Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Stundin okkar tekur á loft, Downs heilkennið og Grófin og Lausa skrúfan
    Stundin okkar er elsti sjónvarpsþáttur landsins en fyrsti þátturinn var sendur út árið 1966. 26 umsjónarmenn hafa séð um þáttinn frá upphafi og 116 þáttaraðir hafa verið sýndar. Nú er komið að nýrri þáttarröð og nýjum manneskjum í brúnni og í þetta sinn verður tekið á loft, bókstaflega, því þáttaröðin er tekin upp í nýju sýndarmyndveri RÚV Andrés P. Þorvaldsson Laskowski, sem leikur aðalhlutverkið Loft, og Erla Hrund Halldórsdóttir hugmyndasmiður, leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi, komu í þáttinn í dag.
    Nýlega var haldið málþing um fóstur- og nýburaskimanir þar sem ræddar voru meðal annars siðfræðileg álitamál við fóstur- og nýburaskimanir, álitamál um tækni, samfélag og félagslegt réttlæti, reynsla af ráðgjöf og þjónustu við foreldra hjá Fósturgreiningardeildinni og fleira. Við fengum Guðmund Ármann Pétursson, formann Félags áhugafólks um Downs heilkennið, til að koma og segja okkur frá erindi sínu á málþinginu sem kallaðist Downs heilkennið í nútíð og framtíð.
    Grófin geðrækt á Akureyri er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum bataferlisins sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli. Grófin er eina opna geðræktin á Norðurlandi og þar er vettvangur fyrir öll þau sem vilja vinna að geðrækt á jafningjagrunni, hvort sem þau eru notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur eða og áhugafólk um framfarir í geðheilbrigðismálum. Verkefnið Lausa skrúfan er valdeflandi nýsköpunarverkefni sem unnið er af notendum Grófarinnar og við fræddumst um það og Grófina þegar Sigurður Gísli Gunnlaugsson, hugmyndasmiður Lausu skrúfunnar og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar og iðjuþjálfi, komu í þáttinn.
    Tónlist í þættinum:
    Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson)
    Kvöldsigling / Ólafur Þórarinsson (Gísli Helgason og Jón Sigurðsson)
    Sigling / Andrea Gylfadóttir (Friðrik Bjarnason og Örn Arnarson)
    Sigling / Ásgeir Óskarsson (Ásgeir Óskarsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Málþing um dánaraðstoð, Gigtarfélag Íslands og póstkort frá Möltu
    Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð, stendur fyrir málþingi í næstu viku undir yfirskriftinni: Dánaraðstoð - reynsla annarra landa. Á málþinginu munu fulltrúar, Sviss, Hollands og Kanada, landa sem hafa lögleitt dánaraðstoð deila reynslu sinni. Bjarni Jónsson, stofnandi, gjaldkeri og stjórnarmaður í félaginu kom í þáttinn og sagði okkur frá málþinginu og stöðu mála í þessum málaflokki hér á landi.
    Gigtarsjúkdómar hafa áhrif á um fjórðung Íslendinga á lífsleiðinni. Margir þjást í hljóði þar sem sjúkdómurinn getur verið ósýnilegur almenningi. Um 200 mismunandi gigtarsjúkdómar eru þekktir, þar á meðal sumir sem geta verið lífshættulegir. Þrátt fyrir algengi og alvarleika sjúkdómana hefur stuðningur oft verið ófullnægjandi innan heilbrigðiskerfisins. Hér gegnir Gigtarfélag Íslands lykilhlutverki en félagið á einmitt afmæli í dag 9. október. Opið hús verður í nýju húsnæði Gigtarfélags Íslands, í Brekkuhúsum 1, og nýjungar í þjónustu verða kynntar í tilefni af alþjóðlega gigtardeginum 12. október. Hrönn Stefánsdóttir varaformaður Gigtarfélagsins kom í þáttinn og sagði okkur meðal annars sýna sögu, en hún greindist með lupus eftir langa og erfiða vegferð.
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Eyjan Malta er í Miðjarðarhafinu milli Sikileyjar og Túnis. Magnús er nýkominn frá Möltu og varð hrifinn af landi og þjóð. Hann segir frá umsátrinu mikla árið 1565, hann sagði frá höfuðborginni og þjóðlagahátíð þar sem hann marseraði með sikileyskri lúðrasveit. Undir lokin talaði hann aðeins um síma sem eru minnst notaðir sem símar.
    Tónlist í þættinum:
    Láttu þér líða vel / Stjórnin (Grétar Örvarsson, texti Aðalsteinn Ásberg)
    Hvernig líður þér í dag / Stefán Hilmarsson (Rafn Jónsson)
    Serendipity / Laufey (Laufey og Spencer Stewart)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • ADHD málþingið Konur - vitund og valdefling og Sigríður Pétursdóttir á Heilsuvaktinni
    Málþing ADHD samtakanna, Konur - vitund og valdefling, verður haldið á föstudaginn. Markmið þingsins verður að fjalla um ADHD út frá styrkleikum, sjálfsmildi og sigrum. Þar verða fjöldi fyrirlestra um efni sem spurt hefur verið eftir meðal kvenna með ADHD. Við fengum Elínu H. Hinriksdóttur, sérfræðing hjá ADHD Samtökunum, til að segja okkur frá því hver efni fyrirlestranna er og Kristín Þórsdóttir, kynlífsmarkþjálfi kom með henni, en hún verður með fyrirlestur um kynlíf, hvatvísi og heilarugl og hún sagði okkur frá honum og einnig sinni reynslu en hún greindis með ADHD fyrir aðeins tveimur árum í kjölfar þess að dóttir hennar fór í gegnum greiningu.
    Svo var það heilsuvaktin, sem er komin úr sumarfríi. Helga Arnardóttir talaði í dag við Sigríði Pétursdóttur kvikmyndafræðing, sem þurfti að gera upp við sig hvort hún vildi verða verkjuð til langs tíma og rúmliggjandi vegna liðagigtar og óþols við lyfjagjöf eða umbylta sínu mataræði og lífstíl. Hún valdi seinni kostinn og hefur verið lyfjalaus í fimm ár og aldrei liðið betur. Hún tók út öll gjörunnin matvæli, sykur og gervisykur, mjólkurvörur og hveiti og eldar allt frá grunni. Þótt það sé flókið á köflum þá segir hún það allt á sig leggjandi til að vera verkjalaus og geta stundað daglegt líf. Við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Borgin / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson)
    Two of Us / The Beatles (Lennon & McCartney)
    Frostrósir / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Freymóður Jóhannsson, eða 12.september)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Ertu klár í kynlífið? Vinkill dagsins og Aníta Rut lesandi vikunnar
    Handbókin Ertu klár í kynlífið? var nýlega gefin út á vegum Samtaka um kynheilbrigði. Handbókin er ætluð ungum karlmönnum á aldrinum 16-24 ára. Tilurð þessarar handbókar má rekja til frásagna ungra karlmanna hér á landi en hún svarar ákalli þeirra eftir meiri fræðslu um kynheilbrigði. Bókin fjallar um sex viðfangsefni, sjálfsöryggi, samskipti, samþykki, sambönd, smokkanotkun og það að stunda kynlíf. Tvær af höfundum bókarinnar, Lóa Guðrún Gísladóttir, aðjúkt og doktorsnemi, og Sóley S. Bender, formaður samtaka um kynheilbrigði og prófessor emerita, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá henni.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fór aðeins á dýpið í dag, pistlahöfundur fékk það verkefni fyrir nokkru að rifja upp minningar úr bernsku sem var áhugaverð lífsreynsla og kannski mannbætandi. Tilgangurinn var að afla efnis fyrir listamanninn Ólaf Svein Gíslason, sem nú um stundir sýnir verkið „Undirliggjandi minni“ í Félagslundi, Flóahreppi. Eftir svona mikla naflaskoðun var svo notalegt að fá nokkrar vísur og skáldkonan Erla, Guðfinna Þorsteinsdóttir, fylgdi okkur inn í daginn.
    Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Aníta Rut Kristjánsdóttir, læknir í sérnámsgrunni. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Aníta Rut talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Lady Tan's Circle of Women e. Lisa See
    The Wolf Den e. Elodie Harper
    Snerting e. Ólaf Jóhann Ólafsson
    Out e. Natsuo Kirino
    Percy Jackson sería e. Rick Riordan
    og Howl's Moving Castle e. Dianna Wynne Jones.
    Tónlist í þættinum:
    Glaðasti hundur í heimi / Friðrik Dór Jónsson, Dr. Gunni og vinir hans (Gunnar Lárus Hjálmarsson)
    Að vera í sambandi / Stuðmenn ( Tómas M. Tómasson, Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon)
    Manstu ekki eftir mér / Ragnhildur Gísladóttir og Trabant ehf. (Ragnhildur Gísladóttir, texti Þórður Árnason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Föstudagsgesturinn Pálmi Gestsson og Stóra matreiðslubókin
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Pálmi Gestsson, nýorðinn 67 ára. Hann þarf auðvitað vart að kynna eftir öll árin í Spaugstofunni, ótal hlutverk á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Nú síðast leikur hann í nýju leikriti, Sýslumaður dauðans í Borgarleikhúsinu, þar sem hann leikur föður sem deyr og sonur hans þarf að leysa þrjár þrautir til að heimta föður sinn aftur af biðstofu sýslumanns dauðans. En við fórum auðvitað með Pálma aftur í tímann á æskuslóðirnar fyrir vestan, í Bolungarvík, en þegar hann fór suður til Reykjavíkur í leiklistarnám um tvítugt þá var það aðeins í annað skiptiði sem hann var að koma til höfuðborgarinnar. Í skemmtilegu spjalli fórum við með Pálma á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag þar sem til dæmis hæfileikar hans í eftirhermum fengu talsvert pláss..
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Nú var komið að Gunnari að koma með matreiðslubók og deila því sem í henni er með hlustendum. Þessi bók sem hann kom með er engin smá smíði, Stóra matarbókin, sem er er líklega hátt í tíu kíló að þyngd, full af ljósmyndum, uppskriftum og fróðleik.
    Tónlist í þættinum:
    Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    The Longest Time / Billy Joel (Billy Joel)
    Can’t Keep it In / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Málþing ungra sagnfræðinga, Bleika slaufan og breytingaskeiðið
    Næstkomandi laugardag heldur Félag um átjándu aldar fræði málþing undir yfirskriftinni Rannsóknir ungra sagnfræðinga á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld. Þór Martinsson, sagnfræðingur og kynningarfulltrúi Reykjavíkur Akademíunnar, er fundarstjóri á málþinginu, hann kom í þáttinn í dag ásamt Kolbeini Sturlu G. Heiðusyni sagnfræðingi, en hann heldur erindi á málþinginu um eigur vinnuhjúa í Skagafirði um miðja nítjándu öld.
    Í ár er 25 ára afmæli Bleiku slaufunnar fagnað. Slagorðið í ár er „Þú breytir öllu“ og er sjónum beint að aðstandendum og þeim þakkað, þeim sem hvorki búast við né ætlast til að fá þakkir, fólkinu sem er svo mikilvægt en á það til það að gleymast. Athyglinni er beint að aðstæðum þeirra, því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í alvarlegum veikindum en líka þeim áhrifum sem veikindi ástvinar hafa óhjákvæmilega á líf þeirra. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu kom til okkar.
    Breytingaskeiðið er miklu meira en „bara“ hitakóf. Þetta tímabíl í lífi okkar kvenna, er langt og margar konur eru með margþætt og óþægileg einkenni eins og svefntruflanir, streitu, heilaþoku, minnisleysi, blæðingatruflanir, liðverki, þurrk í slímhúð og þrálátar blöðrubólgur. Fleiri hundruð konur hafa sótt námskeið Þorbjargar Hafsteinsdóttur Konur, hormónar og hollusta. Þorbjörg hefur skrifað margar bækur um samspil mataræðis og heilsu og haldið ótal mörg námskeið hér heima og erlendis. Þorbjörg kom til okkar í dag sagði okkur líka frá mataræði sem gagnast við gigt og bólgum.
    Tónlist í þættinum:
    Í minni skel – Bogomil Font og Salsakommúnan (Sölvi Rögnvaldsson, texti Sæmundur Rögnvaldsson ásamt Sölva)
    Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson)
    Í gegnum hollt og hæðir / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Þórarinn Eldjárn)
    (If paradise is) Half as Nice / Amen Corner (Battisti, Fishman & Mogol)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Öndunaræfingar og kæling og Samtökin Sólskinsstundir
    Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, sjósundkappi, öndunarleiðbeinandi, „kælari“, setti Íslandsmet í ísbaði í síðustu viku með því að vera 45 mínútur og sex sekúndur á kafi í vatni við frostmark. Metið var sett á Akureyri þar sem aðstoðarmenn jusu sífellt krapi niður í baðið til hans til að halda því nógu köldu. Við fengum að vita hvernig þessi þrekraun fór fram og hvað fer í gegnum hugann á meðan. Það er nauðsynlegt að taka það fram að ekki er mælst til þess að fólk dembi sér í svona mikla kælingu án þess að gæta fyllsta öryggis en undirbúningurinn var gríðarlegur og þar skipti öndun mikilu máli og eins verður að taka það fram að Theódór endaði á bráðamóttökunni þar sem hann fékk hjálp við að ná aftur eðlilegum líkamshita og var skammaður þar fyrir, því illa hefði getað farið. Theódór stendur að námskeiðum í öndun á vegum símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt dr. Auðbjörgu Björnsdóttur sem er forstöðumaður kennlsu og upplýsingatæknisviðs H.A. Auðbjörg var í hljóðveri RÚV fyrir norðan með Guðrúnu á meðan Theódór var ásamt Gunnari fyrir sunnan.
    Svo kom Þráinn Þorvaldsson í þáttinn. Hann hefur, ásamt öðrum, verið að vinna því því að stofna Samtökin Sólskinsstundir sem veita fólki sem hefur misst maka félagslegan vettvang til þess að hittast, fá stuðning, sækja menningarviðburði, borða saman, drekka kaffi og ferðast saman innanlands eða jafnvel erlendis. Þráinn sagði okkur frá sinni reynslu, en hann missti eiginkonu sína, Elínu Guðrúnu Óskarsdóttur, fyrir níu mánuðum og hann vill með þessu búa til vettvang fyrir fólk sem hefur reynslu af makamissi að hittast, vera félagsskapur og stuðningur. Þráinn benti á netfang sitt, ef fólk hefur áhuga á því að taka þátt í stofnun samtakanna: [email protected]
    Tónlist í þættinum:
    Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi Morthens)
    Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg)
    Ljúfa langa sumar / Ragnar Bjarnason (Gunnar Þórðarsson og Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Jafningjastuðningur á geðsviðinu og monsúnvindar og sumarkuldi í veðurspjallinu
    Alþjóðleg ráðstefna um geðhvörf stendur nú yfir í Hörpu og við fjölluðum í dag um nýja nálgun á geðsviði sem er aukið samstarf á milli geðheilbrigðisstarfsfólks og jafningja með eigin reynslu af geðsjúkdómum. Nína Eck, félagsráðgjafi hjá Geðhvarfateymi Landspítala og fyrrum notandi geðheilbrigðisþónustu, kom í þáttinn, en hún hefur tekið þátt í að innleiða jafningjastuðning í Geðþjónustu Landspítalans. Með henni kom Guðmunda Arnardóttir, kennari í Bataskóla í Kaupmannahöfn og einn höfunda bókarinnar Geðhvörf fyrir byrjendur. Þær sögðu okkur meira frá jafningjastuðningnum og til dæmis því sem kallað er bjargráð.
    Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í veðurspjallinu í dag. Í dag fjallaði hann um monsúnvinda, almennt séð en einkum þann þekktasta í Indlandi. Þeir hafa skilað miklum rigningum í sumar, til góðs fyrir uppskeru á þessu svæði þar sem um fjórðungur mannkyns býr, en líka til ills því mannskæð flóð hafa fylgt, nú síðast í Nepal. Svo talaði Einar aðeins meira um sumarhitann hér á landi, nú þegar Veðurstofusumrinu er formlega lokið. Það hefur ekki verið kaldara í Reykjavík frá árinu 1992. Svo í lokin fór Einar aðeins yfir langtímahorfurnar þar sem veðurfyrirbærið fyrirstöðuhæð kom við sögu.
    Tónlist í þættinum:
    Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison)
    Yo canto, canto por amor / Lissete Hernandez Piqueras (Egill Ólafsson og Lissete Hernandez Piqueras)
    Poor Boy / Nick Drake (Nick Drake)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Skautað á Akureyri, vinkill um rauðan sportbíl og Soffía lesandi vikunnar
    Við kíktum í heimsókn í Skautahöllina á Akureyri og fovitnuðumst um hið öfluga félagsstarf sem þar fer fram hjá Skautafélagi Akureyrar. Þar vaxa upp leikmenn sem skila sér í íshokkífélög til dæmis í Svíþjóð, Þýskalandi og Danmörku svo eitthvað sé nefnt. Við hittum framkvæmdastjórann Jón Benedikt Gíslason og tvo unga leikmenn.
    Við fengum svo í dag vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjallaði að þessu sinni um þann leiða ávana margra, að dæma ýmislegt fyrirfram eftir útliti þess, við fengum nokkur dæmi frá Guðjóni og litla dæmisögu um rauðan sportbíl sem reyndist flagð undir fögru skinni. Að lokum fengum við ljóð frá Akureyrsku skáldi sem fjallar um mannsævina fram að þrítugu.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Soffía Karlsdóttir, leikkona og söngkona. Hún mun ásamt hljómsveit, í tilefni af 40 ára útgáfuafmælis plötu Bubba Morthens, Kona, flytja hana í heild á tónleikum á tónleikum um næstu helgi, auk þekktra laga eftir Leonard Cohen. En hún sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Soffía talaði um eftirtaldar bækur og höfunda:
    Sögur úr Síðunni e. Böðvar Guðmundsson
    Ljóð Leonard Cohen
    Ljóð Káinn
    Hýbýli vindanna og Lífsins Tré e. Böðvar Guðmunds
    Fátækt fólk e. Tryggvi Emils
    Selur kemur í heimsókn e. Deitch og Hlavatý
    Sigrún fer á sjúkrahús e. Njörð P. Njarðvík
    Páll Vilhjálmsson e. Guðrún Helgadóttir
    Pollyanna e.Eleanor H. Porter
    Tónlist í þættinum:
    Haust / Elly Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Baldur Geirmundsson)
    De Smukke Unge Mennesker / Kim Larsen (Kim Larsen)
    Talað við gluggann / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Föstudagsfeðgarnir Stefán og Haraldur Ari og matarspjall frá Róm
    Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru aftur tveir, eins og í síðustu viku, en í þetta sinn eru það feðgar. Ekki nóg með það heldur leikstýrir faðirinn syninum í leikriti sem fjallar um feðga. Þetta eru þeir Stefán Jónsson, leikari og leikstjóri og Haraldur Ari Stefánsson leikari og tónlistarmaður. Við spjölluðum við þá í dag um lífið, listina og tilveruna. Við fórum með þeim aftur í tímann og fundum hvar leiklistin fór að láta á sér kræla hjá þeim hvorum fyrir sig. Og svo spjölluðum við auðvitað líka um leikritið Sýslumaður dauðans sem þeir eru að vinna saman í, en þetta er í fyrsta skipti sem þeir vinna saman á leiksviði.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað nema að þessu sinni var það í beinni útsendingu frá þeirri mögnuðu borg Róm, en þar hefur Sigurlaug dvalið undanfarna daga við að rannsaka mat og drykk. Róm er margslungin borg og maturinn magnaður. Guðrún var í beinni frá Akureyri og Gunnar var í Efstaleitinu á meðan sólargeislarnir léku um Sigurlaugu á meðan hún talaði meðal annars um spaghetti carbonara og rómveskar pizzur.
    Tónlist í þættinum:
    Snefill / Moses Hightower (Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson)
    Til þín / Haraldur Ari Stefánsson og Unnsteinn Manuel (Laurent Bourque, Ingi Þór Garðarsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson, texti Haraldur Ari Stefánsson og Unnsteinn Manuel)
    Ást / Karlakórinn Fóstbræður (Magnús Þór Sigmundsson, ljóð Sigurður Nordal)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners