Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Aldin kór aðgerðarsinna og ferðahjónin Trausti og Rún
    Aldin er heitið á hreyfingu fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið, eða samtök eldri aðgerðarsinna gegn loftslagsvá eins og þau segja sjálf. Mörg þeirra eru afar og ömmur og þau vilja leggja lóð sín á vogaskálarnar til að knýja á um þær breytingar sem þarf til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, fyrir afkomendur sína og komandi kynslóðir. Við hittum hluta af hópnum í gær, þar sem þau voru samankomin í húsnæði FÍH á fyrstu kóræfingu nýstofnaðs kórs samtakanna. Við töluðum við Laufeyju Steingrímsdóttur og Ludvig Guðmundsson og fengum til dæmis að vita hvernig þau ætla að nýta sér söngraddirnar til að koma skilaboðum sínum á framfæri.
    Svo töluðum við við hjónin Trausta Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttur, en þau kynntust í kennaranámi fyrir tæpum þremur áratugum. Þau störfuðu bæði við kennslu en fljótt fór að koma í ljós mikill áhugi beggja á ferðalögum. Trausti gerðist fararstjóri erlendis og til að gera langa sögu stutta, þar sem þau meðal annars bjuggu í tólf ár á Tenerife, hafa þau í rauninni bæði ferðast sjálf út um allan heim síðan, til dæmis um alla Suður-Ameríku og Bandaríkin, auk þess að vinna í ferðamálum. Þau fluttu aftur til Íslands í heimsfaraldrinum og eftir enn eina ævintýraferðina, nú til Egyptalands og Marokkó, ákváðu þau að setja á stofn eigin ferðaskrifstofu þar sem þau bjóða upp á ferðir á framandi slóðir, ekki þessa hefðbundnu staði sem Íslendingar ferðast á í stórum hópum. Trausti og Rún sögðu okkur ferðasögu sína í þættinum.
    Tónlist í þættinum
    Hafið eða fjöllin / Fjallabræður (Ólafur Ragnarsson)
    Jörðin sem ég ann / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Þór Sigmundsson)
    Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Kosningafundur LEB, Jónatan um Óðinn Valdimarsson og póstkort frá Magnúsi
    Landssamband eldri borgara hefur boðað til kosningafundar á morgun með frambjóðendum allra flokka sem bjóða fram á landsvísu. Málefni fundarins verða þau mál sem brenna mest á eldri borgurum þessa lands, svo sem kjaramál, heilbrigðismál og húsnæðismál. Frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram á landsvísu munu kynna sín stefnumál í þeim málaflokkum sem snúa að eldri borgurum og að því loknu verða pallborðsumræður. Helgi Pétursson formaður LEB og formaður kjaranefndar sambandsins, Björn Snæbjörnsson voru hjá okkur í dag.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og tók upp þráðinn frá því í vor og hélt áfram að segja okkur frá íslensku tónlistarfólki. Í dag sagði hann okkur frá Óðni Valdimarssyni, sem hefur á allra síðustu árum tengst laginu Er völlur grær (Ég er kominn heim) en þessi magnaði söngvari söng mun fleiri lög sem náðu miklum vinsældum og segja má að flest það sem hann kom nálægt á yngri árum hafi orðið sígilt og heyrist reglulega á öldum ljósvakans. Ævi Óðins var hins vegar þyrnum stráð og Jónatan sgði okkur betur frá í þættinum.
    Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Það verður norðan átt ríkjandi næstu daga í Vestmannaeyjum og því fagnar Magnús í póstkorti dagsins. Þrátt fyrir kulda er fallegt gluggaveður og samgöngur tryggari við Landeyjahöfn en í útsynningnum sem hefur gert Eyjamönnum lífið leitt að undanförnu. Það er mikið fjallað um hugsanleg göng milli lands og Eyja núna fyrir kosningarnar, sem Magnúsi líst svona í döpru lagi á að muni raungerast. Póstkortið sagði líka af straumi ungra Afríkumanna til Rússlands og í framhaldinu er fjallað um hið gríðarlega mannfall í stríðinu við Úkraínu sem hugsanlega muni draga Rússa að samningsborðinu.
    Tónlist í þættinum
    Hringrás lífsins / Berglind Björk Jónasdóttir (Alan Menken - Ólafur Haukur Símonarson)
    Hringrás lífsins / Páll Rósinkrans og Icelandic Pop Orchestra (Rúnar Þór Pétursson, texti Ómar Ragnarsson)
    Hringrás / Þorgrímur Jónsson Quintett (Þorgrímur Jónsson)
    Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imré Kálmán, texti Jón Sigurðsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Nagladekkin og svifrykið, Petra paprika og rafsegulmeðferð á Heilsuvaktinni
    Reykjavíkurborg hefur sett sér markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Fyrir utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald og kostnað. Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar kom í þáttinn og fræddi okkur um sviryk og mikilvægi loftgæða.
    Hafdís Helgadóttir næringafræðingur kom svo til okkar en hún fræddi okkur um næringu og hvernig við getum aðstoðað börnin okkar og yngri kynslóðirnar að skilja betur næringu og áhrif hennar á líkamann og þá getum við, fullorðna fólkið, einnig lært heilmikið í leiðinni. Hún fékk innblástur í fræðandi barnaefni úr sinni æsku, eins og teiknimyndaþáttunum Einu sinni var sem kenndu börnum til dæmis mannkynssögu á skemmtilegan hátt. Því ákvað hún að búa til barnabók. Hafdís sagði okkur frá því hvernig hún nýtti sér gervigreind og endaði svo sjálf sem bókaútgefandi.
    Rafsegulmeðferð, eða TMS meðferð eins og hún er kölluð, hefur reynst verulega árangursrík fyrir þá sem glíma við þrálátt þunglyndi og hafa ekki fundið viðunandi úræði við sínum sjúkdómi og eru jafnvel í svo mikilli vanlíðan að hún hefur djúpstæð áhrif á daglegt líf þess. Byrjað var að veita TMS meðferðina hér á landi fyrir tveimur árum og hafa á annað hundrað manns nýtt sér hana. Helga Arnardóttir ræddi á Heilsuvaktinni við Dag Bjarnason geðlækni og yfirlækni á Heilaörvunarmiðstöðinni í Skógarhlíð en þangað geta allir á landinu sótt þjónustu.
    Tónlist í þættinum
    Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson)
    Allar þínar gjafir / Ragnheiður Gröndal og Finnur Árnason og Co. (Finnur Árnason, texti Árni Grétar Finnsson)
    Lifðu hægt / Hildur Vala (Svavar Knútur Kristinsson, texti Karl Ágúst Úlfsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Ný bók um hjátrú, vinkill frá Guðjóni og Ástrós Hind lesandi vikunnar
    Flestir Íslendingar eru að einhverju leyti hjátrúarfullir og þekkja þetta helsta að forðast að ganga undir stiga og berja í tré og segja 7-9-13. Nú er komin út ný bók hjátrú; Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, innlenda, erlenda, gamalgróna og nýja. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson er höfundur bókarinnar og hann kom í þáttinn í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins fjallar um mismunandi nálgun manneskjunnar á að „lenda í“ hinum ýmsu aðstæðum, hvernig sum okkar eru bara kærulaus og lenda í þessu og hinu og hvernig önnur segjast bara hafa „lent í“ ýmsu, en hafa í raun stefnt að því ljóst og leynt. Örlítið er fjallað um írska þjóðtrú í því samhengi og dæmi eru tekin af tveimur mönnum sem hafa mismunandi tengingar við eyjur í Atlantshafi. Báðir eru þeir dugnaðarforkar og jafn merkilegir, annar er svolítið frægur en hinn ekki.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ástrós Hind Rúnarsdóttir, bókmenntafræðingur og sviðslistakona. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
    Tónlist í þættinum
    Hvað kostar hamingjan? / Nýdönsk og Sinfó (Ólafur Hólm, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    For the good times / The Little Willies (Kris Kristofferson)
    Suma daga / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Teaque, Magnús Trygvason Elíasen og Daníel Friðrik Böðvarsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Ástvaldur Zenki Traustason föstudagsgestur og hyggematarspjall
    Ástvaldur Zenki Traustason tónlistarmaður, prestur og kennari hjá Zen á Íslandi var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur iðkað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandarísks Zen meistara síðan árið 1998 og hlotið þjálfun meðal annars í Japan. Ástvaldur nam tónlist í FÍH og í bandaríska tónlistarskólanum Berklee College of Music og rak um tíma tónlistarskólann Tónheima. Hann starfar einnig sem organisti og kórstjóri í Bessastaðakirkju. Við fórum með honum aftur í tímann í Dalina, þar sem hann var hjá ömmu sinni og afa á sumrin, hann sagði okkur frá áhugaverðri reynslu sem hann varð fyrir ungur að aldri, sem kallaðist svo á við það þegar hann hóf að stunda Zen hugleiðslu. Við ræddum tónlistarferil hans og samband hans við Ragnar Bjarnason og hann talaði meðal annars um núvitund og frið föstudagspjallinu í dag.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti sem var auðvitað á sínum stað í dag. Í svona veðri, gulri og appelsínugulri viðvörun, ákváðum við að tala um „huggu mat“ eða „hyggemad“ og að hafa það kósi. Að mati Sigurlaugar er best að djúpsteikja matinn á svona dögum og hún sagði meðal annars frá djúpsteiktum rækjum og þrísteiktum kartöflum.
    Tónlist í þættinum
    Sólóður / Milljónamæringarnir og Bjarni Arason (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson)
    Just One of Those Things / Ragnar Bjarnason Hljómsveit Ástvaldar Traustasonar (Cole Porter)
    Víst ertu Jesús kóngur klár / Ástvaldur Traustason (höf. ókunnur)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Tau frá Tógó, Eyrún kórstjóri og húmor og grimmd
    Tau frá Togó er nafn á nýrri netverslun þar sem allur ágóði rennur til heimilis í Togó fyrir munaðarlaus börn. Þau sem standa að þessu verkefni selja vörur sem búnar eru til á heimilinu og seldar til að fjármagna reksturinn og hafa með þessu fjármagnað skólagöngu barnanna á heimilinu og auk þess greitt fyrir einstaka eldri nemendur í framhaldsnám. Þetta samstarf byrjaði fyrir 10 árum þegar Guðný Einarsdóttir ættleiddi son sinn frá þessu heimili. Guðný kom í þáttinn í dag.
    Það eru ekki margir kórstjórar sem eru með fjóra kóra á sínum snærum en Eyrún Jónasdóttir er ein af þeim og einn af þessum kórum er kór Menntaskólans við Laugarvatn. Það er merkilegt að meirihluti nemenda við skólann er í kórnum. En hvernig tekst henni að halda úti kórastarfinu þegar þróunin virðist því miður vera sú að kórastarf við framhaldsskóla hefur sumstaðar lagst af? Við ræddum við Eyrúnu í þættinum í dag.
    Flestir líta húmor jákvæðum augum, hann léttir lífið og gerir samskipti skemmtilegri. Það er hins vegar erfitt að útskýra húmor og hann er auðvitað ekki alltaf jákvæður, getur verið dökkur, meiðandi og grimmur. Hvað er fyndið og hvers vegna erum við að reyna vera fyndin? Og hvað er grimmd og hvers vegna sýnum við hana? Ársæll Már Arnarson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, hefur skoðað þessi tvö hugtök og hann kom og ræddi húmor og grimmd í dag.
    Tónlist í þættinum
    Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)
    Lazy Sunday / Small Faces (Marriott Lane)
    Forðum / Tómas R Einarsson og Óskar Guðjónsson (Tómas R Einarsson)
    Aguas de Marco / Antonio Carlos Jobim & Elis Regina (Antonio Carlos Jobim)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Áhugaverðar niðurstöður nýrrar rannsóknar ÍE, Málæði og vinkill
    Ný rannsókn dregur fram hvernig líkamsþyngdarstuðull, eða öllu heldur ofþyngd, hefur áhrif á hættu á ýmsum sjúkdómum og niðurstöðurnar eru áhugaverðar þegar kemur að tengslum milli erfðabreytileika og sjúkdóma og hvaða áhrif líkamsþyngd getur haft á hættuna á sjúkdómunum. Guðmundur Einarsson, vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu og Kári Stefánsson, forstjóri, komu í þáttinn og fóru með okkur yfir þessar áhugaverðu niðurstöður.
    Svo fræddumst við um Málæði, nýjan sjónvarpsþátt, sem sýndur verður af tilefni Dags íslenskrar tungu á laugardaginn. Í þættinum fylgjumst við með og fáum að heyra tónlist sem landsþekkt tónlistarfólk flytur og unglingar í grunnskólum landsins sömdu, sem sagt bæði lög og texta við. Þær Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastjóri Málæðis, og Elfa Lilja Gísladóttir, sem stýrir List fyrir alla, barnamenningarverkefni á vegum Menningarráðuneytissins, komu og sögðu okkur betur frá þessu verkefni í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þessum vinkli talaði hann um hvernig kosningar óhjákvæmilega taka yfir sviðið þegar nær dregur, sérstaklega í fréttatengdu efni. Þá koma nýafstaðnar kosningar í Bandaríkjum Norður-Ameríku aðeins við sögu og líka fyrirliggjandi kosningar í Miðbaugs-Gíneu og örlítið er farið yfir stöðuna þar og hvernig hanski sem eitt sinn prýddi hægri hönd ástsæls tónlistarmanns tengist fyrir gráglettni örlaganna við þá sem nú ráða þar ríkjum.
    Tónlist í þættinum
    Á vígaslóð / Sléttuúlfarnir (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik)
    Hringiða / Vigdís Hafliðadóttir (Hljómsveitin Kanskekki)
    Sumarið ‘24 / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens, hátt í 1000 unglingar eiga hlut í textanum)
    Fátt er svo með öllu illt / Ellý Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Buck Owens, texti Ómar Ragnarsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Vertonet, ástarþrá og ástarfælni og veðurspjallið með Einari
    Við fræddumst um Vertonet, samtök kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi, í þættinum í dag, eða nánar tiltekið um átaksverkefni Vertonet sem er samvinnuverkefni yfir 20 fyrirtækja, samtaka og menntastofnanna í upplýsingatækni til að auka hlut kvenna og kvára í tæknigeiranum á Íslandi. Tæknigeirinn hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og talið er að það vanti um níu þúsund sérfræðinga til að standa undir þeim vaxtaráformum sem eru til staðar í hugverkaiðnaðinum hér á landi. Ásdís Eir Símonardóttur, stjórnenda- og mannauðsráðgjafi og driffjöður átaksverkefnis Vertonet sagði okkur betur frá þessu í þættinum.
    Viltu heilbrigðari samskipti og sambönd? Einlægni og nánd í stað spennu og fjarlægðar og vera með opið hjarta án ótta við höfnun? Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla- og uppeldisfræðum hún fræddii okkur í dag um óheilbrigð mynstur í samböndum sem fara sama hringinn aftur og aftur og koma í veg fyrir þá einlægni og nánd. Það sem í daglegu tali kallað ástarþrá og ástarfælni.
    Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Hann talaði um hitann á landinu í nótt sem er óvenjulegur í alla staði, en þó ekki met þó nærri hafi farið. Hann tengdi hitann við uppruna loftsins suður í höfum og heitum sjó þar. Einar talaði svo um eftirtektarverða hita á Kanaríeyjum síðustu daga. Það rigndi mikið fyrir vestan og með vatnavöxtum og skemmdum á vegum, 111 mm. sólarhringsúrkoma á Hólum í Dýrafirði, sem þykir með mesta móti þar. Það er svo von á stórrigningu að nýju á fimmutdag og svo skoðuðum í lokin við langtímaspána með Einari, en umskiptum er spáð á föstudag með kólnandi veðri.
    Tónlist í þættinum
    Einsemd / Snorri Helgason (Snorri Helgason og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    Með vaxandi þrá / Geirmundur Valtýsson og Erna Gunnarsdóttir Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar (Geirmundur Valtýsson og Hjálmar Jónsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Hulda Jóhannsdóttir ári síðar og Sólveig Ólafsdóttir lesandi vikunnar
    Grindvíkingar og aðrir landsmenn minntust þess um helgina að ár er liðið frá rýmingunni í Grindavík og þann 16.nóvember 2023 tókum við viðtal við Huldu Jóhannsdóttur leikskólastjóra í Grindavík sem lýsti þessu áfalli en hún var í sömu stöðu og aðrir í Grindavík, þurfti að yfirgefa heimilið sitt með hraði og óvissan mikil. Hulda skrifaði á þessum tíma færslu á facebook sem vakti athygli en þar talaði hún um að það þyrfti að huga að börnunum og einnig að starfsfólki grunn- og leikskóla. En hvernig hefur þetta ár liðið hjá Huldu og hvernig líður henni í dag? Við töluðum við Huldu í þættinum í dag.
    Svo var það lesandi vikunnar, en í þetta sinn var það Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri hjá Menntavísindasviði HÍ. Sólveig sagði okkur frá sýningum um Frú Guðríði og séra Hallgrím Petursson sem hún er að vinna að fyrir nýopnaða menningarmiðstöð á Hvalsnesi og svo kom hún að handritsgerð að sjónvarpsþáttaröðinni Hvað var í matinn. En fyrst og fremst sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða höfundar og bækur hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Solveig talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Barrokkmeistarinn e. Margréti Eggertsdóttur
    Ljóðmæli - Veraldlegur kveðskapur Hallgríms Péturssonar
    Dótarímur e. Þórarinn Eldjárn
    Jarðljós e. Gerði Kristnýju
    Innanríkið e. Braga Ólafsson
    Helga í öskustónni, Bangsímon, Kapítula, safn Halldórs Laxness, Jane Austen, Virginía Woolf, George Elliott, Karen Blixen, Simone de Bevoir, Charlotte Bronte og Gertrude Stein
    Tónlist í þættinum
    Reykingar / Stuðmenn (Lag og texti Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla)
    Constant Craving / K.D. Lang (K.D. Lang & Ben Mink)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Sigrún Eðvaldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um kjötbollur
    Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigrún hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og lauk bakkalárprófi frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu í Bandaríkjunum 1988. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna; varð í öðru sæti í Leopold Mozart keppninni árið 1987, hlaut bronsverðlaun í Síbelíusar-keppninni árið 1990 og önnur verðlaun í Carl Flesch keppninni árið 1992. Sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth og hún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og sama ár var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Við fórum með Sigrúnu aftur í tímann á æskuslóðirnar í Garðabæ og hún sagði okkur hvenær fiðlan kom inn í hennar líf, hún talaði um námið og keppnisskapið og frá erfiðri reynslu þegar hún handleggsbrotnaði í Svíþjóð árið 2022.
    Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti töluðum við aðeins meira um færeysku matreiðslubókina og þær athugasemdir sem komu frá glöggum hlustendum í kjölfarið og svo töluðum við um kjötbollur og kalkúnahakk.
    Tónlist í þættinum
    Óvissan / Guðmundur Rafnkell Gíslason (Björn Hafþór Guðmundsson)
    Minning / Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guðmundsdóttir (Þórarinn Guðmundsson)
    Schindler’s List meginstef / Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigrún Eðvaldsdóttir (John Williams höfundur, stjórnandi Daníel Bjarnason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners