Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Dýrmæta Anna, páskaveðursvinkill og Hulda lesandinn
    Dýrmæta Anna er heiti á barnabók, nokkurs konar sjálfshjálparbók og er skrifuð til að gefa krökkum skilning á hlutum sem geta gagnast þeim út lífið og stuðlað að aukinni hamingju, meiri sjálfsást og betri samskiptum. Höfundur bókarinnar, Fjóla María Bjarnadóttir, hefði sjálf viljað að svona bækur hefðu verið nálægt henni í æsku en hún þekkir af eigin raun að vera barn og unglingur í mikilli vanlíðan. Aðstæður á æskuheimilinu voru erfiðar, en hún fór í 10 grunnskóla í 2 löndum og var stanslausan með mikinn kvíða. Við ræddum við Fjólu Maríu í þættinum.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkill dagsins fjallaði um muninn sem nú er á milli landshluta varðandi veður og hvernig það hafði mögulega áhrif um páskana. Að lokum var fjallað um sumarbústaðaferðir og hvernig aðstæður fólks í bland við aldur hafa mögulega áhrif á upplifun þeirra.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Hulda Hólmkelsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjórnar hjá Reykjavíkurborg og laganemi. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hulda talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    A Little Life e. Hanya Yanagihara
    Yellowface e. R.F Kuang
    Strákar sem meiða e. Evu Björgu Ægisdóttir
    Red, White and Royal Blue e. Casey McQuiston
    Og svo talaði hún um höfundinn Þorvald Þorsteinsson
    Tónlist í þættinum:
    Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson og Gunnar Þórðarsson)
    Öjeblikket / Kari Bremnes (Kari og Lars Bremnes)
    Tango Della Rose / Stanley Black (Bottero & Schrier)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Tónskáldið Gunnar Þórðarson, póstkort um flugvelli og páskamatarspjall
    Um páskana verður sýnd í sjónvarpinu heimildarmyndin Tónskáldið Gunnar Þórðarson. Þetta er ný heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson um ævintýralegan feril Gunnars Þórðarsonar. Gunnar Þórðarson hefur fengist við margs konar dægurtónlist, allt frá lögum í anda Bítlanna til diskótónlistar og undir lok ferilsins fóru eyru hans að opnast fyrir sígildri tónlist og óperan hans Ragnheiður sló í gegn ekki síður en sönglög hans sem mörg hver eru löngu orðin sígild meðal þjóðarinnar. Ágúst Guðmundsson var í hljóðveri RÚVAK á Akureyri og sagði okkur frá tilurð myndarinnar og auðvitað frá ferli Gunnars.
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins hélt Magnús áfram að kvarta undan flugstöðvum, en hann er nú nýkominn úr ferð til þriggja landa og í gegnum fjórar flugstöðvar. Af þeim fjórum þótti honum sú í Noregi erfiðust. Hann rekur upphaf leiðinda á flugstöðvum til ellefta septembers 2001 en eftir árásina á tvíburaturnna í Bandaríkjunum þann dag var allt eftirlit á flugvöllum hert um heilan helling út um allan heim. Hann sagði líka frá hefndarstríðinu sem hófst eftir árásina en í því fórust fjórar og hálf milljónir.
    Svo var það páskamatarspjall. Sigurlaug Margrét var auðvitað með okkur og við skoðuðum páskamatinn, pásklamb og hamborgarhrygg og morgunmatinn um páskana.
    Tónlist í þættinum:
    Manitoba / Gunnar Þórðarsson (Gunnar Þórðarsson)
    Þakka þér fyrir / Stefán Hilmarsson (Gunnar Þórðarsson-Stefán Hilmarsson)
    Egg head / Al Stewart (Cecil Payne & Daniel Mendelssohn)
    Páskaegg / Ingibjörg Þorbergs og hljómsveit Carls Billich (Ingibjörg Þorbergs)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Alþjóðlegi leiklistardagurinn, Stúdentafélagið og Heilsuvaktin
    Alþjóðlegi leiklistardagurinn er á morgun 27. mars. International Theatre Institute, alþjóðasamtök í sviðslistum og aðilar þess, hafa haldið uppá þennan dag í yfir 60 ár. Alþjóðlegt ávarp ársins er ritað af norska leikskáldinu og nóbelsverðlaunahafanum Jon Fosse og í ávarpi sínu segir hann meðal annars: Stríð og list eru andstæður, rétt eins og stríð og friður eru andstæður, svo einfalt er það. List er friður. Sviðslistasamband Ísland fær árlega sviðslistamann hérlendis til að skrifa hugleiðingu og í ár er það Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri, sem skrifar innlenda ávarpið. Gréta kom í þáttinn með henni var Orri Huginn Ágústsson forseti Sviðslistasambands Íslands.
    Stúdentafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi félag landsins, stofnað 1871. Tilgangur félagsins er að vinna að blómlegu og þjóðlegu stúdentalífi, eins og það er orðað í lögum félagsins. Í stjórn félagsins er talsverð breidd í aldri, en 62 ár eru á milli elsta og yngsta stjórnarmeðlims. Tvær ályktanir voru samþykktar á aðalfundi félagsins 27.feb. sl. og báðar þeirra sneru að styttum bæjarins, annars vegar að styttunni af Jónasi Hallgrímssyni, sem er í Hljómskálagarðinum, og svo styttan af Sæmundi á selnum sem er við Háskóla Íslands. Björn Jón Bragason, nýkjörinn formaður félagsins kom í þáttinn og sagði okkur meira frá félaginu, sögu og starfsemi þess.
    Helga Arnardóttir fjölmiðlakona kom svo til okkar í spjall, en annan hvern þriðjudag á næstunni mun hún endurvekja Heilsuvaktina, sem hún byrjaði með í þættinum árið 2016. Hún mun fjalla um heilsuna frá öllum mögulegum hliðum og heimsækja fólk sem getur frætt okkur um völdundarhús heilbrigðis. Hvað er nýtt og hvað er gott og gilt? Helga hefur undanfarin ár fjallað um langlífi og heilsu í sjónvarpi og útvarpi og við hlökkum til að fá pistla í formi Heilsuvaktarinnar á næstu vikum.
    Tónlist í þætti dagsins:
    Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)
    Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir)
    Signals / Júníus Meyvant (Unnar Gísli Sigurmundsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Sigrún Jónsdóttir söngkona, vinkill og Örn lesandinn
    Mannlegi þátturinn hefur nýtt sér viskubrunn Jónatans Garðarssonar reglulega, því hann veit eiginlega allt um sögu íslenskrar dægurtónlistar, síðast kom hann og sagði okkur frá Berta Möller. Við fengum afskaplega góð viðbrögð frá hlustendum við því og í dag fengum við því Jónatan til að segja okkur frá Sigrúnu Jónsdóttur dægurlagasöngkonu, en hún var um tíma ein vinsælasta söngkona landsins og við heyrðum líka tvö lög með henni.
    Við fengum svo vinkil nr. 78 frá Guðjóni Helga Ólafssyni úr Flóanum. Vinkill dagsins fjallaði um hvernig ein mynd getur orðið að 1505 orðum, um tóbaksræktun í Kentucky fylki í Bandaríkjum Norður- Ameríku, um veruleika landbúnaðarverkamanna frá Nicaragua sem vinna tímabundið þar og um fíkn jarðarbúa í afurðir tóbaksplöntunnar; Nico-tiana taba-cum.
    Og lesandi vikunnar í þetta sinn var leikarinn, söngvarinn og leiðsögumaðurinn Örn Árnason. Hann þarf auðvitað vart að kynna eftir öll árin í Spaugstofunni, sem Afi á Stöð 2 og svo auðvitað allt annað sem hann hefur leikið á sviði og fyrir framan myndavélarnar. Ég man þá tíð er nafn á tónleikum þar sem hann og Jónas Þórir píanóleikari munu spila og syngja lög sem allir þekkja í Salnum í Kópavogi. En auðvitað sagði hann okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa udnanfarið. Örn talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Gönguleiðir á Reykjanesi e. Jónas Guðmundsson
    Gönguleiðir á hálendinu e. Jónas Gumundsson
    Kvæðasafn Einars Benediktssonar
    Tónlist í þættinum:
    Bimbó / Sigrún Jónsdóttir og öskubuskur (Rodney Morris og texti Guðmundur Sigurðsson)
    Fjórir kátir þrestir / Sigrún Jónsdóttir með Kjell Karlson (Norskt alþýðulag, texti Jón Sigurðsson)
    Io i Te / Emiliana Torrini (Leone Tinganelli)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Sigríður Margrét föstudagsgestur og matarspjall um pylsur
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigríður Margrét Oddsdóttir, hún er í dag framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, áður var hún meðal annars framkvæmdasjtóri Skjás miðla, forstjóri Já.is og forstjóri Lyfju. Í starfi sínu hefur hún auðvitað staðið í ströngu undanfarið í samningamálum, eins og komið hefur fram í fréttum síðustu mánaða. En við byrjuðum auðvitað á því að skyggnast með Sigríði aftur í tímann á æskuslóðirnar á Skagaströnd og í Njarðvík, Verslunarskólanámið, háskólanámið á Akureyri og þannig fórum við með henni á handahlaupum í gegnum tímann til dagsins í dag.
    Svo var það matarspjallið. Sigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, kom og við ræddum pylsur. Pylsa er ekki bara pylsa. Það eru til talsvert margar útgáfur af pylsum og þá erum við bara að tala um íslenskar útgáfur, auðvitað eru ótal fleiri út um allan heim og sitt sýnist hverjum. Pylsur og pulsur í matarspjalli dagsins.
    Tónlist í þættinum:
    Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)
    Close To Me / The Cure (Robert Smith)
    Himnasmiður / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Starfsemi Heimilisfriðar og vorverkin með Guðríði
    Við kynntum okkur starfsemi Heimilisfriðar í þættinum í dag. Heimilisfriður er meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum, og er með meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita, eða hafa beitt, ofbeldi í nánum samböndum. Heimilisfriður býður upp á sálfræðimeðferð fyrir þau sem eiga erfitt með að stjórna skapi sínu og skaða þá sem þau elska, jafnvel þó þau vilji það ekki. Jóhanna Dabgjartsdóttir sálfræðingur hjá Heimilisfriði kom til okkar í dag og sagði okkur meira frá starfseminni og niðurstöðum úttektar sem Félagsvísindastofnun HÍ gerði á starfseminni á síðasta ári.
    Við fengum svo Guðríði Helgadóttur garðyrkjufræðing og líffræðing, því nú er vorið að nálgast, sólin er komin hærra á loft og fuglarnir eru farnir að syngja. Er ekki kominn tími til að huga að garðverkunum? Það er að mörgu að hyggja, en hvar eigum við að byrja? Hvaða garðverk þurfum við að huga að á þessum tíma árs? Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Guðríði, hún er full af fróðleik eins og fyrri daginn og fór með okkur í gegnum vorverkin og gaf okkur góð ráð í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Hverjum hefði getað dottið í hug? / Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir (Svavar Knútur Kristinsson)
    Jolene / Lay Low (Dolly Parton)
    Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoniasardóttir)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Sjúkást og jafnvægi, vannæring eldra fólks
    Sjúkást er fræðslu- og forvarnarverkefni gegn kynferðisofbeldi á vegum Stígamóta. Í árlegri herferð sem fór af stað í vikunni er verið að velta fyrir sér jafnvæginu í samskiptum og því sem getur raskað því. Til dæmis aldursmunur, líkamlegur styrkur, frægð, æsingur, vinsældir, hræðsla, skert meðvitund og fleira. Svandís Anna Sigurðardóttir, verkefnastýra fræðslu og forvarna hjá Stígamótum, kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá Sjúkást, jafnvægi og spjallinu Sjúktspjall á www.sjukast.is þar sem hægt er að senda inn nafnlausar spurningar.
    Vannæring, eða áhætta á vannæringu, er algengt vandamál hjá eldra fólki. Algengi vannæringar eða áhætta á vannæringu er há hjá eldra fólki sem dvelst á sjúkrahúsi og eftir útskrift versnar oft næringarástand þess. Nú í janúar varði Berglind Soffía Ásbjörnsdóttir Blöndal doktorsritgerð sína í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Í ritgerðinni rannsakaði hún tvo hópa, 65 ára og eldri, sem voru að útskrifast heim frá Landspítala og voru í áhættu á vannæringu. Öðrum hópnum veitti hún næringarmeðferð og frítt orku- og próteinbætt fæði ásamt næringardrykkjum í 6 mánuði eftir útskrift. Hinn hópurinn fékk ekki slíka aðstoð og niðurstöðurnar eru sláandi. Berglind kom til okkar í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Saturday Sun / Nick Drake (Nick Drake)
    Aquarius / The Fifth Dimension (Galt MacDermot, Gerome Ragni & James Rado)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Blöðruhálskirtilskrabbamein, Alaska og veðurspjallið
    Blöðruhálskirtilskrabbamein er algengasta krabbamein karla, 240 greinast árlega að meðaltali. Blöðruhálskirtilkrabbamein hagar sér að mörgu leiti öðruvísi en önnur krabbamein og rannsóknir benda til að allt að 80% af öllum körlum 80 ára og eldri séu með blöðruhálskirtilskrabbamein í einhverri mynd. Málþing í tilefni af Mottumars verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð á morgun kl.16:30. Þar verður fjallað um blöðruhálskirtilskrabbamein út frá víðu sjónarhorni. Rafn Hilmarsson, þvagfæraskurðlæknir á Landspítala, verður með erindi á málþinginu undir yfirskriftinni Skimun eða ekki - meðferðarkostir - ávinningur og aukaverkanir. Rafn kom til okkar í dag og sagði frá erindi sínu og með honum kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
    Í haust mun ferðaskrifstofan VITA bjóða uppá siglingu um firði Alaska. Landslagið er stórbrotið, tignarleg fjöll með hvíta toppa, djúpgrænir regnskógar og falleg höfuðborg Juneau sem ekki er auðvelt að komast til nema fljúga þangað eða sigla. Héðinn Svarfdal Björnsson verður fararstjóri í þessari ferð fyrir Íslendinga en pláss er fyrir um 25 manns. Við heyrðum í honum í þættinum í dag.
    Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Í þetta sinn rifjaði hann upp með okkur upp frægt óveður, Hákonarhretið sem skall á í dymbilvikunni 1963 og svo skoðuðum við með honum páskaveðrið.
    Tónlist í þættinum:
    Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (A Jaén og Helgi Pétursson)
    If paradise is half as nice / Amen Corner (Battisti, Fishman, Mogol)
    Alaska / Maggie Rogers (Doug Schadt & Maggie Rogers)
    Árstíðirnar þrjár/Karl Olgeirsson Orgeltríó og Kristjana Stefánsdóttir (Karl Olgeirsson )
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Einmannaleiki, vinkill frá Guðjóni og Valgerður lesandinn
    Öll finnum við fyrir einmanaleika einhvern tíma á lífsleiðinni. Sum upplifa hann aðeins tímabundið, hjá öðrum er hann viðvarandi en hann snertir líf okkar allra með einhverjum hætti. Í Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar fjallar Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir um einsemdina frá fjölmörgum hliðum. Hún skoðar hver eru einmana, hvenær og af hverju en leitast líka við að varpa ljósi á það sem einmanaleikinn getur kennt okkur og hvernig bregðast megi við honum. Við ræddum við Aðalbjörgu í þættinum.
    Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkill dagsins fjallar meðal annars um menningarferð í kvikmyndahús, hláturpokann og uppfinningamanninn Walter Thiele, um það að mynda sér skoðun á málum sem tekist er á um á samfélagsmiðlum með einar saman tilfinningar til grundvallar, um athugasemdir á samfélagsmiðlum og um gildi þess að líta í eigin barm.
    Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Valgerður Garðarsdóttir forstöðumaður námsvers Menntaskólans við Hamrahlíð. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Valgerður sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
    Vonin, akkeri fyrir sálina. Kjarnyrðabók e. sr. Þorvald Víðisson.
    Valskan. Skáldsaga byggð á heimildum um formóður höfundar sem uppi var á síðari hluta 18. aldar. Eftir Nönnu Rögnvaldsdóttur.
    Engan þarf að öfunda, daglegt líf í Norður Kóreu. Barbara Demick bandarískur blaðamaður skrifaði bókina eftir samtöl við fólk sem flúið hafði frá N-Kóreu til S-Kóreu. Elín Guðmundsdóttir þýddi.
    Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murtata, Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
    Bækur sem kveiktu lestraráhuga Valgerðar í æsku.
    Pabbi, mamma, börn og bíll, og framhald hennar e. Anne-Cath Vestly.
    Tónlist í þættinum:
    Vor í Vaglaskógi / Friðrik Ómar og Pálmi Gunnarsson (Jónas Jónasson og Kristján frá Djúpalæk)
    Ég mun bíða þín / Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson á píanó (Michel Legrand og Bragi Valdimar Skúlason)
    Ferry Cross the Mersey / Gerri and the Pacemakers
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Árni Magnússon forstjóri Ísor föstudagsgestur og matarspjall með Sigurlaugu Margréti
    Árni Magnús­son for­stjóri Íslenskra orku­rann­sókna, ÍSOR, var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Árni ber líka titilinn fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi fréttamaður en síðustu ár hafa orkumál átt hug hans allan. Hann hefur starfað fyrir verkfræðistofuna Mannvit og unnið á þeirra vegum í Ungverjalndi, hann var framkvæmdastjóri endurnýjarnlegrar orku hjá Íslandsbanka og hann hefur setið í stjórn fjölda fyrirtækja,félaga og stofnana innanlands og erlendis ofleira og ofleira. Já Árni var föstudegsturinn okkar í dag og við fengum að kíkja í minningabankann hans í dag.
    Matarspjallið var svo á sínum stað og í dag töluðum við um nesti fyrir bílferð norður í land.
    Létt/Ríó Tríó(Gunnar Þórðarsson-Jónas Friðrik)
    Purple rain/Prince
    Stjörnurnar/Hnetusmjör (Árni Páll Magnússon)
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners