Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið
    Sterkasta briddsmót sögunnar, sem fram hefur farið hér á landi, hófst í gær og það verður spilað í fjóra daga í Hörpu. Margar af skærustu stjörnum briddsheimsins taka þátt. Áhugi á bridds hefur tekið kipp undanfarið hérlendis en um tuttugu þúsund Íslendingar spila bridds reglulega. Við forvitnuðumst í dag um bridds og því kom forseti Bridgesambands Íslands, Brynjar Níelsson, í þáttinn til að fræða okkur, bæði um bridds og alþjóðlegu mótin tvö sem fara fram hér á landi, því þegar hinu fyrra lýkur þá er blásið nánast um leið til leiks í öðru alþjóðlegu móti í Hörpu.
    Í dag lifir fólk almennt lengur en áður og það er líka virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir kom í þáttinn í dag. Hann er einn yfirlækna á Reykjalundi, formaður verkefnastjórnar verkefnisins Gott að eldast og hann var nýlega ráðinn til að vera yfir öllum endurhæfingadeildum á Landakotsspítala. Á nýafstöðnum læknadögum flutti Ólafur erindið Endurhæfing eldra fólks, hvert stefnum við? Hann fræddi okkur um stöðuna í þessu mikilvæga málaflokki.
    Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo í heilsuspjallið og við héldum áfram að tala um föstur og fleira í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Fyrir austan mána / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Loftur Guðmundsson)
    Ég veit þú kemur / Elly Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson og Ási í bæ)
    Heima / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    48 min
  • Vaðlaheiðagöng, vinkill um mælieiningar og Þröstur lesandinn
    Vaðlaheiðagöng er heiti á nýju verki sem sviðslistahópurinn Verkfræðingar munu frumsýna á Nýja sviði Borgarleikhússins 2.febrúar. Það má segja að verkið fjalli um brothætt samband manns og náttúru. Karl Ágúst Þorbergsson, listrænn stjórnandi verksins er ný hættur sem lektor við sviðslistadeild LHÍ og farinn í húsamíðanám. Við ræddum við Karl í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni úr flóanum í dag. Í þetta sinn var vinklinum brugðið á lítinn leikþátt sem fjallar um mismunandi mælieiningar með áherslu á mun metrakerfisins og þeirri aðferða sem algengast er að beita í Bandaríkjum Norður-Ameríku.
    Svo var það lesandi vikunnar, en að þessu sinni var það Þröstur Helgason doktor í bókmenntafræði og stofnandi KIND útgáfu, en útgáfan stendur fyrir námskeiði um Eggert Pétursson listmálara í tilefni af útkomu nýrrar bókar um listamanninn. En við fengum auðvitað að vita hvaða bækur Þröstur hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þröstur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Ýmsar bækur sem fjalla á einn eða annan hátt um bláa litinn,
    Ljóðasafn Jónasar Hallgrímssonar
    All That is Solid Melts Into Air e. Marshall Berman
    David Scott Kastan: On Color
    Paradísamissir e. John Milton í nýrri þýðingu Jóns Erlendssonar
    Svo nefndi Þröstur fræðifólkið Michel Foucault, Roland Barthes, Matthías Viðar Sæmundsson, Ástráður Eysteinsson, Jón Karl Helgason, Dagný Kristjánsdóttir og Helga Kress, sem öll hafa á einn eða annan hátt haft áhrif á hans störf og skrif.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson, Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Heim / Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson og Ásgrímur Ingi Ásgrímsson)
    Winning Streak / Glen Hansard (Glen Hansard)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Magga Stína föstudagsgestur og áfram um bíxímat
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söng- og tónlistarkonan Magga Stína, eða Margrét Kristín Blöndal. Hún hefur afrekað ýmislegt á sínum tónlistarferli, sungið með hljómsveitum eins og Sýrupolkasveitinni Hr.ingi.r, Risaeðlunni, Bikarmeisturunum, Jazzhljómsveit Konráðs Bé og Dvergunum sjö. Hún hefur einnig gefið út sólóplötur í eigin nafni og eina núna nýlega, upptaka af tónleikum hennar í Hörpu árið 2020 hvar hún söng lög eftir Megas. Magga Stína kom víða við í spjallinu við fórum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Þingholtunum og í Vesturbænum. Hún talaði um tónlistina, fiðlubogann, metnaðarleysi i markaðsmálum og nýju plötuna.
    Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað. Við héldum áfram að tala um bíxímat, við fengum talsvert af ábendingum og skilaboðum frá hlustendum eftir spjall síðustu viku og nú fékk Guðrún tækifæri að lýsa sinni skoðun á bíxímat. Svo ræddum við nýtingu á afgöngum og heyrðum um lambalæri eftir palenstínskri uppskrift.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hope / Risaeðlan (Magga Stína og Risaeðlan)
    Naturally / Magga Stína (Magga Stína)
    Vinaminni / Magga Stína (Magnús Þór Jónsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Heilbrigð mörk, gamalt hús á Tene og heimskautaloftið
    Hvernig setjum við heilbrigð mörk? Bæði í einkalífi og í vinnunni. Ein grunnforsenda þess að vaxa í starfi eru heilbrigð streita og samskipti. Þau hafa m.a. áhrif á starfsánægju, menningu og starfsanda. Gyða Dröfn Tryggvadóttir er lýðheilsufræðingur EMPH og sérfræðingur í áfalla-og uppeldisfræðum. Hún kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um hvernig við getum eflst seiglu, bætt samskipti og aukið færni á ánægju í lífi og starfi.
    Við heyrðum svo í Snæfríði Ingadóttur fjölmiðlakonu sem er ásamt fjölskyldu sinni á Tenerife, en hún og eiginmaður hennar keyptu hús þar sem var í niðurníðslu og þau hafa verið að gera það upp. Fjölskyldan tók sig sem sagt upp í ágúst síðastliðnum og keyrði frá Akureyri suður til Tene, þ.e. með hjálp tveggja bílaferja. Það hefur margt áhugavert komið upp á hjá þeim, til dæmis var húsið sem þau keyptu hvergi til á pappírum og í því hafa þau fundið áhugaverða hluti sem fyrri eigendur höfðu skilið eftir. Snæfríður sagði okkur betur frá þessu í þættinum.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Kuldinn verður aðalumræðuefnið, sem sagt þetta kalda veður, snjókoman í nótt og kuldinn á landinu. Hvað er heimskautaloft og hvað einkennir það? Þetta tengist all sama útbreiðslu hafíss og fleiru.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það styttir alltaf upp / Ragnar Bjarnason (Jón Jónsson)
    Brillantina Bengalese / Paulo Conte (Paulo Conte)
    Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Fjölmenningardeiglan, jólabókaflóðið og Grænhöfðaeyjar
    Við kynntum okkur Fjölmenningardeigluna á vegum Þjóðminjasafnsins í þættinum dag. Þjóðminjasafnið hóf að safna upp úr 1960 upplýsingum um siði og venjur, hátíðisdaga og daglegt líf í íslensku samfélagi, en í þetta sinn beina þau sjónum að pólskum rótum og daglegu lífi á Íslandi. Safnið óskar eftir frásögnum fólks af pólskum uppruna af íslensku samfélagi, en markmiðið er að safna upplýsingum um upplifun einstaklinga innan pólska samfélagsins á Íslandi af veru þeirra hér á landi. Helga Vollertsen, sérfræðingur þjóðhátta hjá Þjóðminjasafninu kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu.
    Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom til okkar í dag en hann mun gera upp jólabókaflóðið fyrir síðustu jól á bókasafni Kópavogs, nokkuð sem hann hefur gert í mörg ár víða um land. Jón Yngvi kom í þáttinn.
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póskortið barst að þessu sinni alla leið frá Cabo Verde, eða Grænhöfðaeyjum. Magnús sagði líka frá fyrstu ferð sinni til Portúgal en þar koma við sögu Biskupstungur, Hong Kong, og Evrópukeppnin í fótbolta meðal annars. Núna er hann a Cabo Verde og sagði frá upplifun sinni á þessum sérkennilegu eyjum sem eiga sér dramatíska sögu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Manstu ekki eftir mér? / Stuðmenn (Ragnhildur Gísladóttir og Þórður Árnason)
    Got to get trough another day / Carole King(Carole King)
    Nounous et pioupious /The Metropole Orkest stjórnað af Jan Stulen (Roger Roger)
    Besame Mucho / Cesária Evora (Consuelo Velasquez)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Grindavíkingar þurfa langtímalausnir, Tala og spila
    Þær hamfarir sem nú ganga yfir í Grindavík og nágrenni eru af þvílíkri stærðargráðu að það er eiginlega ómögulegt að setja sig í spor íbúana en eins og einn íbúi sagði um helgina, það er helst að þau sem upplifðu gosið í Vestmanneyjum gætu það. Við fáum þrjá íbúa Grindavíkur til að koma til okkar í hljóðstofu hér í upphafi þáttar en það eru þau Páll Þorbjörnsson fasteignasali, Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og fyrrum bæjarfulltrúi í Grindavík og Haukur Guðberg Einarsson formaður knattspyrnudeildar UMFG. Þau fóru með okkur yfir stöðuna í dag, bæði hjá þeim persónulega og hjá samfélaginu öllu í Grindavík.
    Við kynntum okkur svo verkefni sem heitir Tala og spila, sem eru viðburðir sem fara fram í Kópavogi og eru hugsaðir sem notaleg samverustund til að fólk úr ólíkum áttum og úr viðkvæmum samfélagshópum geti kynnst og valdeflst. Vigdís Másdóttir, kynningar og markaðsstjóri MEKÓ, Auður Loftsdóttir, leiðbeinandi sem heldur utan um verkefnið, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir stofnandi Getu hjálparsamtaka og Maria Gabríella Flores, sem er sjálfboðaliði á viðburðunum, komu í þáttinn.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vinátta okkar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg)
    Ariette / Dag Arnesen trio (Edward Grieg)
    Undir rós / Egill Ólafsson og Kristjana Stefánsdóttir (Egill Ólafsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Túlka fréttir á pólsku, vinkill dagsins og Karen lesandinn
    Þegar neyðarástand ríkir, eins og núna út af eldgosinu hjá Grindavík, er mikilvægt að nauðsynlegar upplýsingar komist til skila til ólíkra hópa. Það er til dæmis gert með aðstoð túlka, eins og þeirra Martynu Ylfu Suzko og Aleksöndru Karwowska, en þær hafa undanfarið túlkað aukafréttatíma RÚV og upplýsingafundi Almannavarna yfir á pólsku í beinni útsendingu á ruv.is. Þær Martyna og Aleksandra komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá störfum sínum.
    Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Að þessu sinni talaði Guðjón Helgi um vefinn ísmús, sem er hafsjór af fróðleik, og svo bar hann líka vinkilinn við boðskap ævintýra, velti fyrir sér hvaða tilgangur gæti hafa verið með sumum ævintýrum til forna. Svo heyrðum við gamalt ævintýri sem finna má á ísmús.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir handritshöfundur. Hún hefur verið ein handritshöfunda fjölda sjónvarpsþátta, til dæmis þáttanna Venjulegt fólk, Arfurinn minn og svo í síðasta áramótaskaupi RÚV. Og nú er búið að frumsýna nýja sjónvarpsþáttaröð, Kennarastofuna, þar sem hún er einnig í höfundateyminu. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Karen talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Þögli sjúklingurinn e. Alex Michaelides
    Everything I Know bout Love e. Dolly Alderton
    Duft e. Bergþóru Snæbjörnsdóttur
    Leyndardómur ljónsins e. Þorgrím Þráinsson
    Disneybækurnar
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ramóna / Ellý Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Wayne & Gilbert, texti Þorsteinn Gíslason)
    Lonestar / Norah Jones (Lee Alexander)
    Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
    51 min
  • Þórhildur Örvarsd. föstudagsgestur, matarspjall um bixímat
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir. Þórhildur er fædd og uppalin á Akureyri og hóf snemma feril sinn sem söngkona enda sannarlega fædd inn í mikla tónlistarfjölskyldu. Á ferlinum hefur hún tekist á við ólíka stíla í tónlistinni, til dæmis óperur og söngleiki, heimstónlist, popp, jazz og kvikmyndatónlist. Þórhildur hefur í mörg ár kennt söng og raddþjálfun víða. Þórhildur sagði okkur betur frá sjálfri sér, æskunni á Akureyri, námsárum í Reykjavík, Danmörku og nú síðast í Skotlandi og svo fengum við að vita hvað hún er að fást við þessa dagana.
    Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en í spjallinu í dag tókum við fyrir svokallaðan bíxímat, sem er matur sem fólk hefur mjög misjafnar skoðanir á.
    Tónlist í þættinum í dag:
    California / Joni Mitchell (Joni Mitchell)
    Syngur lóa / Torrek (þjóðlag)
    Willie Stewart/Molly Rankin / Eddi Reader (af plötunni The Songs of Robert Burns)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
    52 min
  • Ný námsbraut hjá VMA, hrós- og þakkarkort, huggunarmatur
    Í Verkmenntaskólanum á Akureyri er nú gerð tilraun með nýja námsbraut fyrir nemendur sem hafa ekki íslensku að móðurmáli. Þetta tilraunaverkefni var sett af stað vegna þess að nemendum sem höfðu engan grunn í tungumálinu fjölgaði hratt. Nýju brautinni er ætlað að skapa umgjörð í kringum þennan fjölbreyta hóp til að hjálpa þeim að læra íslensku sem nýtist svo í áframhaldandi námi eða á íslenskum vinnumarkaði. Við kíktum í heimsókn í Verkmenntaskólann og ræddum þar við þær Jóhönnu Björk Sveinbjörnsdóttur og Hörpu Jörundardóttur sem sögðu betur frá brautinni.
    Jensína Edda Hermannsdóttir leikskólastýra kom svo til okkar í dag, hún sagði okkur frá því hvernig þau hafa æft og iðkað jákvæða athygli með börnunum í Leikskólanum Laufásborg, þar sem þau notast meðal annars við hróskort og þakkarkort. Jensína útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.
    Við fengum svo innslag sem Björk Þorgrímsdóttir vann fyrir Mannlega þáttinn, en hún var starfsnemi hér á Rás 1. Hún var að velta fyrir sér fyrirbærinu comfort food, sem gæti verið þýtt á íslensku sem huggunarmatur. Hún spurði fjórar manneskjur á förnum vegi um þeirra huggunarmat. Svo talaði hún við Jón Þór Pétursson, nýdoktor í þjóðfræði um huggunarmat og hvað það er í raun flóknara að borða í dag þrátt fyrir allsnægtir og auðvelt aðgengi.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Danska lagið / Bítlavinafélagið (Eyjólfur Kristjánsson)
    Helga / Magnús Kjartansson (Magnús Kjartansson
    Rock'n'roll öll mín bestu ár / Brimkló (lag K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
    51 min
  • Með opin augu, einangrun eldri borgara, Alzheimer
    Við fræddumst í dag um heimildarmyndina Með opin augun, en hún fjallar um þær Ásrúnu Hauksdóttur og Brynju Arthúrsdóttur, á tuttugu ára tímabili, skynjun þeirra og upplifun á umhverfinu, en þær misstu báðar sjónina á þrítugsaldri. Sem sagt er fjallað í myndinni um þeirra lífssýn án sjónarinnar. Brynja kom til okkar í dag ásamt Ástu Sól Kristjánsdóttur, framleiðanda, leikstjóra og handritshöfundi myndarinnar, hún stendur að myndinni ásamt Elínu Lilju Jónsdóttur. Brynja sagði okkur sína sögu og hvernig hún missti sjónina og Ásta frá sögu Ásrúnar sem lést fyrir rúmu ári, en Ásta er dóttir hennar. Þær sögðu líka frá söfnun sem er í gangi á karolinafund.com þar sem þær eru að safna fyrir framleiðslukostnaðinum.
    Í læknablaðinu sem kom út núna í vikunni kemur fram að fólk frá 75 ára aldri á Akureyri sé hrumara eftir Covid faraldurinn og hefur einangrað sig meira. Þetta segir öldrunarlæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri. Eldra fólkið sé margt hvert hætt að mæta í félagsstarf, afþakkar félagsskap og ýmislegt annað tengt starfi eldri borgara. Við ákváðum að ræða þetta aðeins í Mannlega þættinum og fengum til okkar viðtal Karl Erlendsson en hann er formaður félags eldri borgara á Akureyri.
    Svo forvitnuðumst við líka um stuðningshópa sem starfræktir eru á Akureyri fyrir fólk með Alzheimer og aðstandendur þeirra. Það er iðjuþjálfinn Björg Jónína Gunnarsdóttir sem heldur utan starf hópanna, og allt í sjálfboðavinnu. Björg kom í þáttinn í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson)
    Hún og verkarinn / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    Scenic Railway / The Metropole Orkest ft. Jan Stulen (Roger Roger)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
    49 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners