Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú
    Við leitumst við að stunda líkamsrækt og hreyfingu til að halda líkamanum við, halda vöðvunum við, en skynfærin geta gleymst. Við fræddumst í dag um skynjun og skynfærin okkar. Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi, stendur fyrir námskeiðinu Skynjun og skynörvun - leiðir að betri líðan notenda öldrunarþjónustu þar sem hún kennir leiðir til að halda skynfærunum við. Berglind fjallar um leiðir til þess að flétta örvun fyrir skynfærin inn í daglegar athafnir. Berglind var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það hvernig við getum örvað skynjun okkar og skynfærin.
    Georg Lúðvíksson er sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi Meniga sem sérhæfir sig í persónulegum fjármálum. Georg hefur haldið ógrynni námskeiða um mikilvægi þess að hafa fjármálin á hreinu og fjallað um heimilisbókhald, hvernig hægt er að halda eyðslunni í skefjum, borgað niður skuldir, hvernig lán á að taka osfrv. Við heyrðum í Georgi í dag, þegar heimilisbókhaldið hefur sjaldan skipt meira máli, enda hefur allt hækkað og vextir eru háir.
    Þegar Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú (1771-1856) var borin til grafar voru þau orð látin falla að hún hefði verið í „öllu tilliti merkiskona“. Hún safnaði miklum auði, stóð í viðskiptum og var ein ríkasta kona Íslands á sínum tíma. Halldóra Kristinsdóttir starfar sem sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns sagði okkur nánar frá lífshlaupi Valgerðar í þættinum.
    Tónlistin í þættinum
    Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens)
    Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Let’s keep dancing / Emilíana Torrini (Emillíana Torrini og Simon Byrt)
    Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum, Nýrnafélagið og póstkort
    Á föstudaginn fer fram málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands um hættuna á misnotkun gervigreindar og tækninýjuna til að brjóta kynferðislega á börnum. Með nýrri tækni blasir við nýr veruleiki sem vekur upp spurningar um það hvernig sé rétt að bregðast við. Sérfræðingar munu tala á málþinginu um það hvernig gervigreind og önnur stafræn tækni er misnotuð til að brjóta á börnum, hverjar birtingamyndir brotanna eru, hvernig tekist er á við slíkt og til hvaða forvarnaraðgerða er gripið. Páll Magnússon, sem starfar hjá fastanefnd Íslands í Genf og stýrir málþinginu, kom í þáttinn ásamt Regínu Jensdóttur, sérfræðingi í mannréttindum barna í Evrópu, en hún heldur erindi á þinginu.
    Við fræddumst um starfssemi Nýrnafélagsins í dag en markmið þess er meðal annars að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra og að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál sem þeim fylgja. Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir formaður Nýrnafélagsins kom í þáttinn.
    Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og pólitíkin var til umfjöllunar í upphafi póstkortsins. Magnús sagði frá pólitík sem hann upplifði í ýmsum Evrópulöndum þar sem hann hefur búið. Í seinni hlutanum sagði hann frá athygliverðum rannsóknum bandarísks sagnfræðiprófessors sem hefur rannsakað svefnvenjur fólks á miðöldum. Hann komst að því að fyrir iðnbyltinguna svaf fólk svokölluðum tvífasa svefni. Það þýðir að það vaknaði eftir um það bil þriggja tíma svefn, vakti í tvo tíma og svaf svo aftur í þrjá til fjóra tíma.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Fyrir þig / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson)
    Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Verkjasjúklingar, iðjuþjálfar og háþrýstimeðferð
    Við fræddumst í dag um verkjasjúklinga, sem sagt þegar fólk glímir við langvinnandi verki og stoðkerfisvanda, en um 20% þjóðarinnar býr við hamlandi verki að einhverju leiti. Hrefna Óskarsdóttir er sviðstjóri iðjuþjálfunar á verkjasviði Reykjalundar, auk þess að kenna við Háskólann á Akureyri, hún kom í þáttinn og sagði sína eigin reynslusögu. En hún hefur glímt sjálf við verki og þar sem hún er einmitt sjálf iðjuþjálfi á verkjasviði þá mætti ætla að hún hefði nægilegar upplýsingar og skilning og verkfæri til að takast á við verkina, en staðreyndin var sú að því duglegri sem hún var í því að gera það sem var „rétt“ samkvæmt verkjafræðunum, því verkjaðri varð hún. Þá voru góð ráð dýr. Hrefna sagði okkur sína sögu í þættinum og vonast eftir að umræðan komi meira upp á yfirborðið í framhaldi.
    Heilbrigðismál voru í brennidepli hjá okkur á þessum þriðjudegi. Iðjuþjálfar er mikilvægt heilbrigðisstarfsfólk og næsti sunnudagur er dagur iðjuþjálfunar. Í Ljósinu starfa 13 iðjuþjálfar sem í þverfaglegum teymum sérsníða endurhæfingu og stuðning við yfir 600 krabbameinsgreinda í mánuði og öll þessi vika er tileinkuð iðjuþjálfun í Ljósinu. Guðrún Friðriksdóttir og Kolbrún Halla Guðjónsdóttir frá Ljósinu komu í þáttinn, en þær eru nýkomnar af fyrstu sameinaða Evrópuráðstefna iðjuþjálfara.
    Svokölluð háþrýstimeðferð sem fer fram á Landspítalanum hefur hjálpað um 60 langtíma covid sjúklingum að ná bata eftir erfið eftirköst sjúkdómsins á borð við heilaþoku, síþreytu og viðvarandi flensu einkenni. Sumir þeirra hafa jafnvel ekki haft orku svo mánuðum skiptir til að sinna börnum og einföldum húsverkum án þess að örmagnast og hafa þurft að vera frá vinnu vegna veikinda og orkuleysis. Erlendar rannsóknir sýna að háþrýstimeðferð, sem gengur út á súrefnisinntöku í háþrýstiklefa í 90 mín á dag, hjálpar frumum að endurnýja ónýta og bólgna vefi, t.d. af völdum covid, og gerir það að verkum að heilaþoka minnkar og orka fólks eykst. Dæmi eru um að fólk sem var hætt að geta synt stuttar vegalengdir, hreyft sig eða bara leyst Sudoku er farið að geta sinnt því aftur eftir meðferð. Enn aðrir eru farnir að vinna aftur, stunda nám á ný og geta lifað eðlilegu lífi. Helga Arnardóttir hitti tvo starfsmenn háþrýstiklefans á Landspitalanum, Nönnu Ólafsdóttur hjúkrunarfræðing, sem hefur starfað þar lengi, og ítalska háþrýsti-og köfunarlækninn Leonardo Sturlu Giampaoli.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson)
    Nantes / Beirut (Zach Conlon)
    Augun þín blá / Óðinn Valdimarsson og Hljómsveit Finns Eydal (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Barnakvikmyndahátíð, vinkill um fráveitu og Stefán Halldórsson lesandinn
    Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður barna og unglinga. Þarna verða sýndar alþjóðlegar verðlaunamyndir fyrir alla fjölskylduna og opnunarmynd hátíðarinnar í ár er ævintýra og fantasíumyndin Flow, sem vann dómnefndar og áhorfendaverðlaun á Annecy teiknimynda hátíðinni í ár. Myndin er án tals og hefur verið kölluð ein byltingarkenndasta teiknimyndin síðan Bambi kom út. Lísa Björg Attensperger, stjórnandi hátíðarinnar og Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradís komu í þáttinn.
    Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjallaði að þessu sinni um fráveitumannvirki, sem eru pistlahöfundi hugleikin nú í þíðunni, hann velti fyrir sér ýmsum tæknihugtökum og bregðum á leik með samanburði á slíkum fyrirbærum milli þjóða sem hafa marga eða fáa íbúa á ferkílómeter. Að lokum kom svolítil tilvitnun í Innansveitarkróníku Halldórs Laxness.
    Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Stefán Halldórsson, félagsfræðingur, rekstrarhagfræðingur og ættfræðigrúskari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Stefán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi, e.
    Þú ringlaði karlmaður – tilraun til kerfisuppfærslu e.
    Bernskubók e. Sigurð Pálsson
    Það liðna er ekki draumur e.Theodor Kallifatides
    Staðurinn e. Annie Ernaux
    Veröld sem var e. Stefan Zweig
    Söknuður e. Matthías Johannessen
    Þríleikurinn Gangvirkið (1955), Seiður og hélog (1977), Drekar og smáfuglar (1983) e. Ólaf Jóhann Sigurðsson
    Tónlist í þættinum í dag:
    Stundum / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Karl Teague)
    Grýla / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson, texti Pétur Gunnarsson)
    Oh Happy Day / Edwin Hawkins Singers (Edwin Hawkins)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Örn Árnason og Sigrún Hjálmtýsdóttir föstudagsgestir og matarspjallið
    Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru þau Örn Árnason og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú. Þau þarf auðvitað vart að kynna. Tómas og við heitir söngdagskrá og ljóðalestur þar sem þau flytja lög með textum eftir Tómas Guðmundsson og ljóð eftir hann fimmtudaginn 31.okt. í Salnum í Kópavogi. Við ræddum við þau um Tómas og sín tengsl við ljóðin hans. Þau bæði lærðu ljóð eftir hann snemma á ævinni og Örn á í fórum sínum óútgefnar vísur sem faðir hans lærði utan að og kenndi honum.
    Í matarspjalli dagsins héldum við áfram að fletta í gegnum matreiðslubækur, gamlar og aðeins nýrri og að þessu sinni töluðum við um kjúkling í hvítvíni og svo skoðuðum við bók sem heitir Alice´s Tea Cup, bók sem keypt var í samnefndu kaffihúsi í New York. Systurnar Haley og Lauren Fox ólust upp við tedrykkju og góðan bakstur og lærðu að þekkja flestar tegundir tes og stofnuðu þetta kaffihús árið 2001.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hótel Jörð / Heimir, Jónas og Vilborg (Heimir Sindrason, texti Tómas Guðmundsson)
    Tondeleyo / Sigfús Halldórsson (Sigfús Halldórsson, texti Tómas Guðmundsson)
    Dagný / Sigrún Hjálmtýsdóttir og Terem Quartet (Sigfús Halldórsson, texti Tómas Guðmundsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Húmor virkar og staða íslenskrar tungu
    Húmor virkar er heiti á fyrirlestri sem farið hefur víðreist um landið og þar er stuðst við meðal annras við niðurstöður viðamikilla rannsókna á virkni húmors á heilsu, sem er umtalsverð, og sem árangursaukandi afl í atvinnulífinu og lífinu almennt. Sveinn Waage er höfundur og flytjandi þessa fyrirlesturs en hann hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri, fyrirlesari og uppistandari. Sveinn fékk beiðni frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021 að setja saman námskeið um virkni húmors sem svo þróaðist seinna yfir í samnefndan fyrirlestur. Sveinn kom í þáttinn í dag.
    Íslensk málnefnd stendur fyrir afmælismálþingi í dag í tilefni af sextugsafmæli nefndarinnar undir yfirskriftinni Í þjónustu tungunnar. Þar verða flutt nokkur erindi þar sem verða meðal annars farið yfir hugleiðingar um stöðu íslenskrar tungu. Jóhannes B. Sigtryggsson, rannsóknardósent við Árnastofnun og er í stjórn Íslenskrar málnefndar, kom í þáttinn og sagði okkur frá störfum málnefndarinnar og fór með okkur yfir stöðu íslenskrar tungu og framtíð hennar.
    Tónlist í þættinum:
    Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    Heimförin / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    Undir stórasteini / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð
    Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá sögu hins fornfræga björgunarskips Vestfirðinga, Maríu Júlía BA 36, sem kom var safnað fyrir og að lokum smiðað í Danmörku. Skipið kom til Íslands árið 1950 og nýttist á fjölbreyttan hátt næstu áratugina, til dæmis er talið að áhafnir skipsins hafi bjargað um tvö þúsund manns og í skipinu var sérútbúin rannsóknarstofa fyrir fiskifræðinga og fyrir sjómælingar. Skipið var því fyrsti vísir að hafrannsóknarskipi á Íslandi. Í dag er skipið komið til hafnar á Húsavík en ætlunin er að gera það upp enda er skipið nú friðað með lögum. Björn sagði okkur merkilega sögu Maríu Júlíu í þættinum.
    Á laugardaginn fer fram málþing um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð. Hugmyndafræði og ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem er nú í lögfestingarferli á Íslandi, nýtast sem grunnviðmið til að meta bæði áhættu og tækifæri sem skapast með aukinni notkun gervigreindar og starfrænnar tækni. Í grundvallaratriðum er samningnum ætlað að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og jafnræði á öllum sviðum. Heimsmarkmið SÞ eru sett fram með það að meginmarkmiði að skilja engan eftir og í þeim felst hugsjón um að búa til samfélag þar sem allir, þar á meðal fatlað fólk, njóti jafnra tækifæra og jafnréttis á öllum sviðum. Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi Mennskrar ráðgjafar komu í þáttinn og sögðu okkur frá því um hvað verður rætt á þinginu og hvað ber helst að hafa í huga í þessum málum svo að tæknivædd framtíð og gervigreind geti nýst öllum.
    Tónlist í þættinum:
    Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson)
    Farmaður hugsar heim / Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms (lagið eftir Þórunni Franz og textinn eftir séra Árelíus Níelsson)
    One of these things first / Nick Drake (Nick Drake)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Norðurhjálp, Snorri golfvallahönnuður og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss
    Norðurhjálp tekur við og selur allskyns notaðar vörur; fatnað, heimilisbúnað, húsgögn, bækur, smádót, listaverk og margt fleira. Allur ágóði fer í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu sem ekki hafa mikið á milli handanna. Fjórar konur sem hafa starfað lengi við sjálfboðavinnu tóku höndum saman og vinna nú 6 daga vikunnar við að taka á móti vörum og við afgreiðslu. Við heimsóttum Norðurhjálp í rúmlega 400 fm. skemmu sem þær leigja undir starfsemina rétt hjá Glerártorgi. Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir tók á móti okkur.
    Svo heyrðum við í Snorra Vilhjálmssyni í Austurríki, en hann starfar þar við golfvallahönnun hjá fyrirtæki sem kennt er við einn frægasta kylfing heims. Snorri lærði golfvallahönnun í Skotlandi og vinnur nú að hönnun og byggingu glæsilegra golfvalla um nánast allan heim. Það er ekki víst að margir viti hvað felst í starfi golfvallahönnuðar. Við fengum Snorra til að segja okkur í dag.
    Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn sagði hann okkur frá kaldri tungu sjávar undan Vestfjörðum og Húnaflóa um þessar mundir og hvernig hún mótar hitafarið. Svo talaði Einar um veðurstöðina Grímsstaði á Fjöllum. Þar er ríkir hálfgert meginlandsloftslag og hann ætlar að skoða kuldana undanfarna daga einmitt þar. Og að lokum veltum við því fyrir okkur hvort fellibyljatímanum á Atlantshafi sé lokið.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Pínulítið lengur / Stefán Hilmarsson (D. Gates, texti Stefán Hilmarsson)
    Litli tónlistarmaðurinn / Elly Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson eða Tólfti September)
    Build Me Up Buttercup / The Foundation (A. G. Instone, M. D'Abo og T. Macaulay)
    Veðurglöggur / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Vegur að heiman, vinkill um kefír og Halldór Armand lesandi vikunnar
    Í kvöld verður fyrsti þátturinn á dagskrá sjónvarps í þáttaröðinni Vegur að heiman. Þetta eru þættir þar sem skoðað er, af hverju fólk flytur, í gegnum 24 sögur í sex þáttum. Þá erum við ekki að tala um að flytja úr einu húsi í annað heldur þegar fólk skiptir um félagslegt umhverfi, s.s. búferlaflutningar, eins og á milli landa og landshorna. Í hverjum þætti er ein saga skoðuð tvisvar, fyrir og eftir flutning. Þá er líka talað við nokkra sérfræðinga og fjölda fólks í örviðtölum í hverjum þætti. Halla Ólafsdóttir er umsjónarmaður þáttana og hún kom í þáttinn í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn fjallaði hann um afleiðingar breytinga á fjölskyldumynstri, en líka um fyrirbærið kefír, en samkvæmt pistlahöfundi er þar um að ræða bragðgóðan mjólkurdrykk, sem mannkynið hefur notið í 3700 ár, ef eitthvað er að marka fornleifafræðina. Ævintýraleg saga af kefíráhuga Blandov bræðranna rússnesku og samstarfskonu þeirra, Irinu Sakharovu, rak síðan lestina í vinkli dagsins.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur, en bókin hans Mikilvægt rusl er nýútkomin. En við fengum auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Halldór talaði um eftirfarandi bækur:
    Lessons in Chemistry e. Bonnie Garmus
    Keisararnir 12 e. Súetóníus
    Truflunin e. Steinar Braga
    Broken Money e. Lyn Alden
    Andrés blöðin, Lukku Láki og Tinni
    Góði dátinn Sveijk e. Hasek
    og svo rithöfundurinn Don DeLillo
    Tónlist í þættinum:
    Við höfum það gott / B.G. og Ingibjörg (Baldur Geirmundsson og Ingibjörg G. Guðmundsdóttir)
    Vegurinn heim / Markéta Irglová (Magnús Eiríksson) Sérstaklega gert fyrir þættina hennar Höllu Ólafsdóttur.
    Three Little Birds / Bob Marley (Bob Marley)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Lára Zulima Ómarsdóttir föstudagsgestur og ítalskir brauðréttir
    Föstudagsgesturinn okkar í dag kom úr heimi fjölmiðlana og er manneskja sem hefur bæði unnið í útvarpi og sjónvarpi. Lára Ómarsdóttir, sem lét breyta nafninu sínu fyrir stuttu síðan í Lára Zulima Ómarsdóttir, en móðuramma hennar hét einni Lára Zulima. Lára hefur starfað sem fréttamaður og unnið við margskonar dagskrárgerð, hún hefur meðal annars gert þætti um náttúru Íslands í ferðaþáttum með föður sínum, Ómari Ragnarssyni. Lára rifjaði upp æskuna í Háaleitinu og ÁLftamýraskóla, Kerlingafjöll og tilraunir í tískumálum. Undanfarið hefur hún unnið í almannatengslum og hún hefur svo meðal annars unnið að heimildamynd um gler- og myndlistarkonuna Höllu Har og verður sú mynd sýnd í bíó Paradís fljótlega.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað. Við höfum verið að skoða matreiðslubækur undanfarið og héldum því áfram í dag. Sigurlaug kom með ítalska bók sem fjallar að mestu um brauð, brúskettur og ítalska brauðrétti.
    Tónlist í þættinum:
    Yakkety yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason)
    Fjalaköttur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Hrafn Gunnlaugsson)
    Ég vild’ég væri / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Ragnhildur Gísladóttir)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    56 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners