Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Draugar fortíðar, Búðu til pláss og bókabúð í Grenivíkurskóla
    Hlaðvarpið Draugar fortíðar sem stjórnað er af þeim Baldri Ragnarssyni og Flosa Þorgeirssyni hefur vakið mikla athygli og notið mikilla vinsælda. Þeir félagar taka fyrir ýmis mál úr mannkynssögunni og nálgast það úr ýmsum áttum á skemmtilegan og lifandi en umfram allt, fræðandi máta. Ekki síst hefur umræða þeirra um geðræn vandamál og andlega heilsu stuðlað að því að þeir eiga dyggan hóp hlustenda. Draugarnir munu fara víðreist um landið í janúar og heimsækja vel valda staði í öllum landshlutum eða eins og þeir segja sjálfir: Draugar fortíðar ásækja Ísland. Baldur og Flosi komu í þáttinn í dag.
    Búðu til pláss er nafnið á söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem verður annað kvöld í sameiginlegri beinni útsendingu RÚV, Stöðvar 2 og Sjónvarps Símans. UNICEF á Íslandi fagnar 20 ára afmæli í ár og tugþúsundir Íslendinga hafa búið til pláss í hjörtum sínum með því að gerast heimsforeldrar og þannig stutt réttindi og velferð milljóna barna um allan heim. Við fengum þau Fannar Sveinsson og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, sem eru tvö af þeim sem hafa umsjón með dagskránni annað kvöld, til að segja okkur betur frá henni í dag.
    Svo hringdum við í Grenivíkurskóla, en krakkarnir þar hafa unnið að sagna- og bókagerð og nú hafa þau opnað bókabúð þar sem þau selja eingöngu eigin ritverk og ýmislegt fleira sem þau hafa búið til og allur ágóði rennur til mæðrastyrksnefndar á Akureyri. Við töluðum við Pál Þóri Þorkelsson nemanda og Hólmfríði Björnsdóttur kennara í lok þáttarins í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Snjókorn falla / Laddi (Bob Heatlie, texti Jónatan Garðarsson)
    Litli Trommuleikarinn / Raggi Bjarna og Ellý Vilhjálms (Harry Simeone, Henry Onorati, texti Stefán Jónsson)
    Jólarómantík / Stefán Hilmarsson og Ragga Gröndal (Frank Loesser, texti Kristján Hreinsson)
    Jól á Hafinu / Vilhjálmur Vilhjámsson (Steer & Hansen, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Hæglætishreyfingin, póstkort frá Magnúsi og Jónatan um Öddu Örnólfs
    „Stöðug pressa um að gera allt hraðar hefur þau áhrif að við flýtum okkur í gegnum lífið í stað þess að lifa því í raun og veru. Ef þú gírar þig niður, stígur á bremsuna, nærðu yfirsýn og allt raðast á sinn stað. Þú tengir betur, skapar meira, einbeitir þér betur og afkastar meiru. Þú einfaldlega lifir meira og betur.“ þetta eru orð Carls Honoré, en Hæglætishreyfingin á Íslandi fær hann á næstunni til landsins til að flytja fyrirlestur um hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar. Þóra Jónsdóttir, formaður hreyfingarinnar á Íslandi kom til okkar og sagði okkur meira frá hreyfingunni og þessum fyrirlestri Carl Honoré.
    Jónatan Garðarsson kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um sögu íslensks tónlistarfólks. Í þetta sinn fræddi hann okkur um Öddu Örnólfs, en hún söng inn á fjölmargar plötur á sjötta áratugnum, til dæmis lagið um Bellu símamær sem hefur fyrir löngu orðið sígilt. Hún fæddist árið 1935 á Suðureyri við Súgandafjörð en fluttist ung til Reykjavíkur og var uppgötvuð átján ára. Jónatan sagði okkur meira frá hennar söngferli og ævi í þættinum.
    Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkortið berst frá Þýskalandi að þessu sinni. Í því segir frá jólamörkuðum sem eru forn þýsk hefð allt frá fjórtándu öld. Jólamarkaðurinn þykir ómissandi hluti af aðventunni og þar hafa myndast margar skemmtilegar hefðir i gegnum aldirnar og hefur hver borg sinn sérstaka stíl. En það sem er sameginlegt með þeim öllum er hefðbundin matur og drykkur, kökur, sætabrauð og jólaglögg, eða Gluhwein eins og þjóðverjar kalla það. Einnig er fjallað um jólatónlist sem hefur breyst mikið í áranna rás.
    Tónlist í þættinum:
    Senn koma jólin / Sigríður Beinteinsdóttir (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Kristlaug María Sigurðardóttir)
    Hátíðarfiðringur/Pálmi Sigurhjartarsson og Unnur Birna Bassadóttir(Pálmi Sigurhjartarsson -Herdís Anna Þorvaldsdóttir )
    Kom þú til mín / Adda Örnólfs og Hljómsveit Carls Bilich (Kristinn Magnússon, texti Jón Ingiberg Bjarnason)
    Bella símamær / Adda Örnólfs (lagahöfundur ókunnur, texti Guðmundur Guðmundarson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Hrafnhildur og útikennsla og Lára Sigurðardóttir um neyslu nikótínpúða
    Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, hlaut Íslensku menntaverðlaunin sem voru veitt á dögunum við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut hún í flokknum framúrskarandi kennsla, en Hrafnhildur var verðlaunuð fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt. Hrafnhildur var hjá okkur í dag og við fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum og aðferðum við útikennslu.
    Nikótín hefur mikil og neikvæð áhrif á taugakerfi ungmenna, veldur kvíða, hjartsláttartruflunum, svefnleysi og er í raun örvandi og ávanabindandi efni sem þau þurfa raunverulega að vara sig á. Í Heilsuvakt dagsins ræddi Helga Arnardóttir við Láru Sigurðardóttur, lækni og lýðheilsufræðing, um sívaxandi nikótín notkun meðal ungmenna, í formi púða og veips, sem eru stundum með margfalt meira magn nikótíns en sígarettur. Lára segir nikótínið rótsterkt efni, sem hafi neikvæð áhrif á svefn og einbeitingu ólíkt því sem margir halda fram. Hún lýsir einnig hvernig líkamleg fráhvörf koma fram þegar neyslu þess er hætt og gefur góð ráð til þeirra sem vilja venja sig af þessum óþverra.
    Tónlist í þættinum:
    Ef ég nenni / Helgi Björnsson (Zucchero, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    Happy Holiday, The Holiday Season / Silva & Steini (Irving Berlin)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Samskipti ungmenna, húfuvinkill og Tanja lesandi vikunnar
    Aukin harka er komin í samskipti barna í öllum árgöngum grunnskóla en þó sérstaklega á miðstigi og unglingastigi. Strákar þurfa að vera harðir og óhræddir og mega ekki klaga. Húmorinn er grimmur og stelpa eiga það til að lenda undir og láta lítið fyrir sér fara, en þar á bæ skiptir útlitið hvað mestu máli. Þetta segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson félagsmálafræðingur sem starfað hefur með ungu fólki í tvo áratugi bæði á Akureyri og í Reykjavík og er nú forstöðumaður Gleðibankans, félagsmiðstöðvar Hlíðaskóla. Við ræddum þetta við Gunnlaug í dag og leituðum skýringa og ræddum hvaða þættir hafa áhrif á þessa hegðun barna og hvernig við getum brugðist við henni.
    Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn var að þessu sinni borinn að höfðum okkar, nánar til tekið að húfum og höfuðfötum. Guðjón velti því fyrir sér hvernig húfan sem slík verður til í mannkynssögunni, hvers vegna og hvað það er sem gerist í mannslíkamanum við of mikinn kulda og of mikinn hita. Að lokum skoðaði hann örlítið hvers vegna sum okkar virðast alltaf þurfa að vera með húfu á meðan önnur setja þær helst ekki upp.
    Og svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Tanja Rasmussen frásagnafræðingur og bóksali. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tanja talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Limits to Growth e. Donellu Meadows o.fl.
    Mikilvægt rusl e. Halldór Armand
    Moldin heit e. Birgittu Björgu Guðmarsdóttur
    Eldri konur e. Evu Rún Snorradóttur
    Jólabókarleitin e. Jenny Colgan
    Twilight serían e. Stephenie Meyer
    Sjálfstætt fólk e. Halldór Laxness
    Tónlist í þættinum:
    Litli tónlistarmaðurinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson)
    Ást / Ragnheiður Gröndal (Magnús Þór Sigmundsson, texti Sigurður Nordal)
    Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Hannes Þór föstudagsgestur og smákökumatarspjall
    Föstudagsgestur þáttarins í þetta sinn er þjóðþekktur fyrir afrek sín í íþróttum og kvikmyndagerð. Út er komin bókin Handritið mitt um Hannes Halldórsson fyrrverandi markvörð, landsliðsmann og kvikmyndagerðarmann, sem var einmitt föstudagsgestur okkar í dag. Bókina skrifar Magnús Örn Helgason sem lýsir knattspyrnuferli Hannesar frá upphafi til enda, allt frá Shellmótinu árið 1994 þar sem hann var valinn besti markvörðurinn til haustsins 2021 þegar hann lagði skóna á hilluna eða markmannshanskana sína öllu heldur. Hannes var lykilmaður í landsliðinu sigursæla sem þjóðin fylgdist með en þó með allt annan bakgrunn og öðruvísi líf en flestir liðsfélagar hans. Hann fór seint í atvinnumennsku, glímdi við erfið meiðsl fyrir tvítugt, sem kostuðu hann mikið, en aldrei gafst hann upp. Við ræddim við Hannes í dag, gerðum upp knattspyrnuferilinn og ræddum hina ástríðu hans, auglýsinga- og kvikmyndaleikstjórn, en nýlega kom út þáttaröð tvö af vinsæla strákabandinu ICE GUYS á Sjónvarpi Símans sem Hannes leikstýrir og framleiðir. Markmannshanskar, vítaspyrna Messi, axlameiðsli, kvikmyndagerðin og verkefnin framundan voru meðal þess sem rætt var við Hannes.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag ræddum við um smákökur og piparkökur. Það eru auðvitað uppskriftirnar, sortirnar og allt það sem sækir að okkur á þessum árstíma.
    Tónlist í þættinum:
    Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir)
    Vetrarsól / Krummi Björgvinsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    Þegar vetur / Iceguys (Friðrik Dór Jónsson, Jón Jónsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson, Árni Páll Árnason, Aron Can Gultekin, Rúrik Gíslason)
    UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Hlaðvarp um Bráðamóttökuna, Emilía dansari og stjúpfjölskyldur um jólin
    Jóhannes Kr. Kristjánsson rannsóknarblaðamaður hefur varið yfir fjögur hundruð klukkustundum á Bráðamóttöku Landspítalans síðustu mánuði við gerð hlaðvarpsþáttanna Á vettvangi sem hann vinnur í samstarfi við Heimildina. Með þáttunum gefur hann hlustendum innsýn í raunverulega stöðu Bráðamóttökunnar sem er þröng og erfið, þar sem plássleysi fyrir sjúklinga er viðvarandi vandamál. Hann ræðir við starfsfólk á gólfinu sem vinnur undir miklu álagi við mögulega erfiðari aðstæður en hægt er að ímynda sér. Jóhannes kom til okkar og sagði okkur frá þáttunum og stærstu málunum sem Bráðamóttakan glímir við um þessar mundir.
    Emilía Benedikta Gísladóttir dansari kom svo til okkar. Hún var sólódansari hjá Compania Nacional de Danza í Madrid og svo undir stjórn Katrínar Hall í dansflokki Óperunnar í Gautaborg. Á báðum stöðum dansaði hún í verkum margra frægustu danshöfunda heims, en nú dansar hún aftur hjá Íslenska dansflokknum meðal annars í Jóladraumum sem var frumsýndur í síðustu viku. Emilía sagði okkur frá sinni reynslu í þessum stóru dansflokkum og hvernig það er að dansa aftur á Íslandi.
    Er mikilvægara að börn eigi jól með nýju stjúpforeldri en foreldrinu á hinu heimilinu? Jólin geta reynt á marga og sérstaklega stjúpfjölskyldur. Margir eru óvissir um hver á að gefa og þá hverjum hvað? Hverjum á að bjóða og hverjum ekki? Og með hverjum eiga börnin að eiga jólin? Félags- og fjölskylduráðgjafinn Valgerður Halldórsdóttir segir þetta algengt áhyggjuefni hjá mörgum fyrir jólin og hélt erindi um þetta á Bókasafni Kópavogs fyrir stundu. Hún ræddi þetta við okkur í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson)
    Í eigin vanmætti / KK (Kristján Kristjánsson)
    Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson)
    Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigðurðu Bjóla Garðarsson)
    UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Gervigreind fyrir venjulegt fólk og Drottningin í dalnum
    Gervigreind hefur tekið mikið pláss í umræðunni undanfarið, sérstaklega eftir að opnað var fyrir aðgengi almennings að ýmis konar tólum eins og ChatGPT, þar sem gervigreindinni virðast engin takmörk sett með hvað hún getur skrifað og jafnvel framkvæmt á ógnarhraða. Það er þó bara ein birtingarmynd gervigreindar, hún er í rauninni allt í kringum okkur og ekki er víst að allir viti nákvæmlega hvað hún er. Við erum bara rétt að sjá toppinn af ísjakanum þegar kemur að mögulegri notkun gervigreindar og ýmist er talað um hana sem spennandi þróun með endalausa möguleika eða það er varað við henni og að hún sé misnotuð. Grímur Sæmundsson, verkefnastjóri gagna og gervigreindar hjá Crayon, kom í þáttinn og fræddi okkur um það sem hann kallar gervigreind fyrir venjulegt fólk, sem hann hefur verið að kenna á námskeiði hjá Opna háskólanum í HR.
    Út er komin bók sem heitir Drottningin í dalnum. Þetta er saga Guðrúnar Margrétar Þorsteinsdóttur, tveggja eiginmanna og sona hennar í Vatnsdal. Saga Guðrúnar Margrétar er um margt merkileg. Foreldrar hennar urðu að láta hana frá sér vegna fátæktar og ómegðar þegar hún var aðeins þriggja ára. Hún eignaðist þrjú börn og varð ekkja í annað sinn 42 ára. Í kjölfarið tókst hún á við það verkefni að kaupa jörðina Haukagil og þar bjó hún með reisn í 26 ár. Hér er um að ræða heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld. Eggert Ágúst Sverrisson er höfundur bókarinnar en hann fór í sagnfræðinám eftir að hann hætti að vinna og segir það hafa verið eina af betri ákvörðunum lífs síns. Við spjölluðum við Eggert í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson)
    Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín(Páll Óskar, Sveinbjörn Bjarki Jónsson og Toggi, Þorgrímur Haraldsson)
    Í hjarta þér / Katrín Halldóra (Jón Múli og Jónas Árnasynir)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Roðagyllum heiminn, leiklistarkennsluaðferðir og veðurspjallið með Einari
    Soroptimistasamband Íslands samanstendur af 20 klúbbum um allt land sem eru hluti af alþjóðlegum samtökum kvenna sem stuðla að bættri stöðu kvenna og stúlkna um allan heim. Á sunnudaginn var Soroptimistaklúbbur Vestfjarða stofnaður. Við töluðum við Sigríði Kr. Gísladóttur og Hörpu Guðmundsdóttur um Soroptimista og þeirra starf og átakið Roðagyllum heiminn, en í gær, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, hófst 16 daga vitundarvakning þar sem Soroptimistar fræða fólk til að þekkja rauðu aðvörunarljósin þegar kemur að stafrænu ofbeldi.
    FLÍSS, Félag um leiklist í skólastarfi, heldur hátíðlegan IDEA daginn á morgun. IDEA eru alþjóðasamtök leiklistar/leikhúss og menntunar. Haldið er upp á daginn árlega til þess að fagna og minna á mikilvægi þess að nota kennsluaðferðir leiklistar í skólum landsins. Leiklist kom inn í Aðalnámskrá grunnskóla árið 2013 og er nú orðin að fullgildri kennslugrein til jafns við aðrar listgreinar. Ása Helga Ragnarsdóttir, formaður FLÍSS, og Halldóra Björnsdóttir leikkona og leiklistarkennari komu í þáttinn.
    Einar Sveinbjörnsson kom til okkar í Veðurspjallið í dag. Í þetta sinn fræddi hann okkur um daggarmark loftsins, veðurútlit næstu daga og kosningaveðrið en mikil óvissa er í spám eftir að þessum frostakafla lýkur. Að lokum sagði hann okkur frá bókinni Veðurfregnir og jarðafarir eftir Maó Alheimsdóttur, en það er skáldsaga þar sem veðurfræðingur er ein aðalpersónan.
    Tónlist í þættinum:
    Borð fyrir tvo / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson, texti Bragi Valdimar Skúlasons)
    Smile / Nat King Cole ( Charlie Chaplin, Geoffrey Parsons og John Turner)
    Knowing me knowing you / ABBA (Benny og Björn)
    Ástarsæla / Júníus Meyvant (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Karlar og krabbamein, vinkill frá Mongólíu og Ragnheiður lesandi vikunnar
    Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag. Nú í nóvember er verið að selja Bláa trefilinn til styrktar félaginu og við fengum þá Stefán Stefánsson framkvæmdastjóra og Guðmund Pál Ásgeirsson formann í spjall í dag.
    Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins var að þessu sinni víðs fjarri dægurþrasi um stjórnmál, væntanlegar kosningar, möguleg og ómöguleg úrslit þeirra, eldgos og aðrar hamfarir bæði í tíma og rúmi, því austur í Innri Mongólíu eru borgarrústir sem vöktu áhuga Guðjóns. Hvaða fólk byggði staðinn og hvers vegna þarna í miðri eyðimörk? Hvernig stóð á því að staðurinn fór í eyði? Og hverjum datt í hug að grafa borgina upp úr sandinum?
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur og íslenskufræðingur. Hún hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir fyrstu bók sína, Blóðmjólk, en nú er komin út ný bók eftir hana, Svikaslóð. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá þeirri bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
    Tónlist í þættinum:
    Fönn fönn fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og texti Þórður Árnason)
    Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
    Á skíðum skemmti ég mér / Bogomil Font (B.Berg, G. Rucher & H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Guðmundur Pétursson föstudagsgestur og Jamie Oliver í matarspjallinu
    Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson. Hann var að senda frá sér glænýja LP plötu og á henni er t.d. lagið sem hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir, Wandering beings en það er einmitt heiti plötunnar. Við ræddum við Guðmund um tónlistina og upphafið með gítarinn og þegar hann varð frægur á einni nóttu eftir að hafa komið 14 ára fram í kosningarsjónvarpinu á RÚV. Hann sagði okkur til dæmis frá því hvað tónlistin spilar stórt hlutverk í hans lífi, en hann telur að um það bil 90% af því sem fram fer í höfði hans sé tónlistartengt.
    Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og frú Sigurlaug Margrét dró fram fyrstu matreiðslubók Jamie Oliver, Kokkur án klæða. Við fórum aðeins yfir hans feril, skoðuðum nokkrar uppskriftir og svo ræddum við aðeins um mandarínur í lokin.
    Tónlist í þættinum:
    Taktu til við að tvista / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson)
    Wandering Beings / Guðmundur Pétursson (Guðmundur Pétursson)
    Battery Brain / Guðmundur Pétursson (Guðmundur Pétursson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners