Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Dagur Heyrnar, vegavinkill og Huldar lesandinn
    Yfirvöld hafa áhyggjur af sífellt óhollara hljóðumhverfi fyrir börn, í skólum, að leik og í frístundum. Ástæða er til að skoða stöðu mála og fræða börn, ungmenni, kennara og aðstandendur um mikilvægi góðrar hljóðvistar og heyrnarverndar. Í gær var alþjóðlegur dagur Heyrnar og í síðustu viku var undirritaður þríhliða samstarfssamningur um innleiðingu fjarnáms í heyrnarfræði fyrir íslenska háskólanema. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háskólinn í Örebro í Svíþjóð og Háskólinn á Akureyri hafa gert með sér samning sem gerir kleift að bjóða upp á háskólanám í heyrnarfræðum í fyrsta sinn hér á landi. Kristján Sverrisson forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar kom í þáttinn í dag.
    Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við áhugaverða vegagerð, til dæmis vegi og brýr á Skeiðarársandi og hinn stórmerkilega „Plankaveg" vestur í Kaliforníu. Guðjón minnti svo hlustendur á að fara að öllu með gát hvar sem þeir ferðast.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Huldar Breiðfjörð, rithöfundur og handritshöfundur og greinarformaður í ritlist við Háskóla Íslands. Við forvitnuðumst um hvað hann er að gera þessa dagana og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur lesið undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Huldar sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
    When We Cease to Understand the World e. Benjamin Lapatut
    Endurminningar Annie Ernaux
    GoatMan e. Thomas Thwaites
    og svo höfundunum, Þórbergi Þórðarsyni, Brett Easton Ellis og Douglas Coupland.
    Tónlist í þættinum:
    Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson-Ólafur Haukur Símonarson)
    Ég heyri svo vel / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarsson)
    In the year 2525 / Zager and Evans
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Edda Andrésdóttir föstudagsgestur og vorlaukur á Spáni
    Edda Andrésdóttir fjölmiðlakona og rithöfundur var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Fjölmiðlaferill Eddu hófst þegar hún varð blaðamaður á Vísi 1972. Eftir það ritstýrði hún meðal annars tímaritinu Hús og híbýli, vann í útvarpi og við dagskrárgerð á RÚV þar sem hún starfaði einnig sem fréttamaður og fréttalesari. Árið 1990 hóf hún störf á Stöð 2 og var í fjölbreyttum verkefnum, gert viðtals- og skemmtiþætti og verið gestgjafi Kryddsíldarinnar en fyrst og fremst var hún á skjáum landsmanna á kvöldmatartíma að segja þeim fréttir. Við áttum skemmtilegt spjall við Eddu til dæmis um hennar reynslu af því að fara til Vestmannaeyja beint í kjölfar þess að gosið hófst, þegar hún var að stíga sín fyrstu skref í blaðamennsku.
    Besti vinur bragðlaukanna Sigurlaug Margrét er stödd á Spáni í sérstakri rannsóknarferð þar sem hún kynnir sér það helsta í mat og drykk og það er árstími púrrulauks og vorlauksins, Sigurlaug sagði okkur frá því hvernig er gott að matreiða þá á á grillinu.
    Tónlist í þættinum (föstudag)
    Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ)
    Eyjan mín í bláum sæ / Árni Johnsen (Árni Johnsen)
    Time is on my side / Rolling Stones (Rolling Stones)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Tengslavandi, Heilsubrú og umhverfissálfræði
    Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, MA og nemi í fjölskylduráðgjöf kemur til okkar í dag og ætlar að fræða okkur um Tengslavandamál hjá leik- og grunnskólabörnum sem er vandi alls nærumhverfis barnsins. Mikilvægasta grunnþörf barns er að tengjast tilfinningaböndum við foreldra og fá með því þörfum sínum fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt án skilyrða. Jóhanna kom í þáttinn og fræddi okkur betur um þetta og sagði meðal annars að enginn getur tekist á við þennan vanda einn, ekki foreldrarnir einir og ekki skólinn einn.
    Við fjölluðum um Heilsubrú Heilsugæslunnar fyrir um það bil ári síðan en Heilsubrú er ný miðlæg þjónustueining hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er þjónusta sem styður og bætir við þjónustu heilsugæslustöðva og þjónustan hefur verið í mótun og ýmislegt hefur bæst við á undanförnum mánuðum sem við fræddumst um í þættinum í dag. Kvenheilsa, andlega heilsa, sykursýki og sérhæfð mæðravernd er meðal þess sem áhersla er lögð á. Sólrún Ólína Sigurðardóttir fagstjóri komi í þáttinn.
    Svo að lokum fræddumst við um áhrif umhverfis innandyra á líðan og heilsu fólks. Flestir verja stórum hluta tíma síns innandyra. Umhverfi innandyra er samspil ólíkra þátta og hefur mismunandi áhrif á fólk. Þannig hefur umhverfið heima önnur áhrif en vinnuumhverfið, það er ólík upplifun að vera í skóla eða á sjúkrahúsi, í verlun eða leikhúsi. Páll Líndal doktor í umhverfissálfræði kom í þáttinn og sagði frá.
    Tónlist í þættinum:
    Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason)
    Arietta / Dag Arnesen Trio (Edward Grieg)
    O Happy day / Edward Hawkins singers (Edwin Hawkins)
    Dont try to fool me / Jóhann G Jóhannsson(Jóhann G. Jóhannsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    51 min
  • Biðlistar barna, flugfælninámskeið og póstkort frá Magnúsi
    Salvör Nordal, Umboðsmaður barna, kom til okkar í dag. Embætti Umboðsmanns barna birti í vikunni upplýsingar um bið barna eftir þjónustu, eins og embættið hefur gert frá því í febrúar 2022, staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum með það að markmiði að varpa ljósi á stöðuna hverju sinni. Upplýsingarnar hafa verið uppfærðar á sex mánaða fresti, til að fylgjast með þróuninni. Í stuttu máli hafa niðurstöðurnar sýnt að alls staðar mæta börnin biðlistum og í langflestum tilvikum eru biðlistarnir að lengjast. Salvör fór með okkur yfir nýjustu stöðuna í þættinum.
    Flugfælni er nokkuð sem getur verið afar hamlandi og komið í veg fyrir að fólk ferðist með flugvélum, bæði innanlands og til annara landa. Kvíðameðferðarstöðin í samvinnu við Icelandair býður uppá námskeið fyrir fólk sem vill takast á við flugfælni og virðist gefa góða raun. Í lok námskeiðs er farið með flugi til einhverra af áfangastöðum flugfélagsins, út og heim aftur samdægurs og þáttakendur bera saman bækur sínar eftir á. Ólafía Sigurjónsdóttir sálfræðingur kom til okkar í þáttinn.
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í póstkortinu verður sagt frá rysjóttri tíð og fleiri raunum sem hafa dunið yfir Eyjamenn að undanförnu. Að því loknu er stríðið í Úkraínu til umfjöllunar sem og fleiri mál erlendis eins og kosningabaráttan í Bandaríkjunum þar sem söngstjarnan Taylor Swift er komin í brennidepil. Og í lokin talaði Magnús um hið sérkennilega mál Julian Assange sem bíður í fangelsi eftir örlögum sínum sem ráðast á næstunni fyrir breskum dómstól.
    Tónlist í þættinum:
    Presley / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Grafík, texti Rúnar Þórisson)
    Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (erlent lag, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    Tell me Margarita / Les Baxter (DR & Les Baxter)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Heilaheilsa, Hvernig varð ég til, veðurspjallið
    Heilaheilsa og þjálfun hugans er nafn á námskeiði sem Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ stýrir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf og markmiðið er að þáttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu. Ólína kom í þáttinn og sagði okkur meira frá heilaheilsu í dag.
    „Hvernig varð ég til?“ er bók fyrir öll börn sem verða til með aðstoð egg- eða sæðisgjafa. Bókin hentar einstaklingum sem eignast börn ein og einnig samkynja- og tvíkynja pörum. Bókin aðstoðar fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til, þar sem áherslan er á fólk sem fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa við barneignarferlið. Mikilvægt er að foreldrar séu opinská og heiðarleg gagnvart börnum um hvernig þau urðu til og ekki er alltaf auðvelt að vita hvernig á að bera sig að. Markmiðið með bókinni er að vera ákveðið verkfæri til að aðstoða foreldra við samtalið. Andrea Björt Ólafsdóttir er höfundur bókarinnar kom til okkar í dag.
    Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo í dag. Í þetta sinn talaði Einar við okkur um veðurútlitið næstu daga og vikur. Hvort hægt sé að spá með viti í marsveðráttuna og með hvaða aðferðum þá. Hann ætlar líka að rifja upp þegar 1500 manns sátu fastir í bílum sínum í Þrengslunum 27.febrúar árið 2000, þegar fjöldi þusti út til að berja Heklugos augum. Þá hafði verið tilkynnt í fréttum að gos myndi hefjast innan 30 mínútna, en lítið sást til gossins, en í staðinn gerði byl með ófærð. Þetta var ein viðamesta björgunaraðgerð á vegum úti í Íslandssögunni.
    Tónlist í þættinum:
    Skólaball / Brimkló (Magnús Kjartansson)
    Marz / John Grant (John Grant)
    4:30 AM / Solveig Slettahjel (Peder Kjellsby & Solveig Slettahjell)
    Nacho verduzco /Kronos Quartet (Chalino Sanchez)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Ímynd tengdamæðra, vinkill og Nanna Hlín lesandinn
    Í dag verður flutt dálítið óvenjulegt erindi í Fræðakaffi á Borgarbókasafninu í Spönginni en yfirskrift þess er Ímynd tengdamæðra og það er þjóðfræðingurinn og skagfirðingurinn Eiríkur Valdimarsson sem mun flytja það. Í fréttatilkynningu segir: Af einhverjum ástæðum eru til ógrynni af bröndurum og skopmyndum þar sem tengdamæður eru gjarnan hafðar að háði og spotti. Þetta skemmtiefni byggir á ímynd sem margir hafa heyrt og séð, að tengdamæður séu uppáþrengjandi, yfirgangs- og afskiptasamar – sumsé býsna erfiðar manneskjur. Eiríkur Valdimarsson keyrði frá Hólmavík til Reykjavíkur og kom í þáttinn til að segja okkur frá tengdamæðrum.
    Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við hinar ýmsu ástæður þess að maður gengur til liðs við allskonar félagasamtök. Hann segir frá samkomu í einum af þeim fjölmörgu félögum sem hann er í, Hið Íslenzka Fyrritíðarfjelag, en samkvæmt Guðjóni er samkoman gríðarlegt tilhlökkunarefni á hverju ári.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Nanna talaði um eftirfarandi bækur:
    The Expanse, bókasería eftir James S.A. Corey (Daniel Abraham og Ty Franck)
    The Book of Goose eftir Yiyun Li
    Sick and Tired: An Intimate History of Fatigue eftir Emily K. Abel
    Lilith’s Brood eða Xenogenesis, þríleikur (Dawn, Adulthood Rides og Imago) eftir Octaviu Butler
    Að lokum talaði Nanna um bókina Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson
    Tónlist í þættinum:
    Átján rauðar rósir / Lúdó og Stefán og Berti Möller (Bobby Darin og Iðunn Steinsdóttir)
    Kúst og fæjó / Heimilstónar (Elva Ósk Ólafsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir)
    Aska og Gull / Sváfnir Sigurðarson (Sváfnir Sigurðarson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Óttar Guðmundsson föstudagsgestur og matarspjall um vonina
    Óttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur, blaðagreinar og hefur verið fastur penni hér og þar í fjölmiðlaheiminum. Hann hefur auðvitað lengi látið sig geðheilbrigðismál varða, vímuefnamálin og transmálin, en hann hlaut hlaut heiðursmerki Samtakanna 78 árið 2012. Óttar hefur stundum verið umdeildur en alltaf óhræddur við að viðra skoðanir sínar. Við fórum með Óttari aftur í tímann á æskuslóðirnar, drauma hans um að verða knattspyrnumaður og leikari. Hvernig það atvikaðist að hann fór í læknisfræðina, áhugi hans á Þýskalandi og þýskri menningu og áhuga hans grúsk hans í dag til dæmis um 19.aldar skáldið Sigurð Breiðfjörð. Það var um nóg að tala við Óttar í þættinum í dag.
    Svo var það auðvitað matarspjallið. Sigurlaug Margrét talaði þar um vonina, vonina um vorið sé að koma og það hvernig matarplönin geta breyst eftir veðrinu og árstíðunum. Salat og léttari matur í matarspjallinu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þrek og tár / Haukur Morthens og Erla Þorsteinsd. (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson)
    Einskonar eftirmáli / Jóhanna V. Þórhallsdóttir (Jóhanna Þórhallsdóttir og Guðmundur Sigurðsson)
    Eitt lítið kaffitár / Jóhanna V. Þórhallsdóttir (Catulo Castillo og Sveinbjörn I. Baldvinsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Skátahreyfingin, stytting menntaskólanámsins og móðurmálin
    Þankadagurinn eða World Thinking Day er í dag og er dagur alþjóðlegrar vináttu þar sem skátar út um allan heim hugsa hlýtt til annarra skáta og senda þakklæti út í heiminn. Haldið hefur verið upp á þankadaginn á hverju ári síðan 1926. Harpa Ósk Valgeirsdóttir Skátahöfðingi Íslands og Kolbrún Ósk Pétursdóttir móttstjóri Landsmóts skáta komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frá skátahreyfingunni, þankadeginum og landsmótinu sem verður haldið í sumar í fyrsta skipti í 8 ár en Covid setti strik í reikninginn því mótið er venjulega haldið á fjögurra ára fresti.
    Samkvæmt rannsókn við Háskóla Íslands hefur stytting framhaldsskólanámsins haft slæm áhrif á einkunnir ungmenna í háskóla, fjölda eininga teknum í háskóla og brotthvarf úr háskóla. Líklegra er að breytingin hafi haft slæm áhrif á drengi en stúlkur. Við fengum Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem er ein þeirra sem standa að þessari rannsókn til að segja okkur frekar frá niðurstöðum rannsóknarinnar.
    Í gær var Alþjóðlegi móðurmálsdagurinn og í tilefni hans er unnið svokallað Menningarmót með 6. bekkingum Hlíðarskóla. Börnin unnu verkefni tengd tungumálum, til dæmis var gerður tungumálaregnbogi þar sem orð á 20 tungumálum koma saman og fleira. Ferlinu lýkur á morgun þar sem foreldrum barnanna verður boðið á Menningarmót í Veröld og sjá það sem börn þeira hafa verið að gera. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, sjálfstætt starfandi tungumálamiðlari í Danmörku og á Íslandi og höfundur Menningarmótsaðferðarinnar og Eyjólfur Már Sigurðsson forstöðumaður Tungumálasmiðstöðvar HÍ komu í þáttinn og sögðu frá.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason)
    Yakkety yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason)
    Gamla Húsið / Ellen Kristjánsdóttir (Þorgeir Ástvaldsson og Bjartmar Guðlaugsson)
    Mirror Mirror / Pinkerton Assorted Colours (Tony Newman)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Solihull aðferðin, íslensk strandmenning og eldsumbrotin
    Solihull er aðferð sem snýst um snemmtæka íhlutun, aðgerðir og vinnulag til að auka geð- og tilfinningaheilbrigði ungra barna og foreldra. Við fræddumst í dag um þessa aðferð þegar Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi Landspítalans og formaður Geðverndarfélags Íslands, kom í þáttinn ásamt Kjartani Valgarðssyni framkvæmdastjóra félagsins einmitt til þess að fræða okkur um Solihull aðferðina.
    Framundan er málþing Vitafélagsins um íslenska strandmenningu, stöðu hennar og framtíð. Málþingið fer fram á Akranesi 4. mars, þar verða flutt erindi um strandmenningu, sögu hennar, strandmenningu í bókmenntum og fleira auk þess sem það verða pallborðsumræður. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins kom í þáttinn ásamt Árna Daníel Júlíussyni sagnfræðingi og þau sögðu okkur frekar frá íslenskri strandmenningu og málþinginu.
    Þorvaldur Þórðarsson prófessor í eldfjallafræði og bergfræði kom svo til okkar og við spurðum hann útí stöðuna á Reykjanesi þar sem enn einu sinni er útlit fyrir gos. Hann fræddi okkur um hvað er í gangi undir yfirborði jarðar í svona jarðhræringum og eldsumbrotum og þetta tímabil sem augljóslega er hafið og sér ekki fyrir endann á í bili að minnsta kosti.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þúsund sinnum segðu já / Toggi og Ourlives (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson, Sæmundur Rúnar Þórisson og Örn Jónsson)
    Sólarlag = Sunny Days / Pónik (ProKop, Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson)
    Hvenær sé ég þig næst / Tómas R. Einarsson og Ragnhildur Gísladóttir (Tómas R. Einarsson og Linda Vilhjálmsdóttir)
    Hæ Mambó / Tónar og trix, Bogomil Font (Bob Merrill og Loftur Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Barnaheill, búddismi og tónlist, gerendur stafræns ofbeldis
    Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið að mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir að stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdastjóra samtakanna í Istanbul þar sem verið var að leggja línurnar fyrir árið og þau verkefni sem samtökin ætla að leggja á og hún sagði okkur frá því í viðtalinu.
    Ástvaldur Zenki Traustason kom svo í þáttinn og talaði við okkur um heilsuna, Zenbúddisma og tónlist. Hann er með tónleika sem hann nefnir Stefnumót við lífið. Hann sagði okkur betur frá þessu.
    Að lokum kom til okkar Dr. María Rún Bjarnadóttir, yfirmaður netöryggismála hjá ríkislögreglustjóra, en hún kynnti í gær rannsóknarniðurstöður frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð þar sem varpað var ljósi á gerendur í málum sem snúa að stafrænu kynferðisofbeldi. Gerendur voru kortlagðir út frá aldri, kyni og tengslum þeirra við þolendur og svo voru hvatarnir á bak við brotin skoðuð. María Rún sagði okkur frá helstu niðurstöðunum í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Borð fyrir tvo / Hjálmar (Bragi Valdimar Skúlason)
    Faðmlag / Kristjana Stefánsdóttir ( Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson)
    Gleym mér ei / Lay Low (Bubbi Morthens)
    Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners