Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Anna María Tómasdóttir
    Anna María er að leikstýra verkinu The Last Kvöldmáltíð.
    Þetta er fyrsta verkefnið sem að Anna María leikstýrir sjálf en hún hefur á síðustu árum unnið að fjölbreyttum verkefnum innan sviðslista og kvikmynda. Hún útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ árið 2012 og lauk MFA gráðu frá í leikstjórn frá The Actors Studio Drama School í New York árið 2017 þar sem hún lærði einnig leiklist. Hún var aðstoðarleikstjóri Atómstöðvarinnar og Kópavogskrónikunnar í Þjóðleikhúsinu og er aðstoðarleikstjóri Framúrskarandi vinkonu sem sýnt verður á næsta leikári í Þjóðleikhúsinu. Anna María hefur unnið að fjölda kvikmynda á síðstu árum.
    40 min
  • Elín Hirst
    Spænska veikin lifir í minningu heimsins. Hún geisaði þegar fólk hafði þegar háð sitt stríð í þeim hildarleik sem fyrri heimsstyrjöldin reyndist heimsbyggðinni á ýmsan hátt. Á síðustu tímum hafa vísindamenn leitað veirunnar í frosnum líkum fórnarlamba. Elín fór til Svalbarða til að fylgjast með uppgreftri þar, og hún segir frá þeirri upplifun allri.
    40 min
  • Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
    Ekkert af mínum ævintýrum, hvorki í tónlistinni né lífinu, væri mögulegt án Höllu,? segir Víkingur Heiðar Ólafsson um eiginkonu sína Höllu Oddnýju Magnúsdóttur, viðburða- og skipulagsstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem á stóran þátt í sköpunarferli hans og ákvörðunum. Saman eiga þau tveggja ára dreng og það er annar á leiðinni í vor. Víkingur hefur atvinnu af því að ferðast um heiminn og spila á tónleikum en fagnar því að geta nú stýrt tíma sínum betur og verið með fjölskyldunni.
    Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á langþráðum tónleikum í Hörpu um helgina. Þeir fyrstu voru í gærkvöldi klukkan átta, á sama tíma í kvöld eru aukatónleikar og svo aðrir á sunnudag og þriðjudag. ?Tilfinningin að vera að fara að spila í Hörpu er geggjuð. Maður þorir varla að trúa því. En nú er held ég engin spurning að þetta verði,? segir Víkingur í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1. Miðar á tónleikana fóru fyrst í sölu haustið 2019 og þeir áttu að fara fram á síðasta ári en vegna heimsfaraldursins varð að fresta þeim þar til nú.
    40 min
  • Kjartan Darri Kristjánsson leikari
    Kjartan Darri segir frá nýju íslensku barnaleikriti sem snertir bæði hjartað og hláturtaugarnar
    Argentína er fjörug tíu ára stelpa sem ferðast með pabba sínum um höfin í kafbát í ókominni framtíð eftir að öll lönd eru sokkin í sæ.
    40 min
  • Aron Guðmundsson
    Foreldrar Arons Guðmundssonar stjórnmálafræðings létust með nokkuð skömmu millibili, móðir hans eftir glímu við taugahrörnunarsjúkdóminn MND en faðir hans af slysförum nokkrum árum síðar. Aron hefði aldrei trúað því að annað áfall gæti dunið á eftir að hann missti móður sína. Hann segir mikilvægt að leyfa sér að finna fyrir sorg og að gráta stundum.
    Aron Guðmundsson stjórnmálafræðingur og varaformaður MND-félagsins hefur síðustu mánuði unnið að hlaðvarpsþáttum um snjóflóðin í Súðavík. Þættirnir eru lokaverkefni hans í blaða- og fréttamennskunámi sem hann lýkur í sumar. Hann hlakkar til útskriftarinnar en finnur líka fyrir miklum trega yfir því að fólkið sem hefur staðið honum næst í áranna rás, móðir hans og faðir, geta ekki verið á staðnum til að fagna þessum áfanga með honum. Aron var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1 þar sem hann sagði frá missinum og hvernig hann hefur lært að lifa með sorginni.
    40 min
  • Hannes Sasi Pálsson
    Hún setur upp heyrnartól til að hlusta á tónlist, snýr baki í athöfnina og kveikir sér í sígó,? rifjar Hannes Sasi Pálsson eigandi Pink Iceland ferðaskrifstofunnar um systur brúðguma sem sýndi það í verki í athöfninni hve illa henni væri við brúðina. Þegar gleðispillirinn var á bak og brott gekk athöfnin að óskum eins og hin 120 brúðkaupin sem Hannes hefur verið viðstaddur í starfi sínu.
    Hannes Sasi Pálsson er einn stofnandi ferðaskrifstofufyrirtækisins Pink Iceland, sem tekur mið af á þörfum og menningu hinsegin fólks. Fyrirtækið hefur í kjölfar aðgerða á landamærum og lokana einbeitt sér að framleiðslu á húðvöru sem er unnin úr iðnaðarhampi sem seld er í nýrri búð þeirra Æsir Iceland CBD. Hannes segir að fyrirtækið sé honum sem fjölskylda og að saman myndi allir sem að því koma kærleiksríkt og mikilvægt samfélag. Í Segðu mér á Rás 1 sagði Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur frá ævintýrum sínum.
    40 min
  • Silvia Erla Melsted
    Sylvía Erla Melsted greindist seint með lesblindu því hún kom sér ung upp aðferðum til að fylla í eyðurnar. Í nýrri heimildarmynd segir hún sögu sína og annarra. ?Það er það sem braut í mér hjartað, þegar ég byrjaði á þessu 17 ára,? segir hún um það þegar henni varð ljós aðstöðumunur þeirra sem eru með lesblindu.
    Í heimildarmyndinni Lesblinda kynnast áhorfendur Sylvíu og öðrum viðmælendum sem glímt hafa við lesblindu og hindranir henni tengdri. Sylvía greindist sjálf seint lesblind, undir lok 9. bekkjar. ?Ég átti ekki erfitt með að byrja að læra að lesa, ég las bara stundum svolítið vitlaust,? segir hún í Segðu mér á Rás 1. Það var ekki fyrr en hún fór að læra dönsku og ensku að það kom í ljós að hún átti í erfiðleikum með smáorð. ?Ég gat ekki sett mynd á þau. Því þegar ég hugsa orð þá hugsa ég þau myndrænt. Ég tengi þetta saman. Þegar ég les hundur þá sé ég mynd af hundi en þegar ég sé þessi milliorð þá fer allt í þvælu.?
    40 min
  • Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðakona
    Anna Hildur Hildibrandsdóttir fylgdi Hatara-hópnum til Ísraels þegar hljómsveitin tók eftirminnilega þátt í Eurovision árið 2019 og gerði heimildarmynd um ferðalagið. Hópnum tókst að valda nokkrum pólitískum titringi á svæðinu og þegar stigin voru kynnt á úrslitakvöldinu supu margir hveljur þegar liðsmenn sveitarinnar drógu upp palenstínska fánann og veifuðu honum fyrir framan myndavélarnar.
    Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðar- og fjölmiðakona er nýflutt heim frá London þar sem hún var búsett í þrjá áratugi. Í Segðu mér á Rás 1 sagði hún frá borgarlífinu í London, fjölmiðlabransanum og Eurovision-myndinni A song called hate sem hefur ferðast um heiminn og fer loksins að rata á skjáinn.
    Hefur kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt
    Anna Hildur tekur undir að hún sé kjörkuð og segist hafa hugrekkið frá foreldrum sínum. ?Pabbi heitinn og mamma, sem er enn á lífi, eru bæði ótrúlega dugleg og klár og þau hafa gert margt skemmtilegt í lífinu. Mér finnst gaman að ögra og takast á við áskoranir,? segir hún. ?Ég hef oft kjark til að gera það sem öðrum finnst erfitt að gera.?
    38 min
  • Agnieszka Narkiewicz-Czurylo
    Agnieszku Narkiewicz-Czurylo talar nær lýtalausa íslensku og saga hennar er mjög skemmtileg um hvernig hún endaði hér á Islandi og í sínu starfi. Hvað varðar starfið hennar sem þjónustufulltrúi í bankanum þá er hún ?fræg? hjá pólska samfélaginu hér því svo margir fara til hennar til að fá bankaþjónustu á móðurmálinu og oft er röð út að dyrum af fólki að leita til hennar á mánaðarmótunum. Hún er menntuð í Póllandi en starfaði fyrst sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara áður en hún manaði sig upp í að sækja um í bankageiranum, og það var vegna hvatningar frá samstarfsfólki hennar á Landakoti. Hún er mjög innvinkluð í pólska samfélagið hér og það íslenska .
    40 min
  • Aðalheiður Sigursveinsdóttir
    Aðalheiður ráðgjafi hefur alltaf haft áhuga á orðum og segir frá því að þegar hún var lítil heyrði hún ílla, og átti erfitt með að lesa, og hefur oft ruglast á orðum og miskilið orð.
    Hún útskýrir kosti þeirra sem eru með ADHD og ástæðuna fyrir því að stjórnendur eru oft að auglýsa eftir þeim sem eru með ADHD án þess að vita af því. Aðalheiður nefnir einnig að það þurfi kannski að gefa þeim örðuvísi endurgjöf en þeim sem eru ekki með ADHD.
    39 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

7 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

4 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners