
Sign up to save your podcasts
Or


Myrka Íslandi var boðið að marinera sig í kvenréttingamálum í eina klukkustund og tóku því fegins hendi! Þemað var konur, réttindabarátta og bókmenntir. Sigrún kaus að ræða um sitt helsta átrúnaðargoð og tótemdýr; Auði Haralds. Fyndnari og kaldhæðnari penna er erfitt að finna en hún gagnrýndi líka samtíma sinn og sagði frá sinni persónulegu reynslu sem féll oftar en ekki í grýttan jarðveg samborgaranna. Bækur hennar Hvunndagshetjan frá 1979 og Læknamafían frá 1980 segja frá reynsuheimi einstæðrar móður sem glímir við vandamál sem konur standa enn frammi fyrir, 50 árum síðar. Þátturinn var tekinn upp í Safnahúsi Borgarfjarðar ásamt prúðum áhorfendum og styrktur af Bókasafnssjóði.
Það er komið að síðasta þætti 9. seríu! Þar sem við förum yfir ferðir Íslendinga yfir Atlantshafið fyrir um 150 árum, ástæður þeirra og afdrif. Í leiðinni sendum við leiðréttingar út í alheiminn, gagnrýnum sértrúarsöfnuði, breytum okkur í bæði jarð og veðurfræðinga, sönnum um leið að við erum hvorugt, íhugum heimþrá og þjóðerni og Sigrún óskar eftir ættingjum sem gætu hafa flust til Ameríku á laun.
Það er komið að einni þrautseigustu og skæðustu pest síðari tíma. Margar kynslóðir Íslendinga voru haldnar mjög djúpstæðum ótta við berklana sem gátu gert fólk að sjúklingum um árabil eða að öryrkjum ævilangt og fellt heilu fjölskyldurnar. Veðurguðirnir höfðu skoðanir á þessum þætti og gerðu sitt besta til að koma sér í útsendingu. Um miðbik þáttar þurftum við að færa Batmobile í betra skjól fyrir haust rigningunni. Boðskapur dagsins: alltaf að klára sýklalyfjaskammtinn sem þið fáið úthlutaðan! Við viljum ekki fara aftur í hrossalækningarnar
Í ljósi messufalls síðustu viku, töluðum við tvöfalt í þessum þætti! Um vistarbandið ógurlega, þrælahald, evrópskt kóngafólk, fordæmingu á verslun, landbúnaðarsamfélagið, eilífðar baráttuna um ódýrt vinnuafl, hörundssára bændastétt og æsilegar deilur um sjónvarpsþætti á Rúv. Nýyrði dagsins eru afbendismenn, skaufstofan og saurfíklar. Niðurstaðan er að samtal og endurmat á viðteknum söguskoðunum er bráðnauðsynleg öllum þjóðum, ekki síst gagnýni á krabbameinið sem hið kapítalíska, þjóðernissinnaða feðraveldi er! Eitt barn gleymdist við upptöku þessa þáttar.
Við elskum konur og ekki síst ef þær heita Anna! Tíminn eftir siðaskiptin einkenndust af miklum eldmóði í siðferðismálum á Íslandi. Sem hentaði Önnu á Stóruborg, hefðarkonu á 16.öld sem átti margar hurðir, afar illa. Þar sem sá maður sem henni hugnaðist að giftast var ekki henni samboðinn samkvæmt Páli bróður hennar. Sem varð til þess að þau systkinin hófu margara ára störukeppni þar sem hvorugt vildi gefa eftir, þrátt fyrir að sönnunargögnin hrúguðust upp.
Langt og flókið mál en það er svo áhugavert og mikilvægt að langur þáttur gæti verið fyrirgefanlegur. Menn eru með frekju og dramaköst, klaga yfirmenn, stinga á sig jörðum, deyja úr fátækt, þröngva presta til trúskipta, tala tungum, stunda byssubardaga í kirkjum og hanna almennt ljómandi gott handrit fyrir HBO þáttaraðir. Það er nú aldeilis gott að karlmenn eru skynsamir og stjórnast aldrei af tilfinningasemi. Meira snakk, meiri kirkjur! Anna er með dólg og læti við að búa til dúska í handavinnuhorninu enda beinn afkomandi biskupsdólgsins!
Hvað er þjóðlegra og napurlegra en að eigra einn síns liðs á íslenskri heiði? Sigrún er í það minnsta heilluð af slíkum sögum. Við förum til Skagafjarðar og fylgjumst með tveimur mönnum í eftirleitum á Hofs afrétt. Eða er það Hofsa frétt? Boðskapurinn er: ekki fara að heiman síma og nestislaus!
Spíritismi er málefni sem Sigrúnu hefur lengi langað að ræða á einhvern hátt. Hún fann nokkrar sögur af yfirnáttúrulegri reynslu en efnið er svo víðfeðmt og það var svo langt síðan þær Anna hittust að þátturinn varð óralangur því það gleymdist eiginlega að slökkva á upptökutækinu! Þið fáið því að heyra ýmislegt á bak við tjöldin en það er allt siðsamlegt og hollt tal um álfatrú, innri íhugun, andleg veikindi, legsteina, ferðamannastaði, hvað verður um Grindavík? Og börnin, er enginn að hugsa um börnin!?
Við grófum upp óþekkt dauðsfall! Næstum í útlöndum, því atburðurinn gerðist í Vestmannaeyjum. Undarlegt mál sem hlýtur að vera morð. Við sögu koma mektar menn, skítlegur Dani, grunsamlegar konur, íbitin epli, forvitnar klöguskjóður, sögusagnir og við pirrum okkur að vanda yfir spurningum sem enginn spurði við yfirheyrslur á fólki í denn.
Hver elskar ekki að heyra að til hafi verið rosalega áhugaverð frásögn af ferðalagi en að hún sé því miður alveg týnd? Ekki Sigrún! Hún fær útundanótta af því að hafa misst af 600 ára gamalli ferðasögu. En er beinar heimildir þrýtur er alltaf hægt að fylla upp í með ágiskunum og klassískum skáldskap. Kannski er hún bara svona forvitin um sígillda upphafna ríkisbubba sem halda að þeir séu allra manna bestir? Sennilega af því að hana dreymir sjálfa um að dragnast með lútuspilandi sagnaskáld hvert sem hún fer.
From the publisher's feed

462 Listeners

65 Listeners

130 Listeners

90 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

34 Listeners

18 Listeners

27 Listeners

2 Listeners