Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Auglýsa eftir gömlum fötum, lífið fyrir norðan og heilsuspjallið
    Í mars byrja upptökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð um Vigdísi Finnbogadóttur. Rakel Garðarsdóttir, einn framleiðenda þáttanna, kom í þáttinn í dag og við forvitnuðumst um þættina og líka það að þau eru nú að auglýsa eftir gömlum fötum, hlutum og munum frá tímabilinu 1948 til 1980. Þau eru sem sagt að biðja fólkið í landinu um að kíkja í geymslurnar sínar og ef þau eiga föt eða muni sem eru einkennandi fyrir það tímabil sem þættirnir gerast á og eru tilbúin að lána eða gefa í framleiðsluna. Rakel útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.
    Útivistarkonan Valgerður Húnbogadóttir ákvað í haust ásamt fjölskyldu sinni að venda kvæði sínu í kross, segja bless við stressið í Reykjavík og prófa að búa í eitt ár á Akureyri. Eftir flutningana segir Valgerður að fjölskyldan hafi grætt nokkra klukkutíma á dag og komist á skíði nánast daglega. Valgerður sagði okkur betur frá þessum breytingum hér á eftir.
    Svo heyrðum við í Jóhönnu Vilhjálmsdóttur í heilsuspjallinu í dag. Hún talaði í dag um þær hugsanir sem koma upp t.d. um áramót og á tímamótum, þegar við ætlum mögulega að snúa taflinu við og gera átak í heilsunni og mataræði, að við gerum þær ekki í of miklum gassagangi, heldur stöldrum við og hlustum á líkama okkar. Jóhann útskýrði þetta betur fyrir okkur í spjallinu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Litla sæta ljúfan góða / Hljómsveit Ingimars Eydal (lag Thore Skogman, texti Valgeir Sigurðsson)
    Gling gló / Björk Guðmundsdóttir og tríó Guðmundar Ingólfssonar (Alfreð Clausen og Kristín Engilbertsdóttir)
    Theme From A Summer Place / Percy Faith Orchestra (Max Steiner) Days of Wine and Roses / Henry Mancini og hljómsveit (Johnny Mercer & Henri Mancini)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
    53 min
  • Aðgengi hjólastóla, vinkill og Sólveig Auðar lesandinn
    Við huguðum að aðgengismálum í upphafi þáttar þegar Akureyringurinn Sigrún María Óskarsdóttir kom í spjall til okkar. Sigrún María notar hjólastól og hún lenti í óskemmtilegri reynslu á milli jóla og nýjars þegar hún ákvað að skella sér í bíó. Þegar þangað var komið var hjólastólalyftan í bíóinu biluð og þá tóku við ýmiskonar vandræði. Sigrún María sagði betur frá þessari upplifun sinni í þættinum og hún ræddi líka um hjólastólaaðgengi sérstaklega fyrir norðan.
    Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Undir vinklinum í þetta skipti lenda nokkrar jólabækur, líka ævintýri frá Finnlandi auk þess sem umsjónarmaður stendur sig að því að vera örlítið farinn að hlakka til þess að komast á Þorrablót.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sólveig Auðar Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo auðvitað hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:
    The Great Alone e. Kristin Hannah
    The Bee Sting e. Paul Murray
    North Woods e. Daniel Mason
    The Goblin Emperor e. Catherine Addison
    Neverwhere e. Neil Gaiman
    Ævintýrið e. Vigdísi Grímsdóttir
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir)
    Come Down Easy / Carole King (Carole King og Toni Stern)
    Eldar minninganna / Ellý Vilhjálms, Svanhildur Jakobsdóttir og Einar Hólm (lag Mason & Carr, texti Benedikt Axelsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
    51 min
  • Katla Margrét föstudagsgestur og 13 ómissandi hlutir í eldhúsinu
    Föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins í þetta sinn var hin þjóðkunna leikkona Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Katla hefur komið víða við á leiklistarferli sínum, í sjónvarpsþáttum, á leiksviði, í kvikmyndum og áramótaskaupum og svo er hún í vinsælli hljómsveit, Heimilistónum, hvar hún leikur á píanó og semur lög og texta. Þessa dagana leikur hún meðal annars aðalhlutverkið í leikritinu Með guð í vasanum í Borgarleikhúsinu og hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýjum sjónvarpsþáttum, Kennarastofan, hjá Sjónvarpi Símans. Við fórum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum og í Kópavogi, hún talaði um leiklistarskólanámið og svo hvernig ferillinn hefur þróast í þættinum í dag.
    Sigurlaug Margrét kom svo í fyrsta matarspjall ársins og í dag ákváðum við að tala um, og taka til, 13 hluti sem eru ómissandi í eldhúsinu í tilefni þess að það er þrettándinn á morgun. Við gerðum lista hvert um sig og bárum þá saman í beinni útsendingu auðvitað og það var helst einn hlutur sem vakti ólíkar skoðanir hjá okkur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Anda inn / Heimilistónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir)
    Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger og Þórarinn Guðnason)
    Here Comes the Sun / Nina Simone (George Harrison)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Álfheiður, Guðfinna og Sálfræðistöðin og klassísk tyrknesk tónlist
    Við töluðum í dag við þær Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfinnu Eydal, þær eru báðar sérfræðingar í klínískri sálfræði. Eftir 45 ára samstarf, þar af hafa þær rekið Sálfræðistöðina í fjörutíu ár, ákváðu þær að loka stöðinni, líklegast fyrir fullt og allt, í lok ársins. Við spjölluðum við þær um þeirra langa og merkilega feril, en þær hafa, auk þess að skrifa saman fjölmargar bækur um sálfræði og mismunandi æviskeið, haldið fjölmörg námskeið og ráðstefnur meðal annars um breytingaskeiðið og vinnustaðasálfræði. Það var um nóg að tala við þær stöllur, Álfheiði og Guðfinnu, á þessum tímamótum.
    Það er ekki algengt að sjá auglýsta tónleika hér á landi þar sem eingöngu er flutt klassísk tyrknesk tónlist en í næstu viku verður flutt svokölluð klassísk tyrknesk Ottoman tónlist. Tónlistarstíll þessi nær aldir aftur í tímann og voru tyrknesku tónskáldin oft innblástur fyrir vestrænu tónskáldin. Tónlistarhefð þessi inniheldur framandi hljóðfæri fyrir okkur Íslendinga og er gríðarlega krefjandi fyrir flytjendur þar sem óvenjulegir taktar og míkrótónar eru mikið notaðir. Ásgeir Ásgeirsson tónlistarmaður hefur á undanförnum árum sótt tíma á tyrkneskt oud hjá nokkrum af færustu oud leikurum veraldar og hann ásamt Phaedon Sinis, sem er bandarísk/grískur hljóðfæraleikari, mynda Sinis-Ásgeirsson duo. Við heimsóttum Ásgeir og skoðuðum meðal annars þessi hljóðfæri.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Big Jumps / Emiliana Torrini (Emiliana Torrini & Dan Carey)
    Sing, Sing, Sing / Benny Goodman (Louis Prima)
    Ólafur reið með björgum fram / Ásgeir Ásgeirsson og félagar (Þjóðlag og Ásgeir Ásgeirsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Andstæður í veðri, póstkort og vinkill
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom í sitt vikulega veðurspjall og við spjölluðum við hann um andstæður í veðrinu um þessar mundir. Milt í N-Ameríku en fáheyrðar frosthörkur í Finnlandi og Norðurlöndunum og svo hæglátt veður hér á landi. Einar sagði okkur svo frá Norður-Atlantshafssveiflunni (NAO) og hvernig líklegt sé að hún móti veður á Íslandi a.m.k. fram eftir janúar. Við veltum líka fyrir okkur hvernig 2023 kom út hitafarslega á landinu.
    Við fengum fyrsta póstkort ársins 2024 frá Magnúsi R. Einarssyni. Í því sagði hann frá hátíðahöldum um jól og áramót í Eyjum. Síðan sagði Magnús frá ljósmengun, en hún truflar líkamsklukkuna og eykur líkur á ýmsum sjúkdómum. Hann sagði líka frá París sem er fyrirmynd flestra borga vegna skipulags og borgarlegs lífernis. Í lokin sagði svo af ferðalögum sínum á liðnu ári og þá sérstaklega af þeim níu ferðum sem hann fór til Berlínar í Þýskalandi.
    Svo að lokum fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Að þessu sinni fjallaði vinkillinn um að ákveða að það sem maður þarf að gera sé skemmtilegt eins og t.d. áramótauppgjörið eins og það horfir við sjálfstæðum atvinnurekendum. Vinkillinn fjallaði líka um gamalt og nýtt drasl og vandamál sem tengjast gangtruflunum gamalla bensínvéla.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sjaddi mollo / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Magnús Einarsson)
    Horfðu á mánann / Haukur Morthens (erlent lag, texti Pálmar Ólason)
    Tregagleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Einar Már Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Brot af því besta, jóga, þarmaflóran og upphrópunarmerkið
    Við vorum í upprifjunargírnum í dag og rifjuðum upp brot af því besta frá nýliðnu ári úr Mannlega þættinum. Við fengum til dæmis góða gesti í desember sem gáfu góð ráð gegn streitu og ráð um hvernig við getum notið lífsins betur og einfaldað hlutina, sérstaklega í aðdraganda jólanna. Við rifjuðum því upp viðtal við Ástu Arnardóttur jógakennara frá því í desember.
    Við heyrðum líka aftur viðtal við Birnu G. Ásbjörnsdóttur, sem var fyrst í þættinum í nóvember. Birna er rannsakandi við Háskóla Íslands og gestarannsakandi við Harvard Medical School, frum­kvöðull og stofnandi Jörth. Meltingarvegurinn og þarmaflóran hafa verið þungamiðjan í menntun Birnu og rannsóknum hérlendis og erlendis í tæpa tvo áratugi. Hún sagði okkur frá mikilvægi þarmaflórunnar og hvað hefur mest áhrif á hana, t.d. gervisæta af ýmsu tagi og neysla á orkudrykkjum.
    Við rifjum svo upp áhugavert viðtal við Önna Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, sem kom til okkar í byrjun nóvember og við ræddum við hana um upphrópunarmerkið. Nú, á tímum samfélagsmiðla, þar sem fólk skrifar færslur um allt milli himins og jarðar þá er áhugavert að skoða mismunandi notkun fólks á upphrópunarmerkinu. Sum nota það óspart, jafnvel mörg í einu, eftir nánast hverja einustu setningu, á meðan önnur nota það talsvert minna og jafnvel ekki. Anna fræddi okkur um upphrópunarmerkið, merkingu þess, notkun og sögu í viðtalinu.
    Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Helgi Þór Ingason)
    Chavosuite / Kronos Quartet (Ludwig van Beethoven)
    Tunglið mitt / Hildur Vala (Jón Ólafsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson)
    Allur lurkum laminn / Bjarni Arason (Hilmar Oddsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Áramótaspjall með Kristínu, Sóley og Þorgrími
    Í dag var síðasti vinnudagur ársins hjá flestum, gamlársdagur á sunnudaginn og við fengum því til okkar góða gesti í stúdíó 12. Þar er vítt til veggja og hátt til lofts sem gaf okkur rými til að rifja upp og horfa fram á við. Gestir okkar í dag voru þau Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur, Þorgrímur Þráinsson fyrrverandi knattspyrnumaður og rithöfundur, og Sóley Tómasdóttir ráðgjafi. Við fórum með þeim yfir árið sem er að líða, hápunkta og mögulega lágpunkta hjá þeim persónulega, jólahaldið og hefðirnar og svo hvernig þau horfa til ársins sem er þann mund að hefjast.
    Tónlist í þættinum
    Það snjóar / Sigurður Guðmundsson (erlent lag, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Skammdegisvísur / Ólafur Þórðarsson, Ragnhildur Gísladóttir og Magnús Þór Sigmundsson (ýmsir höfundar)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Jólaminningar Villa og Kára og Þríburar
    Við fengum í dag jóla- og áramótaminningar frá þeim bræðrum Vilhelmi Antoni og Kára Jónssonum. Þeir voru saman í hljómsveitinni 200 þúsund naglbítum og hafa þar að auki brallað ýmislegt saman í gegnum tíðina, til dæmis í sjónvarpinu. Við fengum skemmtilegar sögur af jólagjöfum, vonbrigðum, jólum í Skotlandi, áramótum, tilraunum með flugelda, misgóðar matarminningar og margt fleira í skemmtilegu spjalli við þá bræður.
    Heimildarmyndin Þríburar verður sýnd hér á RÚV á Nýárskvöld. Í henni er meðal annars fylgst með lítilli fjölskyldu sem á von á þríburum, fyrir eru þau þrjú, foreldrarnir og rúmlega ársgamall drengur. Við fáum að vera fluga á vegg í lífi fjölskyldunnar sem tekst á við margvíslegar áskoranir og fær óvæntan bónusglaðning í miðri á. Í myndinni er líka skyggnst inn í líf þríbura á öllum aldri og því velt fyrir sér hvernig sé að alast upp sem þríburi. Ragnhildur Steinunn, sem stendur að myndinni ásamt Eiríki Inga Böðvarssyni, kom í þáttinn í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í fjarska loga lítil ljós/200.000 naglbítar (200.000 naglbítar, texti Vilhelm Anton Jónsson)
    Walking in the Air / Peter Auty (Howard Blake)
    Lítill Fugl / Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson og Örn Arnarsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Elísabet Jökuls, jólasiðavinkill og Friðgeir lesandinn
    Við endurfluttum í dag viðtal við Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sem var áður í þættinum í júní. Á þeim tíma var hún búin að lýsa því yfir að hún ætlaði að taka það rólega, en svo þróuðust málin á talsvert annan veg. Hún var þvert á móti búin að koma sér í fullt af verkefnum, meðal annars var að hefjast vinna við nýja sýningu eftir hana í Þjóðleikhúsinu, Saknaðarilmur, sem frumsýnd verður í febrúar, og svo var hún að vinna í því að fá götu, eða öllu heldur stíg í Vesturbænum skírðan í höfuðið á sér, Elísabetarstíg.
    Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn var að þessu sinni borinn við ýmsa jólasiði, Guðjón velti fyrir sér muninum á jólahaldi þeirra sem eru við vinnu sína á jólum og þeirra sem hafa frídaga þá, auk þess sem hann rifjaði upp eitt næstumþvíslys er tengdist sósugerð á jólum.
    Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Friðgeir Einarsson rithöfundur, leikari og leikskáld. Hann sagði okkur aðeins frá nýjustu bókinni sinni, Serótónínendurupptökuhemlar, og svo auðvitað frá því sem hann hefur verið að lesa undanfarið og þær bækur og höfundar sem hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Stóð ég útí tunglsljósi / Björgvin Halldórsson (Heinrich Heine og Jónas Hallgrímsson)
    Lína Dröfn / Spilverk Þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Jólasnjór / Ellý og Vilhjálmur Vilhjálmsbörn (erlent lag, texti Jóhanna G Erlingsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Þorgerður Katrín föstudagsgestur og sósumatarspjall
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni og við komum víða við í spjallinu með henni. Hún rifjaði upp æsku sína og hvernig hún ætlaði sér að verða dýralæknir lengi vel, hvað henni leið vel í sveitinni en líka hversu gaman það var að alast upp í Breiðholtinu. En hvernig stóð á því að hún fór í stjórnmálin? Hvers vegna fór hún í lögfræði en ekki leiklist? Við heyrðum allt um það í skemmtilegu spjalli við Þorgerði Katrínu.
    Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti töluðum við um sósugerð fyrir jólin. Rjúpusósa, sósa með kalkúninum og hamborgarhryggnum. Ekki vorum við öll sammála um hvað má og hvað ekki í þeim efnum en við vorum þó sammála um að góð sósa getur svo sannarlega gert gæfumuninn.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (lag Callander & Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Sister Golden Hair / America (Gerry Beckley)
    Fairytale of New York / The Pogues & Kirsty MacColl (Jem Finer & Shane MacGowan)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners