
Sign up to save your podcasts
Or


Í þætti vikunnar af Seinni Níu fáum við til okkar Jóhann Alfreð Kristinsson, sem er þekktur sem uppistandari í Mið-Ísland, dagskrárgerðarmaður og margt fleira.
Jóhann byrjaði að leika golf fyrir nokkrum árum og hefur fengið mikla golfbakteríu. Hann er með 34 í forgjöf en stefnir á að komast niður fyrir 27, svo hann geti tekið þátt í 4. flokki í Meistaramóti GR, þar sem hann er félagi.
Í þættinum er farið víða. Jóhann velur fimm þægilegustu golfholur landsins, sérstaklega með hærri forgjöf kylfinga í huga. Einnig deilir hann eftirminnilegri sögu af því þegar hann sló glæsihögg á Korpunni fyrir framan íslenskan stórleikara.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
🥻 - J. Lindeberg - ntc.is
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfsvítan
Ólafur Björn Loftsson heimsótti okkur þessa vikuna í Seinni níu. Ólafur er í dag landsliðsþjálfari Íslands í golfi en var um tíma atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í höggleik.
Ólafur rifjar upp sigur sinn í Íslandsmótinu í höggleik árið 2009 þegar hann fékk fjóra fugla í röð á síðustu holunum til að komast í umspil um titilinn.
Óli kom með powerrank um þá fimm bestu sem hann hefur spilað með. Ótrúlegur listi þar sem Brooks Kopka og Tommy Fleetwood koma við sögu.
Logi kynnti okkur fyrir svari við spurningu frá Seinni níu á Vísindavefnum þar sem regla pýþagórasar kemur við sögu.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
🥻 - J. Lindeberg - ntc.is
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfsvítan
Gestur vikunnar í Seinni níu er Haraldur Haraldsson sem nýr framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum Oddi. Hann var að ljúka störfum sem framkvæmdastjóri hjá Víkingi Reykjavík eftir 14 ára starf en félagið hefur farið í gegnum mikið gæfuskeið á síðustu árum.
Í þættinum er aðeins farið yfir fótbolta en aðallega rætt um golf. Haraldur er fínasti kylfingur með um 8 í forgjöf og hefur spilað golf í um 30 ár. Hann er hluti af stórum golfhópi sem spila alla mánudaga yfir sumartímann.
Powerrank vikunnar kemur frá Haraldi en hann valdi fimm bestu golfvellina á Belek svæðinu í Tyrklandi. Play er að fljúga nokkur hundruð kylfingum á það svæði í vor.
Í þættinum er komið víða við. Halli segir okkur frá kæru í meistaramóti, golfi í Andorra og hvernig hann fór holu í höggi - en samt ekki.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
🥻 - J. Lindeberg - ntc.is
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er enginn annar en Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann steig nýverið úr stóli formanns Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa leitt flokkinn frá árinu 2009. Bjarni byrjaði í golfi þegar hann var í háskólanámi í Miami og ætlar sér nú að taka golfið föstum tökum eftir að hafa spilað lítið síðustu ár – stjórnmálin voru einfaldlega að flækjast fyrir.
Bjarni er með um það bil 23 í forgjöf, en markmið hans fyrir árið er að lækka hana niður fyrir 20. Stóra áskorun ársins er þó að sannfæra maka sinn um að hefja golfiðkun.
Í þættinum er farið víða. Við ræðum afnám vörugjalda á golfkylfur og fatnað, sem hafði mjög jákvæð áhrif á verð golfvara í samanburði við nágrannalöndin. Bjarni segir okkur stuttlega frá samtali sínu við Donald Trump Bandaríkjaforseta sem þeir áttu seint á síðasta ári. Jafnframt deilir hann skemmtilegri sögu af því þegar hann mætti með golfsettið í fjármálaráðuneytið – bjartsýnn um að hann gæti laumað sér í golf.
Að lokum velur Bjarni draumahollið sitt, en Logi kynnir einnig lista yfir fimm bestu upphafsholurnar fyrir Seinni níu, sem er afar áhugaverð umræða.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
🥻 - J. Lindeberg - ntc.is
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Gestur okkar þessa vikuna er lögmaðurinn og varaþingmaðurinn Árni Helgason. Má segja að Árni hafi verið ein fyrsta hlaðvarpsstjarna Íslands, en hann stýrði hlaðvarpinu Hismið um árabil við miklar vinsældir.
Árni hóf að stunda golf fyrir nokkrum árum og er með um 22 í forgjöf. Í þættinum er fjallað ítarlega um glæstan sigur hans í 4. flokki á Meistaramóti Nesklúbbsins í sumar.
Hann segir frá heimsókn sinni á Pinehurst-golfsvæðið og þeirri einstöku upplifun að leika með kylfusveini.
Að venju er rætt um ýmislegt fleira en golf, enda er Árni einstaklega léttur og hress kappi.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Við fengum glaðasta golfkennara landsins, Rögnvald Magnússon hjá Golfklúbbnum Oddi, til að ljúka með okkur febrúarmánuði. Röggi mætti til okkar nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann var að leika á Pinehurst golfsvæðinu.
Röggi er frá Bolungarvík og við fengum kappann til að velja fimm bestu golfholurnar á Vestfjarðakjálkanum.
Hann sagði okkur einnig frá því þegar hann felldi tár eftir að hafa endurheimt járnasettið sitt sem hann seldi fyrir mörgum árum. Einnig rifjum við upp kvikmyndina Albatross sem gerist einmitt á Syðridalsvelli í Bolungarvík.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er hagfræðingurinn Þórður Gunnarsson. Hann er reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál en hefur einnig mjög mikinn áhuga á golfi.
Í þættinum förum við aðeins yfir TGL-golf sem hefur vakið mikla athygli á síðustu vikum. Þórður velur fimm skemmtilegustu golfholur landsins og einnig draumahollið.
Þórður segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á Nesvellinum í sumar og hvers vegna kylfingar eiga alltaf að leika seinni níu holurnar.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Það var mikið hlegið þegar Guðmundur Benediktsson mætti íheimsókn til okkar í Seinni níu. Í þættinum var reynt að tala um golf en umræðan leiddist líka út í umræðu um fótbolta og einnig hvernig stendur á því að Gummi Ben sé ber að ofan í nýrri auglýsingaherferð.
Gummi Ben er ekki skráður í golfklúbb en er á biðlista inn í Nesklúbbinn. Hann spilar mikið í golfhermi og þar gengur honum vonum framar. Af meðspilurum er hann kallaður Konungur tjaldsins en sjálfur er hann með 3-4 í Trackman-forgjöf. Það endurspeglar ekki beint forgjöf hans þegar út á golfvöll er komið.
Í þættinum er komið víða við. Farið er yfir feril hans í knattspyrnu og hvernig hnémeiðsli hafa háð honum í golfinu. Gummi velur draumahollið og ýmislegt fleira. Stórskemmtilegur þáttur!
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Gestur okkar þessa vikuna er atvinnukylfingurinn Guðrún Brá
Guðrún sagði okkur frá því hvernig það væri að vera atvinnumaður í golfi og þá leið sem hún ætlar að fara í ár til að tryggja sér betri stöðu á Evrópumótaröð kvenna. Hún segir að það sér draumastarfið vera atvinnumaður í golfi en um leið sé þetta mikið hark.
Hún segir okkur frá því hún fór á albatross á móti á Evrópumótaröðinni og einnig þegar hún lenti í deilum við meðspilara á miðjum hring í móti. Guðrún segir okkur einnig frá því að hún ætli sér stóra hluti á næstu árum eftir að hafa misst aðeins dampinn á síðustu árum.
Frábært og einlægt spjall við einn okkar fremsta kylfing í íslensku golfi.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
Stórskyttan Sigurður Valur Sveinsson er gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna. Siggi Sveins á að baki frábæran handboltaferil þar sem hann lék sem atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni.
Við förum aðeins yfir handboltaferilinn en ræðum líka mikinn golfáhuga Sigga. Hann er með um 17 í forgjöf í dag en var lægst með um 12 í forgjöf. Í ljós kom að þessi örvhenta stórskytta spilar rétthent!
Við ræðum þegar golfbílnum hans var stolið síðasta vetur og ræðum styrkleika hans á golfvellinum. Siggi var að venju mjög léttur og við lofum frábærum þætti!
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan fasteignasala
🏌️♀️- Golfhöllin
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

12 Listeners

90 Listeners

32 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

34 Listeners

14 Listeners

2 Listeners

27 Listeners

15 Listeners