Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #21 Skoðanabræður snúa aftur
    Landvarðarbrundið! Það er hinn heiðni helgi safi sem grundvallaði þessa þjóð í öndverðu – og heldur áfram að gera það á kojufylleríum í hinum ýmsu þjóðgörðum landsins. Þetta er fólkið sem er ekki á Instagram, en tryggir í gegnum aðrar göfugri boðleiðir framgöngu kynstofns okkar.
    Að vera ekki á Instagram er svo sem eitthvað fyrir aðra en bara skinhelgar síðhærðar skeggjaðar lopapeysur: Skoðanabræður hoppa um borð í þann vagn, alltént Bergþór. Hann ætlar að hætta á Instagram í febrúar, bylting, segir hann, febrúarbylting, bætir Snorri um betur, orðhagur og sagnfræðilega meðvitaður höfundur þessa texta hér.
    Verið velkomin í aðra seríu af Skoðanabræðrum, helsta hlaðvarpi landsins, sem smeygir sér nú inn í eyru ykkar í fullkomlega tærri og óbreyttri mynd, að breyttu reyndar breytanda, sem var fjárhagsmódelið og fáein önnur atriði. Héðan í frá er þetta gersamlega ókeypis fyrir ykkur hlustendur, og á sama tíma erum við farnir í farsælt samstarf við framúrskarandi fyrirtæki: Forlagið, AUR og 101 Sambandið.
    Kóðinn til þess að kaupa Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson sem hljóðbók á afsláttarkjörum (ný skáldsaga á 990kr) á forlagid.is er SKODUN. Kóðinn til þess að fá 60 GB frí þegar þú gengur í Sambandið á sambandid.is er SKODUN.
    Í þessum fyrsta þætti er allur andskotinn ræddur, eins og einmitt verðmætir kynstofnar, eins og þeir sem koma við sögu fyrr í þessari lýsingu. Snorri er staddur í Berlín þar sem hann rannsakar ásamt kraftmiklum krökkum yfirburði og eiginleika norræna kynstofnsins, á vegum félags sem heitir því viðeigandi nafni Norðurvígi. Hann segir okkur frá ýmsu spennandi af þeim frjóa vettvangi.
    Bergþór lýsir síðan áhyggjum sínum af Instagram, samfélagsmiðlum, en trúir að Skoðanabræður geti komið góðu til leiðar með því að halda áfram að bera út boðskapinn. Femínískan boðskap segir hann, enda hans hagsmunir, kvenkyns sjálfur. Og þetta grín er smellibeita og aðeins skrifað svo að þú sperrir eyrun og setjir Skoðanabræður í gang. Hér er ráða auðvitað jafnréttisviðhorf ríkjum.
    Karlmaður vikunnar að þessu sinni er ekki neinn, heldur er baneitruð karlmennska Snorra látin tala sínu máli. Á næstu vikum verða þó gestir í þáttunum, og þar er hvaðeina spennandi framundan. Það breytir því ekki að smávægileg stefnubreyting hefur orðið, sem felst í að þættirnir bera ekki nafn viðmælanda, heldur njóta efnislega sannmælis útaf fyrir sig, enda annað andrósentrismi, sem Skoðanabræður láta seint kenna sig við. Þið fáið sem sé fyrirsagnir, bitastærð við ykkar hæfi, smánautnaseggir.
    Skoðanabræður eru eins og ævinlega afurð Útvarps 101. Þeir eru framleiddir í samstarfi við Forlagið, AUR og 101 Sambandið.
    1 hr 9 min
  • #20 Skoðanir Magga Sushi, skoðanabræðrafræðings

    Eftir að maður lítur um öxl er hollt að staldra við, og líta um öxl. Magnús Jochum Pálsson, Maggi Sushi, helsti Skoðanabræðrafræðingur á Íslandi, kemur hér að máli við Skoðanabræður og fer yfir farinn veg. Við erum að tala um excel-skjal, við erum að tala um styrkleikaröð, við erum að tala um sannferðuga lýsingu á veröldinni.

    Það má enn styrkja Skoðanabræður í númerið 661-4648 á KASS eða AUR og þó styrkirnir verði lesnir upp seint, verður það aldrei um síðir. Snorri Másson er nú blaðam., bús. í Berlín, og Bergþór Másson er á flakki, einkum um Suður-Ameríku. Þeir eru þó ævinlega væntanlegir aftur á öldur ljósvakans, þó engu sé slegið föstu um hvenær. Hér skal þakklæti tjáð til allra þeirra góðvildar-, velvildar- en ekki síst velgjörðarmanna, sem styrkt hafa þáttinn í sumar.

    Þættir Skoðanabræðra í stigveldi, samkvæmt athugun Magnúsar: 1. Ari Másson, 2. Þóra Tómasdóttir, 3. Birnir, 4. Lóa Björk, 5. ClubDub, 6. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, 7. Jói og Flóni, 8. Jakob Birgisson, 9. Danni Deluxe, 10. Berglind Festival, 11. Aron Mola, 12. Dóri DNA, 13. Siffi G, 14. Pétur Kiernan, 15. Katrín Jakobsdóttir og þrjú neðstu, saman í 16. sæti: Karó, Birgitta Líf og Logi Pedro.

    Og þessi uppröðun hlýtur að vera umdeild, en hún er studd sterkum rökum fræðimannsins. Ýmsir þættir spila inn í, flæði, húmor, efnistök, rökfesta, orðfæri, hljómgæði, hlutfall hins persónulega og hins almenna og svo framvegis og svo framvegis. Allt metið, sem gerir góðan Skoðanabræðraþátt að góðum Skoðanabræðraþætti.

    Umræðurnar leiða menn svo út um allar trissur og í anda Skoðanabræðra er engin leið að halda sig við efnið. Það er meðal annars farið yfir það þegar Snorri verður annaðhvort stressaður eða ofmetnast og fer að segja hluti sem hann meinar ekki. Niðurstaðan er hins vegar sú að kannski komi þar fram nákvæmlega það, sem hann meinar í raun og veru. Svo bendir Magnús á hvað eina sem honum hefði þótt betur fara, en hvaða gildi hefur hans persónulega mat, hvaða gildi hefur það.

    Skoðanabræður kveðja að sinni úr höfuðvígi Útvarps 101 á Hverfisgötu og óska mönnum velfarnaðar í haust. Og vel að merkja, haustið: Sól eftir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg. Á morgun er ártíð skáldsins.

    2 hr 8 min
  • #19 Skoðanir Jakobs Birgissonar

    Velkomin í Live Fílalag! Í dag fílum við göndulinn á Jakobi Birgissyni í beinni á Port 9, þátturinn afrakstur þeirrar kynlegu iðju. En fyrst: Svívirðum þá sem melduðu sig en mættu ekki, tóku þannig pláss frá þeim sem raunverulega vildu koma, þeim sem raunverulega eru meðlimir í Skoðanabræðralaginu, þeim sem setja virðingu á annarra manna nöfn.

    Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Skoðanabræðra eftir styrkjum, þ.e. mannsæmandi launum fyrir sín störf, ætti líka að vera svarað og það getur verið gert með því að AURA eða KASSA í númerið 661-4648. Síðasta tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri í þættinum er núna. En áfram verður hægt að styrkja um aldur og ævi, á meðan nafn Skoðanabræðra lifir.

    Jakob Birgisson er king uppistandari, góðvinur Skoðanabræðra og tölfræðilega líklegasti karlmaður vikunnar. Hér ræðir hann það sem Skoðanabræður ræða best: eiturlyf, klám og hörundsára krossfittara. Auðvitað af sömu nærgætni og endranær, Skoðanabræður eru meistarar aðgátar hafðar í nærveru sálar.

    Þessi Skoðanabræðraþáttur er sérstakur að því leyti að áfengi var haft við hönd, sem ef til vill var í hæsta máta óæskilegt, en var alltént gert. Það gefur tjáningunni lausari tauminn, enda ærið tilefni til ráðstafana sem stuðla að því, á víðsjárverðum tímum, þar sem þrengt er að tjáningarfrelsinu úr öllum áttum.

    Tímum, þar sem nauðsynlegt er að stofna embætti eins og barnaperraráðherra.

    Það líður að lokum þessarar vegferðar og viðeigandi að þar stígi Jakob inn og bendi á það sem miður hefur farið, og það sem betur má fara á komandi tímum. Þátturinn er innlegg inn í þá uppbyggilegu umræðu sem ávallt fer fram á þessum vettvangi, og hefur ávallt gert. Og vel er að merkja, að þó að fýsískt hafi aðildin verið átt á Port 9, þeim virðingarverða stað, er vettvangurinn Útvarps 101.

    Allt sem er sagt um Íslandsbanka í þessum þætti er ósatt. En það er athyglisvert, og varð að koma fram.

    1 hr 24 min
  • #18 Skoðanir Ara Mássonar, bróður Skoðanabræðra

    Lífið er veisla, segir höfundur þess frasa, Ma King, blóðbróðir Skoðanabræðra, sem forðum var dæmdur til ævarandi hippadóms. En það er næs og ráðstöfunin sver sig ekki í ætt við örlög Sýsifosar, hún er jákvæð, eins og rætt er í þessum þætti. Líklega öllu betri en líf ritstjóra Skoðanabræðra.

    Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Skoðanabræðra eftir styrkjum, þ.e. mannsæmandi launum fyrir sín störf, ætti líka að vera svarað og það getur verið gert með því að AURA eða KASSA í númerið 661-4648. Síðasta tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri í þættinum er núna. En áfram verður hægt að styrkja um aldur og ævi, á meðan nafn Skoðanabræðra lifir.

    Ari Ma (Másson) varð auðvitað að koma í viðtal. Hann er sjö árum eldri en yngsti Skoðanabróðirinn, Snorri, og fimm árum eldri en Bergþór. Hann kenndi þeim flest sem þeir kunna, þó að síðar meir hafi þeir lært sitthvað upp á eigin spýtur og hér snýr hann aftur til að kenna þeim allt upp á nýtt.

    Hann hefur búið mikið til erlendis síðasta að verða áratug, í Taílandi, Suður-Ameríku, í Nepal, í Amsterdam, í Marokkó, í Indlandi, í Tyrklandi, á Spáni, í Bandaríkjunum og hver veit hvar í andskotanum. Þar hefur hann látið sér detta í hug allan fjandann til að gera, og gæti nú hvergi annars staðar hugsað sér að búa en einmitt þar: alls staðar. Hann vinnur þó sem landvörður á Íslandi á sumrin.

    Ýmislegt rætt í þessum þætti, draumarnir, hugsjónirnar, eiturlyfin ef þau eru einhver, og reynt að komast að niðurstöðu um hvernig má lifa fordómalaus í þessari guðsvoluðu veröld. Hugleiðsla kann að vera lykilorð í því sambandi. Og klifur!

    Veröldin veltist um svo fast en Skoðanabræður og þeirra bróðir skeyta ekki um það, þeir halda áfram siglingu sinni en haga síður en svo seglum eftir vindi, engir hentistefnumenn, heldur bara saklausir samfélagsrýnar sem hafa þennan óljósa grun um, að lífið sé eftir allt veisla.

    1 hr 24 min
  • #17 Skoðanir Joey Christ og Flóna
    Núvitund, það er að eyða miklum pening! Einkum ef þú ert heimskur rappari.
    Skoðanabræður hafa hingað til aðeins rætt þá hlið persónuleika Flóna, hvursu hann eyðir. En það er auðvitað meira í hann spunnið en bara það. Það er ást, það er virðing og það er von um betri heim.
    Þess skal getið hér strax, að um ræðir næstsíðasta þátt í fyrstu seríu af Skoðanabræðrum. Þeir sem eiga eftir að launa þeim erfiðið skulu aura þá eða kassa í síma 661-4648.
    Flóni er ekki eini karlmaður vikunnar, þótt hann dygði vitaskuld sem slíkur. Jóhann Kristófer er karlmaður þessarar sömu viku, rappari einnig, stéttbróðir Flóna.
    Og það er voða erfitt að vera rappari, búhú. Þeir mega ekki segja neitt í lögunum sínum án þess að Domino’s-vinstrið rjúki upp til handa og fóta og krefjist þess að þeir taki það allt til baka. Að poppa eina pillu og líða síðan frekar vel, er það verra en að græða eina millu og líða síðan vel? Og hvað þá um kvenfólk með rassa „sem er nóg til af?“ Hugað að goons.
    Domino’s-vinstrið kepptist líka í vikunni við að segja að engir fjölmiðlar væru að fjalla um regnskóga í ljósum logum. Í fyrsta lagi, haldið kjafti, segir maðurinn. En sér vitanlega eftir því. Skynsamleg umræða ómöguleg, heimsendir er í nánd, sól tér sortna, og þá brenna regnskógar.
    Skoðanabræður standa af sér strauma og stefnur. Þeir eru fremsta hlaðvarp á Íslandi. Snilldin er töfruð af fingrum fram viku hverja á vettvangi Útvarps 101.
    1 hr 56 min
  • #16 Skoðanir Skoðanamóðurinnar

    –Nærbuxur, skyrtur, dósir, bollar, diskar, handklæði, sokkar. Allt á gólfinu á víð og dreif um íbúðina. Bergþór kemur heim, sópar þessu öllu saman og hrúgar í rúmið hans Snorra. Illa vegið að góðum manni – ófagleg vinnubrögð.

    –En þeir eru vel upp aldir af móður sinni, sem hér er mætt í Skoðanabræður, Skoðanamóðirin! Hún fæddi þessa menn og auðvitað vinda menn sér umsvifalaust í þá umræðu: Hvað er að eiga barn? Er það sjúkdómur eða er það lífrænt ferli? Því svarað, að vonum. Má fæða börn heima? 

    –Margrét Jónsdóttir Njarðvík er karlmaður vikunnar. Ber er hver að baki nema sér móður eigi. Móðirin axlar ábyrgðina, hún ber ábyrgð á þremur karlmönnum þessa heims. Það er ábyrgðarhluti, þess vegna voru synirnir settir í „Ég axla ábyrgð“-nærbuxur þegar þeir voru litlir. Þeir hafa þurrkað út þær minningar. Stígamótamerch, sem kemur á daginn að er ekki nógu skemmtilegur vinnustaður. Það er alltént mál manna, Bergþórs.

    –Ýmislegt rifjað upp. Óvatnsgreiddir íslenskir drengir í kaþólskum nunnuskóla í Sevilla rétt upp úr aldamótum, sérferð með Snorra til Spánar, sérferð með Bergþór til Danmerkur. Lífið var gott og það er gott að koma mönnum til manns. Þá er ónefndur þriðji og elsti, Ari Ma, skoðanabróðir mikill.

    –Þátturinn er góður, en bara af því að Snorri náði í byrjun að jafna sig á bráðsmitandi bráðaþunglyndinu sem sveif á hann í upphafi þáttar.

    –Styrkið frjálsa fjölmiðlun með AUR eða KASS í síma 661-4648.

    –Safinn var skaptur innan vébanda samsteypunnar 101.

    1 hr 49 min
  • #15 Skoðanir Katrínar Jakobsdóttur

    Hlustaðu til að heyra hvort Katrín Jakobsdóttir drekki fimm eða tíu vínglös á viku! 

    –Karlmaður vikunnar. Þetta finnst feminískum forsætisráðherra gott grín. Og hann, hún, reynir að standa undir nafni! 

    –Sú tilraun ber árangur. 

    –They sitja eftir með sárt ennið. Ein valdamesta persóna á Íslandi í viðtali hjá Skoðanabræðrum. Hver hefði haldið. Hún var nörruð í þennan þátt... á fölskum forsendum, segir hún… ekki satt! Forsætisráðherra var öllu heldur ljúft og skylt að koma til skyldmenna sinna, Skoðanabræðra. Þau eru öll afkomendur Jóns Thoroddsen.

    –Í því samhengi: óhjákvæmilega rædd hin meinta fyrsta íslenska skáldsaga, sem nákvæmlega helmingur ritstjórnar Skoðanabræðra hefur gefið sér tíma í að lesa. Hinn ekki.

    –Katrín Jakobsdóttir prófaði golf í fyrsta skipti í sumar. Hér segja Skoðanabræður þá frétt, fyrstir miðla.

    –Hún vann líka sem póstburðarmaður á sínum tíma og lærði þar að líta einkasamskipti fólks öðrum augum en hversdagslegum. Skilaboð á Facebook eru ekki eldhúsborð, þau eru bréf.

    –Og samfélagsmiðlakvíðinn sá arna. Er pólitískur leiðtogi Íslendinga haldinn honum? Svo virðist ekki vera. Hlustaðu til að komast að því! 

    –Það hefur aldrei riðið meira á að styrkja frjálsa fjölmiðlun. Skoðanabræður – þeir veita valdhöfum aðhald. Og þiggja styrki fyrir í síma 661-4648 á Aur eða Kass. Það er á vettvangi Útvarps 101 sem Skoðanabræður töfra gæðaefni þetta fram af sinni alkunnu list.

    1 hr 9 min
  • #14 Skoðanir Arons Mola

    –Free The Nipple? Feit pæling sem gekk ekki upp.

    –Og ert þú að horfa á midget shemale klám? Þetta er þátturinn fyrir þig.

    –Hér fáið þið Gamla-Mola! Aron Mola endurfæddist eitthvað í kringum 2016, minnir þann sem hér veldur fjöður. Það var stór breyting. He Changed. A Lot. He’s A Nice Guy. I Like Him. Enskan er óræð vísun sem verður ræð við hlustun þáttar.

    –Karlmaður vikunnar er beinlínis móðurriðill.

    –Þetta er Verslunarmannahelgarþátturinn, með greini. Þess vegna er hann extra langur, rétt eins og limurinn á Aroni Mola var extra langur þegar hann tók hálfa töflu af rislyfjum niðri í miðbæ Reykjavíkur. Hver gerir það nema shitty fíkill, alkóhólikker. Moli er það samt ekki, þó hann sé hættur að drekka. Það rætt, það rætt. 

    –Fyrir langan þátt á fólk skilið langa poka af peningum. Alltént lágmarkslaun. Það má Aura í númerið 661-4648. Og það má Kassa. Styrkið frjálsa fjölmiðlun.

    –Hver myndi ekki styrkja þátt sem þennan, þar sem rædd eru helstu vandamál samtímans: ungir karlmenn sem koma heim eftir skóla, mamma þeirra er ekki heima, þannig að þeir vippa út lóknum og taka að flekka sjálfan sig. Fá sér svo stóra lummu og fara á handboltaæfingu. Lífið er bölvun.

    –Einmitt. Skoðanabræður, hinir einu sönnu talsmenn sannleikans líkt og haft var á orði forðum, þeir starfa í umboði Útvarps 101. 

    2 hr 19 min
  • #13 Skoðanir Birnis rappara

    –Lífið er erfið veisla! Eða lífið er veisla en það mæta nokkrir óboðnir gestir.

    –Eins og til dæmis eiturlyfjafíkn. Karlmaður vikunnar hefur kynnst því. Og hann virðist jafnframt hafa sigrast á því. Af hverju ertu að spyrja mig, af hverju, á hverju ertu, eða hvað sem í fjandanum er sagt í þessu lagi. En Birnir er ekki á neinu, það er punkturinn.

    –(Skoðanabræður má og á að styrkja í síma 661-4648 á Kass eða Aur)

    –Birnir gekk í öndverðu með drauma í eistunum, hann tjáði þá við karlmenn í portinu á Prikinu, hann ætlaði að verða stór, hann ætlaði að sigra leikinn, og hvað gerðist. Draumarnir rættust. Þeir sem sé gera það, en til þess að skýra það nánar þarf að spóla nokkur ár til baka. Hver er Birnir! er því spurt og því svarað skilmerkilega. 

    –Þátturinn er með óhefðbundnu sniði: Birnir fylgist ekki með bullshittinu sem Skoðanabræður hafa lifibrauð sitt af. Skoðunum. Hann er meira að líta inn á við, að mæta sínum innri manni og kanna aðeins hvert stefnir. Hann er nýkominn úr meðferð við áfengis- og eiturlyfjafíkn. Hann dvaldist í Svíþjóð um hríð.

    –Þetta virðist vera fyrsta opinskáa mannlífsviðtal sem hann fer í eftir það og um leið afsveinar hann Skoðanabræður í að framleiða slíkt efni fyrir útvarp. Útkoman er alvöru opinskár lasleiki í beinni. Nema vitaskuld ekki í beinni, enda öldur ljósvakans teknar nýstárlegum tökum af Skoðanabræðrum, hlaðvarpið er aðgengilegt hvenær sem er.

    –Og „ég held að ég þurfi að fara að kveikja aðeins á perunni, fullt af wack motherfuckers hérna í senunni.“ Hverjir eru þessir ræfilslegu móðurriðlar, Birnir, hverjir eru þeir?

    –Safinn er á lofti, hann er heilandi í eðli sínu og hann er á vegum Útvarps 101, eins og kveðið var á um í öndverðu.

    1 hr 46 min
  • #12 Skoðanir Þóru Tómasdóttur
    •„Þetta er svo viðbjóðslegt og rótgróið stéttahatur,“ segir Snorri. „Svona Facebook-hópar á Íslandi eru bara viðbjóðslegir,“ segir Bergþór. „Þetta er ekki fyndinn hópur,“ segir Þóra. Þetta eru ekki góðar umsagnir. Hlustið áfram til að vita hvaða hóp ræðir um.
    •Þóra Tómasdóttir blaðamaður og almennur kóngur er Karlmaður vikunnar í vikunni, sá elsti til þessa. Og sennilega sá greindasti, yfirvegaðasti og áhugaverðasti að öllum öðrum ekkert það mikið löstuðum. Þóra þekkir Skoðanabræður persónulega og af opinberum vettvangi, enda þeir opinberar og mikilsvirtar persónur, en telur ekki æskilegt að annar þeirra fái of mikil völd. Það er spurning um hvorn það á við. Sá vægir þar sem vitið hefur meira, eins og eilíft gildir.
    •(Skoðanabræður er frjálst hlaðvarp, framleitt með hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Það má styðja þá vegferð með því að leggja henni fé í s. 661-4648 á Aur eða Kass.)
    •LungA er haldin hátíðleg um þessar mundir og í þættinum er kastað kveðju á þá hlustendur sem taka upp á því að stunda kynlíf í tjöldum. En þess þarf auðvitað ekki að geta hér í kynningu þáttarins.
    •Og Þóra tæki aldrei þátt í eins óviðurkvæmilegum kveðjuköstum enda komin vel á fertugsaldur. Hún hefur önnur lög að mæla, eins og ígrundaðar vangaveltur um aukna pólaríseringu í viðhorfum fólks, það er hin umrædda síbreikkandi gjá á milli stjórnmálaskoðana ólíkra hópa og víðsjárverða sundurlyndið sem hlýst af henni. Á þeim nótum kom gaurinn sem kom Donald Trump í embætti til Íslands á sínum tíma. Þóra segir frá því.
    •Ekki bara pólitík heldur öllu mikilvægara: lífið og hvernig er hægt að lifa af í þessu viðbjóðslega þjóðfélagi. Þóra er reynslunni ríkari og þekkir leiðina út, því eins og skáldið spurði, og margir hafa velt fyrir sér síðan, hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum. Svarið leynist í þessum þætti af Skoðanabræðrum.
    •Þetta einstaka efni er á vegum Útvarps 101 og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
    1 hr 46 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners