Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Gunnlaugur og stjörnuspekin, vinkill og Adolf lesandinn
    Við veltum fyrir okkur stjörnuspeki og tímanum í dag með stjörnuspekingnum Gunnlaugi Guðmundssyni. Í hvaða hringrás eða tímabili erum við í dag og er því að fara að ljúka? Víst er að víða í heimi er erfitt ástand, stríð, óeining og togstreita. Hvað segir stjörnuspekin um ástandið á þessum tímum? Gunnlaugur fór yfir það með okkur í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn lagði hann vinkilinn að vangaveltum um vetrarfærð og hegðun ökumanna við krefjandi aðstæður, auk þess sem gamalli þjóðsögu frá Úkraínu brá fyrir.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Adolf Smári Unnarsson, leikstjóri og leikskáld. Hann leikstýrir sýningunni Kannibalen í Tjarnarbíói. En hann sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Adolf sagði frá eftirtöldum bókum og höfundum:
    Vordagar í Prag e. Þorsteinn Jónsson
    The Black Death e. Sean Martin
    Other People's Clothes e. Calla Henkel
    Salamöndrustríðið e. Karel Capek
    Svo talaði hann um höfundana Thomas Bernhard, Michel Houlebecq og Isabel Allende.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hvítu mávar / Helena Eyjólfsdóttir (Walter Lange og Björn Bragi Magnússon)
    Brand New Key / Melanie (Melanie Safka)
    Everybody’s talkin’ / Harry Nilson (Fred Neill)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    51 min
  • Linda Blöndal föstudagsgestur og ísskápshreinsun
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Linda Blöndal frétta- og fjölmiðlakona. Hún lærði stjórnmálafræði og hefur unnið í fjölmiðlum í á þriðja áratug, hún byrjaði á Bylgjunni en færði sig svo yfir á Rás 2 rétt fyrir aldamótin í Morgunútvarpið var einnig í Síðdegisútvarpinu og fleiri þáttum. Hún færði sig svo yfir í fréttirnar og hefur verið fréttakona hér á RÚV, á Stöð 2 og svo á Hringbraut, áður en hún kom aftur á fréttastofu RÚV. Við fórum með Lindu aftur í tímann og fengum hana til að segja okkur frá æskuárunum í Breiðholtinu og í Æfinga- og tilraunaskólanum. Svo sagði hún okkur frá tengslum sínum við eyjuna Möltu og þegar hún fór í kosningaeftirlit til Tadsjikistan og að lokum sagði hún áhugaverðar sögur úr fréttamennskunni.
    Svo var það auðvitað matarspjallið, Sigurlaug Margrét kom til okkar og í þetta sinn töluðum við um ísskáps- og búrhreinsun. Þegar við búum til mat úr því sem er til í eldhúsinu, sem getur oft orðið glettilega gott. Stundum er það eini valkosturinn, til dæmis ef gesti ber óvænt að garði.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (Bandarískt þjóðlag, Jón Sigurðsson)
    I Walk the Line / Johnny Cash (Johnny Cash & Burt Bacharach)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Alzheimer samtökin, ofbeldi nemenda
    Alzheimersamtökin hafa um árabil veitt ráðgjöf til fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra en ekki haft heilt stöðugildi fyrr en nú til að sinna upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu. Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu Alzheimersamtakanna kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfsemi samtakanna og þessu nýja stöðugildi í upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu, og þau þrjú stöðugildi sem koma víðs vegar um landið í framhaldinu. Hún benti til dæmis á upplýsingar sem hægt er að finna inn á Ísland.is, á forsíðunni undir „Að eldast“ og svo heimasíðu Alzheimersamtakanna alzheimer.is, netfangið [email protected] og símanúmerið 520-1082.
    Mikil aukning hefur verið á ofbeldi nemenda og alvarlegum birtingarmyndum þess, samhliða ákveðnu úrræðaleysi. Starfsfólk skóla upplifir sig stundum óöruggt og vonlítið í krefjandi aðstæðum með nemendum og mikilvægt er að ofbeldi innan veggja skólans sé tekið föstum tökum. Sérstakt námskeið sem ber yfirskriftina Ofbeldi nemenda og hegðunarvandi er í boði hjá Endurmenntun háskóla Íslands, uppselt er á námskeiðið og biðlisti. Við ræddum í dag við Soffíu Ámundadóttur, grunnskólakennara og leikskólakennara, en hún hefur starfaði á síðasta áratug í Brúarskóla, sem er sérskóli fyrir nemendur með tilfinninga- og hegðunarvanda.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ást er æði / Björgvin Halldórsson og Ragnheiður Gröndal (Sam Brooker & Ruby Amanfu og texti eftir Kristinn G. Bjarnason)
    Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Harvest Moon / Neil Young (Neil Young)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Áfallasaga kvenna, G vítamín og Grænhöfðaeyjar
    Ríflega 30 þúsund konur á aldrinum 18-69 ára tóku þátt í rannsókninni Áfallasaga kvenna, á árunum 2018-2019, sem gerir rannsóknina að einni þeirri stærstu sinnar tegundar á heimsvísu. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um áföll á mismunandi ævistigum, geðræn einkenni og heilsufar á fullorðinsárum. Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn á vegum fræðikvenna við Háskóla Íslands og niðurstöðurnar hafa verið birtar í fjölmörgum vísindagreinum í virtum alþjóðlegum vísindaritum. Þær hafa meðal annars sýnt að 40% kvenna hafa orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni og það er sterkur áhættuþáttur ýmissa geðrænna einkenna/raskana og hjarta- og æðasjúkdóma. Arna Hauksdóttir prófessor í Lýðheilsuvísindum kom í þáttinn og sagði okkur betur frá og því að aðstandendur rannsóknarinnar eru að fara af stað með eftirfylgdarrannsókn þar sem leitað er til kvennanna 30 þúsund sem tóku þátt í upphafi.
    Landssamtökin Geðhjálp hafa ýtt úr vör hinu árlega 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín. Í ár er fjórða árið sem samtökin standa fyrir þessu átaki á þorranum. Geðhjálp býður því upp á 30 dagleg hollráð sem er ætlað að bæta geðheilsu landsmanna yfir Þorrann. Þessir 30 skammtar af hollráðum eru kallaðir G-vítamín. Á föstudaginn verður styrktarþáttur í beinni útsendingu hér á RÚV, í sjónvarpinu, G vítamín - Gott fyrir geðheilsuna. Þar verður stóra mynd geðheilbrigðismála Íslendinga skoðuð í áhugaverðri og skemmtilegri útsendingu, eins og segir í fréttatilkynningu. Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir og stjórnarmaður í Geðhjálp kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þættinum og G vítamíninu.
    Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins bar Magnús saman Kúbu og Cabo Verde þar sem hann er í heimsókn núna. Þjóðir með svipaðan uppruna en ólík örlög. Hann segir frá sérkennilegum frönskum aðalsmanni sem settist að á einni eyjunni seint á nítjándu öld og varð elskaður og dáður af fólkinu og af honum er kominn mikill ættbogi. Magnús segir líka af fólki sem hann hefur kynnst í borginni Praia, fyrrum embættismanni og lækni, þjóni og þúsund þjala smiði, efnilegri söngkonu og hennar meðspilurum.
    Tónlist í þætti dagsins:
    Brauðbúðarbúgí / Borgardætur (Wolfie & Wood, texti Einar Thoroddsen)
    Ókeypis / Egill Ólafsson og finnsk-íslenska vetrarbandalagið(Matti Kallio og Egill Ólafsson)
    Let your boss be your lesson / Allison Krauss og Robert Plant ( Milt Campbell)
    Jacaré sumiu / Alcione (Mauro Diniz & Sereno)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Kraftur, K2 námsbrautin og snjóþyngsli
    Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hefur hleypt af stokkunum árlegu átaki sínu, Lífið er núna. Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts kom til okkar í dag og sagði okkur frá átakinu og starfsemi Krafts, sem er 25 ára í ár og með henni kom Melrós Eiríksdóttir, en hún sagði okkur erfiða reynslusögu sína en hún greindist 33 ára með 4. stigs leghálskrabbamein. Næsta fimmtudag mun Kraftur standa fyrir því að fá fólk til sín að perla ný armbönd, frá kl. 16-20 í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð.
    K2 Tækni- og vísindabraut Tækniskólans er framsækið þriggja ára stúdentsnám í bekkjakerfi þar sem megináhersla er á verkefnavinnu, lausnaleit og gagnrýna og skapandi hugsun. Það eru 90 nemendur á brautinni og áhersla er lögð á að hver og einn nemandi nái árangri og vel sé haldið utan um þá. Sigríður Halldóra Pálsdóttir brautarstjóri kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessari námsbraut.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í veðurspjallið í dag. Hann ræddi við okkur um tíðina og spána fram undan og illviðri í Noregi sem tengist þessu öllu saman. Svo rifjaði Einar upp snjóþyngsli úr fortíðinni, nánar tiltekið frá lok janúar árið 1952.
    Tónlist í þætti dagsins:
    Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi)
    Berglind Björk Jónasdóttir / Hvert er heimurinn að fara? (Hrafn Pálsson)
    The Consequences of Falling / K.D. Lang (Billy Steinberg, Rick Nowels & Marie Claire D'Ubaldo)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Erfðabreytileiki og fósturlát, Vinkill úr Flóanum og lesandinn
    Íslensk Erfðagreining tilkynnti rétt fyrir útsendingu Mannlega þáttarins að vísindamenn á þeirra vegum, hér á landi, í Danmörku og Bandaríkjunum hafi fundið erfðabreytileika sem hefur áhrif á endurröðun erfðaefnis og eykur líkur á fósturláti. Í erfðarannsókninni tóku þátt yfir 114 þúsund konur sem misst hafa fóstur. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar og Valgerður Steinþórsdóttir, vísindamaður og verkefnastjóri hjá ÍE, komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur þessa rannsókn og niðurstöður hennar.
    Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni, en þetta var 70. Vinkillinn sem við fáum frá honum. Í dag lagði hann vinkilinn að því sem hann kallar þjóðfræðinördisma, snjó á trjágreinum, Finnland og fræga Finna, auk þess sem finnska þjóðkvæðið Kalevala og uppruni þess fær töluverða athygli.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir. Hún var að hætta störfum á Bókasafni Vestmannaeyja og eins og hún segir sjálf þá er hún að nota í fyrsta skipti titilinn eftirlaunaþegi. Við spurðum hana út í hennar störf á bókasafninu og fengum svo auðvitað að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
    Sigrún Inga talaði um eftirfarandi bækur:
    Banvænn fundur e. Anders de la Motte og Måns Nilsson
    Morð á opnu húsi e. Anders de la Motte og Måns Nilsson
    Sjö systur e. Lucindu Riley
    Vakandi hugur, vökult hjarta e. Thomas Keating
    Bókin um fyrirgefninguna e. Desmond Tutu
    Pollýanna e. Eleanor H. Porter
    Svo talaði Sigrún um höfundana Agöthu Christie, Ragnar Jónasson og Yrsu Sigurðardóttur, Arnald Indriðason og Sólveigu Pálsdóttur
    Tónlist í þætti dagsins:
    Þorparinn / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)
    Bird on a Wire / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
    Baba oni taxi / J.O. Oyesiku and his Rainbow Quintette
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Jónsi föstudagsgestur og matarspjall á bóndadegi
    Föstudagsgesturinn okkar í dag var söngvarinn góðkunni Jón Jósep Snæbjörnsson eða Jónsi í Svörtum fötum. Hann er fæddur 1.júní 1977 og hefur svo sannarlega komið víða við á tónlistarbrautinni. Í dag starfar hann sem viðskiptatengslastjóri hjá Aurbjörgu auk þess að vera enn á kafi í tónlistarbransanum. Jónsi rifjaði upp æskuárin á Akureyri, upphaf tónlistarferilsins, trommuleik í kjallaranum, skólagönguna, þríhornið, hljómsveitina Ringulreið, flutninginn til Reykjavíkur, ABBA sýninguna á Broadway, þegar hann keppti fyrir hönd Íslands í Istanbúl í Eurovision og fleira.
    Það var matarspjall í dag eins og alltaf á föstudögum. Á bóndadegi var ekki komist hjá því að ræða bóndamat, þorramat og fleira með Sigurlaugu Margréti og það voru skiptar skoðanir eins og svo oft áður.
    Tónlist í þætti dagsins:
    Dag sem dimma nátt / Í svörtum fötum (Magnús Þór Sigmundsson og Stefán Hilmarsson)
    Ég labbaði í bæinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason og Vilhjálmur Vilhjálmsson)
    Paradís / Í svörtum fötum (Einar Örn Jónsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Konur og hormónar, Geðhvörf fyrir byrjendur
    Við fjölluðum um bókina Geðhvörf fyrir byrjendur sem kom út í dag. Í henni er farið í gegnum greiningu geðhvarfa, líf með geðhvörfum, meðferð og bata. Guðmunda Sirrý Arnardóttir kennari er ein fjögurra höfunda bókarinnar kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá bókinni sem hún segir að miðli nýjustu þekkingu í bæði læknisfræðilegri og batamiðaðri fræði.
    Læknadagar voru haldnir í síðustu viku og þar var víða komið við. Meðal annars var málþing um hormónameðferð kvenna en hormónameðferð er beitt í miklum mæli við tíðahvarfaeinkennum. Slík meðferð getur aukið áhættuna á kvenkrabbameinum þar með talið brjóstakrabbameinum og legbolskrabbameinum. Á málþinginu var leitast við að skýra þá áhættu og við fengum þær í spjall, Sigurdísi Haraldsdóttur krabbameinslæknir og yfirlækni á Landspítalanum og dósent við Háskóla Íslands og Kolbrúnu Pálsdóttur kvensjúkdómalækni, yfirlækni kvenlækningateymis á Landspítalanum og sérfræðing í krabbameinslækningum kvenna.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson og Ólafur Haukur Símonarson)
    Quiet Nights of Quiet Stars / Henri Mancini og hljómsveit
    Rewrite / Paul Simon (Paul Simon)
    49 min
  • Smitsjúkdómar fortíðar og framtíðar og ACT meðferðarformið
    Við héldum áfram í dag að fjalla um nýafstaðna Læknadaga sem fóru fram í síðustu viku og þar voru mörg áhugaverð erindi flutt sem við reynum að gera einhver skil hér í Mannlega þættinum. Við höfum nú þegar fjallað um endurhæfingu aldraðra og á morgun eru það konur og hormónar en í dag beindum við sjónum okkar að smitsjúkdómum í fortíð, nútíð og framtíð. Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum við H.Í. og formaður félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar kom í þáttinn og fræddi okkur um það.
    Hjördís Inga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði sem hefur sérhæft sig í einstaklingmeðferð fullorðinna, kom svo í þáttinn. Hún fræddi okkur um ACT meðferðarformið sem telst til þriðju bylgju hugrænnar atferlismeðferðar og miðar að því að auka sálfræðilegan sveigjanleika. Hún sagði okkur frá þessa aðferð og hvernig hægt er að nýta sér hana til að takast á við til dæmis kvíða en hún stendur fyrir námskeiðinu Lifðu í sátt hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég veit að þú kemur / Trúbrot (Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson)
    One of These Things First / Nick Drake (Nick Drake)
    Sailing to Philadelphia / Mark Knopfler (Mark Knopfler)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    46 min
  • Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið
    Sterkasta briddsmót sögunnar, sem fram hefur farið hér á landi, hófst í gær og það verður spilað í fjóra daga í Hörpu. Margar af skærustu stjörnum briddsheimsins taka þátt. Áhugi á bridds hefur tekið kipp undanfarið hérlendis en um tuttugu þúsund Íslendingar spila bridds reglulega. Við forvitnuðumst í dag um bridds og því kom forseti Bridgesambands Íslands, Brynjar Níelsson, í þáttinn til að fræða okkur, bæði um bridds og alþjóðlegu mótin tvö sem fara fram hér á landi, því þegar hinu fyrra lýkur þá er blásið nánast um leið til leiks í öðru alþjóðlegu móti í Hörpu.
    Í dag lifir fólk almennt lengur en áður og það er líka virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir kom í þáttinn í dag. Hann er einn yfirlækna á Reykjalundi, formaður verkefnastjórnar verkefnisins Gott að eldast og hann var nýlega ráðinn til að vera yfir öllum endurhæfingadeildum á Landakotsspítala. Á nýafstöðnum læknadögum flutti Ólafur erindið Endurhæfing eldra fólks, hvert stefnum við? Hann fræddi okkur um stöðuna í þessu mikilvæga málaflokki.
    Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo í heilsuspjallið og við héldum áfram að tala um föstur og fleira í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Fyrir austan mána / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Loftur Guðmundsson)
    Ég veit þú kemur / Elly Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson og Ási í bæ)
    Heima / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    48 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners