Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Jósep baksérfræðingur og þáttaröð um læsi
    Margir þjást af bakverkjum í stuttan eða langan tíma og brjósklos er frekar algengur kvilli svo maður tali ekki um þursabit eða hekseskudd. Oft er erfitt að finna útúr bakverkjum því þeir geta verið margvíslegir og einstaklingsbundir. Jósep Ó. Blöndal skurðlæknir einn af stofnendum háls- og bakdeildar Franciskuspítala, kom í þáttinn og fræddi okkur um bakverki, greiningu þeirra og meðhöndlun í ljósi reynslu aldanna og vísindanna. Hann fræddi okkur um algengustu orsakir bakverkja, nýjustu rannsóknir og fyrirbyggjandi æfingar.
    Þáttaröðin Læsi sem er á dagskrá á sunnudögum hér á Rás 1 í umsjón Guðrúnar Hálfdánardóttur hefur vakið mikla athygli og næsta á sunnudag fer í loftið fjórði þáttur þar sem fjallað verður um aðgerðir í skólamálum og mikilvægi þess að beita gagnreyndum aðferðum. Í þáttunum er rætt við skólastjórnendur, kennara, sérfræðinga í læsi, foreldra o.fl. á Höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi, Akranesi og Reykjanesi. Guðrún kom í þáttinn og sagði okkur frá þáttaröðinni og við heyrðum brot úr næsta þætti þar sem Guðrún talaði við Freyju Birgisdóttur, sviðsstjóra matssviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþróunar.
    Tónlist í þættinum
    Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)
    Er of seint að fá sér kaffi núna? / Prins Póló (Svavar Pétur Eysteinsson)
    Marsbúa chacha / Bogomil Font og Milljónamæringarnir (Sigtryggur Baldursson og Sigurður Jónsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Alli á Eyri, Svava og sinnepið og póstkort frá Magnúsi
    Grindvíkingurinn og netagerðameistarinn Aðalgeir Jóhannsson, eða Alli á Eyri eins og hann er jafnan kallaður, er einn þeirra sem er fluttur aftur heim til Grindavíkur eftir rýmingu bæjarins þann 10. nóvember 2023. Alli er einn af viðmælendum Gígju Hólmgeirsdóttur í heimildaþáttum hennar sem fjalla um hvernig líf Grindvíkinga hefur þróast frá rýmingu. Gígja heimsótti Alla í vor og hann sagði henni þá frá nýútkominni bók sinni sem kallast Grindavíkurblús. Þættirnir Grindavík eru á dagskrá kl.13 á sunnudögum og þættina má finna í spilara RÚV.
    Svava H. Guðmundsdóttir lyfjafræðingur bjó og starfaði í Svíþjóð og eftir að hún flutti aftur heim til Íslands byrjaði hún að prófa sig áfram með að búa til sína eigin útgáfu af sænsku sinnepi sem hún saknaði. Til að gera langa sögu stutta þá hefur hún þróað ýmsar tegundir af sinnepi sem hún notar íslensk hráefni eins og t.d. aðalbláber, blóðberg og rabarbara og á krukkunum kallar hún sig íslensku sinnepskonuna. Svava kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessu sinnepsævintýri sínu.
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá söngkonu frá Grænhöfðaeyjum sem kom hingað til lands og söng á tvennum tónleikum. Hún hafði aldrei áður séð snjó og varð himinlifandi þegar hún sá norðurljósin. Póstkortið fjallar líka um fyrirkomulag Alþingiskosninga sem Magnúsi finnst afleitt, talningin seinleg og úrslitin lengi að berast. Þessu er öðruvísi farið í flestum Evrópulöndum þar sem úrslit eru kunn um það bil tveim tímum eftir að kjörstöðum lokar. Í lokin segir af nýlegri könnun í Bandaríkjunum sem sýnir að neysla unglinga á kannabis hefur minnkað en snaraukist hjá eldri borgurum.
    Tónlist í þættinum
    Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Vegurinn heim / Markéta Irglová (Magnús Eiríksson)
    Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson og reiðmenn vindanna (erlent lag, texti Hjördís Morthens)
    Maria Elena / Cesaria Evora (Lorenzo Barcelata)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Glóð fyrir Konukot, skjánotkun barna og Stefaníu Thors í Heilsuvaktinni
    Konukot er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík, þar er grunnþörfum kvenna sem þangað leita sinnt hvað varðar húsnæði, hreinlæti og mat. Halldóra R. Guðmundsdóttir, forstöðukona Konukots, kom í þáttinn ásamt Erlingi Jóhannessyni gullsmiði sem hannaði Glóð nýjan íslenskan hönnunargrip sem seldur er til styrktar Konukoti.
    Að frumkvæði umboðsmanns barna hafa verið gefin út viðmið um skjánotkun barna og ungmenna til stuðnings foreldrum við að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umgengni við tækni, tölvur og snjalltæki. Það er til dæmis ekki mælt með því að börn fái skjátíma fyrir 18. mánaða aldur. Við ræddum við Unni Örnu Jónsdóttur frá Hugarfrelsi í dag.
    Stefanía Thors leik- og kvikmyndagerðarkona var næstum því búin að sleppa boðaðri krabbameinsskimun vegna mikilla anna en gaf sér þó sem betur fer tíma til að fara. Skimunin sjálf tók stuttan tíma og hún bjóst alls ekki við að verða greind með illkynja brjóstakrabbamein sem snéri lífi hennar á hvolf. Helga Arnardóttir ræddi við hana á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum
    Helga / Magnús Kjartansson (Magnús Kjartansson)
    Heitt Toddý / Ellen Kristjáns (erlent lag, texti Friðrik Erlings)
    Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Stóra brauðtertubókin, 100. vinkillinn og Steinunn Lilja lesandi vikunnar
    Brauðtertan hefur fylgt okkur Íslendingum lengi og hún er borin á borð bæði á gleði- og sorgarstundum. Sagan segir að danska leikskáldið Ludwig Holmberg hafi kynnt til sögunnar samlokutertu í leikverki um aldamótin 1700 en það var svo í kringum 1940 sem samlokutertur, eða brauðtertur (smårgåstorta), urðu vinsælar í Svíþjóð og stuttu síðar í Finnlandi og svo hér á Íslandi var fjallað um brauðtertur í íslenskum tímaritum árið 1953. Brauðterta með rækjusalati er það sem flestir kalla hina klassísku brauðtertu en margir elska hangikjötsbrauðtertuna og enn aðrir skinkusalatsbrauðtertuna. Í dag er brauðtertugerð orðin að keppnisgrein á Íslandi. Friðrik V. Hraunfjörð og Erla Hlynsdóttir eru tvö af sex höfundum Stóru Brauðtertubókarinnar sem var að koma út og þau komu í brauðtertuspjall í þáttinn í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og þessi var sá 100. í röðinni frá honum. Guðjón Helgi fjallaði að þessu sinni um svæði sem stundum lendir í fréttum hjá okkur, borgina Karachi í Pakistan. Rætt er um fasteignaauglýsingu sem bar fyrir augu pistlahöfundar á rápi sínu um internetið, en þar eru falboðnar nokkrar lóðir við sjóinn í Karachi og auk þess var minnst á mannskætt flóð sem var á þessum slóðum fyrir fjórum árum.
    Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Steinunn Lilja Emilsdóttir verkefnastjóri á Ónæmisfræðideild Landspítalans. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið.
    Tónlist í þættinum
    Bakkelsi / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason)
    Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies)
    Afturábak / Moses Hightower (Magnús Trygvason Eliassen, Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson, texti Andri Ólafsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Hilmir Snær föstudagsgestur og færeyskt matarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Hilmir Snær Guðnason. Hann hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum og hann byrjaði að leikstýra í leikhúsum ungur að aldri. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í miðbænum og vesturbænum. Við röktum ættir hans í báða ættliði til Vestfjarða og fórum svo með honum á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og að lokum sagði hann okkur frá leikritinu Óskaland sem hann var að leikstýra á stóra sviði Borgarleikhússins.
    Það var færeyskt matarspjall í þættinum í dag, Sigurlaug Margrét kom með færeyska matreiðslubók, en hún smakkaði í fyrsta skipti færeyskar grindarbollur í síðustu viku sem vöktu áhuga hennar á færeyskri matargerð. Hún er að ýmsu leyti lík þeirri íslensku en líka að ýmsu leyti ólík.
    Tónlist í þættinum
    Óskaland / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)
    Budapest / George Ezra (Joel Pott & George Ezra Barnett)
    Texas Hold'em / Beyoncé (Atia "Ink" Boggs, Beyoncé, Brian Bates, Elizabeth Lowell Boland, Megan Bülow, Nate Ferraro & Raphael Saadiq)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról
    Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls.
    Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða.
    Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum.
    Tónlist í þættinum
    Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)
    Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri
    Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum.
    Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu.
    Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna.
    Tónlist í þættinum
    Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik)
    Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart)
    Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson)
    Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • TRE spennulosun, lömunarveiki og veðurspjallið
    TRE (Tension, Stress & Trauma Release) er ný leið sem ætlað er að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra þannig að losni um vöðvaspennu og taugakerfið róist. TRE getur einnig verið hjálpleg leið til að losa um daglega streitu og spennu vegna langvarandi álags, veikinda eða áfalla. Svava Brooks Svanhildardóttir kom í þáttinn og fræddi okkur um TRE.
    Þann 24. október á hverju ári er Alþjóðadagur Polio, eða lömunarveiki. Lömunarveiki er mjög smitandi veirusjúkdómur, sem getur leitt til lömunar og dauða. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýsti því yfir árið 1988, að stefna yrði að útrýmingu lömunarveiki í heiminum. Síðan þá hefur smitum lömunarveiki fækkað um 99% á heimsvísu og 3 milljarðar barna hafa verið bólusett. Enn hefur þó ekki tekist að uppræta þessa veiru að fullu og til dæmis komu nýlega upp tilfelli á Gaza þar sem ekki hefur náðst að klára bólusetningu barna vegna árása Ísraelshers. Jón Karl Ólafsson, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, kom í þáttinn í dag, en Rótarýhreyfingin hefur unnið að útrýmingu lömunarveiki ásamt Aþjóðaheilbrigðisstofnuninni og fleiri samstarfsaðilum.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það stefnir í að október verði þriðji kaldi mánuðinn í röð hér á landi. Langtímahorfur inn í nóvember hafa breyst síðustu daga og útlit er fyrir talsverðar breytingar í veðri frá og með helginni. Svo hélt Einar áfram að fræða okkur um veðurstöðvar landsins, en í dag sagði hann okkur frá eldri veðurstöðvum í vitum landsins, einkum Galtavita og Hornbjargsvita. Um miðja síðustu öld gegndu nærri 10 vitaverðir einnig starfi veðurathugnarmanna. Og að lokum sagði Einar okkur frá mikilvægi veðurskeyta fyrir fiskveiðar og alþjóðasiglingar við landið.
    Tónlistin í þættinum
    Í rökkurró (Manstu ekki vinur) / Helena Eyjólfsdóttir (B. Rau, A. Nevins, Morton Nevins, texti Jón Sigurðsson)
    Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
    Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)
    En elsker i Berlin / Kari Bremnes (Kari Bremnes)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Senjóríturnar, vinkill og Jens Pétur lesandi vikunnar
    Kór eldri kvenna, Senjóríturnar, varð til sem afsprengi út frá Kvennakór Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og Senjóríturnar voru síðan formlega stofnaðar 2015. Þær hafa reglulega haldið tónleika, tekið þátt í kóramótum og farið í söngferðalög.
    Það er mikill metnaður í starfi Senjórítanna og á undanförnum árum hafa þær leitað í smiðju þekktra söngvara. Meðal þeirra sem hafa sungið með kórnum eru Raggi Bjarna heitinn, Bragi Valdimar Skúlason í Baggalúti og Bubbi Morthens. Kórinn lagði af stað í enn eina kórferðina fyrir helgi og þær eru komnar til Norður-Írlands á kóramót. Við hittum þær á lokaæfingunni hér heima í Digraneskirkju og það var mikil stemmning og tilhlökkun í hópnum. Rætt var við Unni Ragnars, Ragnheiði Sigurðardóttur, Hildi Bjarnadóttur, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, Silju Aðalsteinsdóttur, Ágota Joó og Vilberg Viggósson.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fjallaði að þessu sinni um breytingar á högum fólks þegar nútíminn ríður í hlað, við fengum tilvitnun frá rithöfundinum Helga Valtýssyni og rætt var um neftóbaksfræði sem svo eru kölluð; eða þjóðlegan fróðleik og reyndum að átta okkur aðeins á hvað hugtakið felur í sér.
    Og að lokum var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Jens Pétur Kjærnested, íslenskufræðingur og íslenskukennari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jens Pétur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    The Empusium (A Health Resort Horror Story) e. Olgu Tokarczuk
    Grief is the Thing with Feathers e. Max Porter
    Os Meses os Dias, Um a Um. (Mánuður, Dagar, hver á eftir öðrum) e. Eugénio de Andrade
    Undir Eplatrénu e. Olav H. Hauge
    Skýin eru skuggar e. Jon Fosse
    Gleðileikurinn guðdómlegi e. Dante Alighieri og ævisögu Dante sem heitir Dante: a Life e. Alessandro Barbero
    Dantes Bone´s e. Gay Raffa
    þýðingar (og endurútgáfur) Guðbergs Bergssonar á bókmenntum spænskumælandi landa
    Ingibjörg Haralds og þýðingar hennar úr rússnesku
    Friðrik Rafnsson og Milan Kundera
    Pétur Gunnars og Madame Bovary
    Mánasteinn e. Sjón
    Tónlistin í þættinum
    Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander og Geoff Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Orðin mín / Senjóríturnar (Bragi Valdimar Skúlason)
    I’m a Believer / The Monkees (Neil Diamond)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Helgi Björnsson föstudagsgestur og vetrarmatur
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson. Hann heldur þessa dagana upp á fjörutíu ár í tónlistarbransanum með tónleikum þar sem hann fer yfir vinsælustu lögin á farsælum ferli, í hljómsveitunum Grafík og Síðan skein sól og á mörgum hljómplötum í eigin nafni. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, en hann er fæddur og uppalinn á Ísafirði, flutti svo suður, lærði leiklist og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. 40 ár af Helga Björns í þættinum í dag.
    Á morgun er fyrsti vetrardagur og í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti fórum við yfir það sem hún kallar vetrarmat. Gúllas, kássur og fleira í matarspjallinu í dag.
    Tónlistin í þættinum
    Tangó / Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson)
    Mér var svo kalt / Síðan skein sól (Helgi Björnsson)
    Himnasmiðurinn / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Þormóður Eiríksson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners