Heimskviður

107 | Neyðarástand á Sri Lanka og Transnistría


Listen Later

Rétt rúmur mánuður er líðinn frá því að neyðarástandi var lýst yfir á Srí Lanka í Indlandshafi vegna fjölmennrar mótmælaöldu. Þar er sögð dýpsta efnahagskreppa frá því að eyjan fékk sjálfstæði frá bretum árið 1948. Þau sem mótmæla krefjast þess að forseti landsins, Gotabaya Rajapaksa, ásamt ríkisstjórn segi af sér vegna meintrar spillingar og vanhæfni. Mótmælin hafa verið afar hörð. Lögreglan beitti í þónokkur skipti táragasi á mótmælendur sem köstuðu múrsteinum á móti og kveiktu í bílum. Forsetinn lét loka fyrir samfélagsmiðla og gaf her og lögreglu rýmri heimild til að handtaka mótmælendur og fangelsa án dóms og laga eftir að reynt hafði verið brjótast inn í forsetahöllina. Rajapaksa hefur nú samþykkt að nefnd fari fyrir því að stofna til bráðabirgðastjórnar í landinu, að allir þingflokkar taki sig saman til þess að vinna saman að því eina markmiði að halda ríkiskassanum á floti og tryggja efnahagslegt öryggi landsins til framtíðar. Jóhannes Ólafsson rýnir í stöðu Srí Lanka og ræðir við Ásgeir Brynjar Torfason og Guðbjörgu Ríkey Th. Hauksdóttur.
Hefur þú heyrt um Transnistríu? Við láum þér það ekki, hafirðu aldrei um þetta litla hérað í vesturhluta Moldóvu. Moldóva er nú á milli tanna fréttafólks og stjórnmálamanna, endar hefur landið - og nánar tiltekið Transnistría, landamæri að Úkraínu í austri. Atburðir síðustu vikna í Transnistríu hafi valdið nokkrum áhyggjum, og óttast ráðamenn í Moldóvu og víðar að Rússar ætli sér ekki láta sér það nægja, að ráðast inn í Úkraínu. Guðmundur Björn fjallar um málið.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

8 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners