Sunnudagurinn 15. mars
Synir Egils: Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður
Að þessu sinni taka þátt í umræðunni þau; Einar Kárason rithöfundur, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ og Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi. Eðlilega er margt á málaskrá. Stjórnmál, stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísrael og viðbrögð við honum, er einfalt eða tvöfalt heilbrigðiskerfi hér á landi, er verið að draga úr framlögum til menningar, komandi kosningar og svo margt annað.