins. En eyjamenn halda sínu striki hörkuduglegir hvort sem er í leik eða starfi. Magnús segir líka af ferðalagi sínu til Póllands í fyrrasumar og heimsókn til Auschwitz, en þar var þess minnst á mánudaginn að áttatíu ár eru síðan hermenn Rauða hersins frelsuðu þá sem eftir lifðu í þessum alræmdu útrýmingarbúðum nazista.
    LEIÐRÉTTING: Fyrir mistök sagði Magnús í póstkortinu að hersveitin sem kom fyrst að frelsun útrýmingarbúðanna í Auschwitz hefði verið úkraínsk en ekki rússnesk, sem hún var vissulega. Hann biðst einlæglega afsökunar á að hafa ekki kannað betur bakgrunn hersveitarinnar.
    Tónlist í þættinum:
    Hæ Mambó / Haukur Morthens (Merril, texti Loftur Guðmundsson)
    Að vera í sambandi / Stuðmenn (Tómas Magnús Tómasson, Valgeir Guðjónsson og Jakob Frímann Magnússon)
    Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson)
    On the Road Again / Canned Heat (Alan C Wilson & Floyd V Jones)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Gott aðgengi í ferðaþjónustu, Kvennaárið 2025 og efnaskipti á Heilsuvaktinni
    Mikill fjöldi, hvaðanæva að úr heiminum, hefur áhuga á því að ferðast, hefur bæði tíma og fjármuni til að gera það en heldur sig samt heima vegna þess að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er víða ábótavant. Samkvæmt íslenskum lögum og reglugerðum á að gæta þess sérstaklega að aðgangur fólks með fötlun að manngerðu umhverfi sé til jafns við aðra. Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssambands Hreyfihamlaðra, kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna í aðgengismálum í ferðaþjónustu.
    Það eru liðin 50 ár frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Metþátttaka var í Kvennaverkfallinu árið 2023 og valdefling, baráttugleði, og skýrt ákall um breytingar einkenndu þessa miklu samstöðu rétt eins og árið 1975. Næsta fimmtudag fer fram fyrsti viðburður kvennaársins í Iðnó og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá.
    Heilbrigð efnaskipti í líkamanum stuðla ekki eingöngu að góðri líkamlegri heilsu heldur hefur hún einnig veruleg áhrif á andlega heilsu. Rannsóknir sýna nú svo ekki verður um villst að viðvarandi efnaskiptavilla í líkamanum, sem á sér stað þegar viðkomandi neytir of mikils sykraðs og gjörunnins mataræðis til langs tíma, getur haft áhrif á myndun hvers kyns geðsjúkdóma, viðhaldið þeim og hreinlega komið í veg fyrir að fólk nái bata. Guðmundur Freyr Jóhannsson, lyf- og bráðalæknir, hélt erindi um andlega heilsu og efnaskipti á nýafstöðnum Læknadögum í Hörpunni hefur undanfarin ár reynt að vekja athygli almennings á skaðlegum áhrifum gjörunnins og sykraðs mataræðis og rætt um lausnir fyrir fólk til að leiðrétta efnaskiptin. Hann vill nú beina athygli okkar að áhrifum viðvarandi efnaskiptavillu á geðsjúkdóma. Helga Arnardóttir ræddi við Guðmund Frey á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Brimkló, Chip Taylor, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens)
    Engin önnur en ég er / Ellen Kristjánsdóttir (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Hjartastuðtæki á vinnustöðum, fjármál á mannamáli og Guðmundur Einar lesandinn
    Hjartastuðtæki á vinnustöðum hafa fyrir löngu sannað gildi sitt og bjargað mannlífum. Tíminn í slíkum atburðum skiptir öllu máli og . Ef hjartastopp á sér stað þá er mikilvægt að gefa rafstuð eins fljótt og auðið er og ef það næst að gefa rafstuð innan einni mínútu frá hjartastoppi þá aukast lífslíkur um 90%. Ef það næst að gefa rafstuð innan þriggja mínútna frá hjartastoppi þá aukast lífslíkur um 70%. Um 200 hjartastopp eiga sér stað árlega á Íslandi en talið er að einungis 20% lifa það af. Með fjölgun hjartastuðtækja er hægt að bjarga fleiri mannslífum. Meira um hjartastuðtæki hér á eftir. Sigríður Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Fastus og hjúkrunarfræðingur, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu.
    Við höfum verið með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli á mánudögum eftir áramót og Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í fjármálum heimilanna, kom því til okkar í dag og í dag fjallaði um hvernig hægt er að greiða hraðar niður lán og stefna að skuldleysi, auk þess sem hann svaraði spurningu sem hann fékk frá hlustanda.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðmundur Einar Láru Sigurðsson, leikstjóri og grínisti. Hann er í grínhópnum Kanarí og leikstýrt sjónvarpsþáttum hópsins, hann er meðlimur í Improv Ísland og er nú að undirbúa uppistandssýningu, þar sem hann verður einn á sviðinu heilt kvöld. En Guðmundur Einar sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Guðmundur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Bernska og Gift e. Tove Ditlevsen
    Svartfugl e. Gunnar Gunnarsson
    The New Comedy Bible e. Judy Carter
    Astrid Lindgren, t.d. Bróðir minn Ljónshjarta
    Halldór Laxness, t.d. Barn náttúrunnar og Sjálfstætt fólk
    Tónlist í þættinum:
    Mánudagur / KK band (Kristján Kristjánsson og Kormákur Geirharðsson)
    Monday, Monday / Mamas and Papas (John Philips)
    Suddenly Monday / Melanie C. (Matt Rowe, Richard Frederick Stannard, Melanie Chisholm & Julian Gallagher)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og fyrir framan myndavélina. Við fórum með Tinnu aftur í tímann, á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, sem auðvitað var á sínum stað í dag eins og aðra föstudaga. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, og það er þorramaturinn sem verður umræðuefnið í dag. Íslenski þorramaturinn komst á alþjóðlegan lista sem er ekki endilega listinn til að vera á, sem við skoðuðum aðeins. Sviðakjammi, sviðasulta, rófustappa, súrir hrútspungar og allt þetta góðgæti sem við elskum en vekja jafnvel furðu hjá öðrum þjóðum.
    Tónlist í þættinum:
    Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson og Memfismafían (Helgi Svavar Helgason, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Af því að pabbi vildi það / Jonee Jonee (Jonee Jonee)
    Morning has Broken / Cat Stevens (Cat Stevens & Eleanor Farjeon)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners