Heimskviður

127| Fjölmiðlakeisarinn Murdoch og milliríkjadeila um númeraplötur


Listen Later

Donald Trump ætlar að reyna að verða aftur forseti Bandaríkjanna. Hann tilkynnti þetta með pompi og prakt á heimilinu sínu í Florida, Mar-O-Lago, um miðjan síðasta mánuð. Marolago er muniði sama hús og alríkislögreglan réðst inn í á dögunum og tók fullt af skjölum sem Trump hafði tekið heldur ófrjálsri hendi í forsetatíð sinni. En, það sem vakti ekki síður athygli þegar Trump lét vita af áformum sínum fyrir þarnæsta ár, var formúlering nokkurra fjölmiðla á þeirri tilkynningu. Nánar tiltekið fjölmiðla sem eru í eigu manns sem studdi forsetann áður, og styður alla jafna frambjóðendur á hægri væng stjórnmálanna, einfaldlega vegna þess að það hentar honum og fyrirtækjum hans vel. Florida man makes anouncement, Maður í Flórída gefur út tilkynningu, sjá blaðsíðu 26, var slengt á bláan borða neðst á forsíðu New York Post, eitt aðalslúðurblað í eigu hins ríflega níræða Ruperts Murdoch. Fjölmiðlakeisarinn, sem á mörg hundruð fjölmiðla um allan heim, gerði með þessu eins lítið úr framboði Trumps og hugsast gat og þessi litli forsíðuborði varð eiginlega stærri frétt en framboðið sjálft. Sem endurspeglast líka í þessum þætti hér, sem fjallar ekki um forsetaframboð Trumps, heldur manninn sem átti stóran þátt í því að greiða götu hans sem forseta hér áður fyrr. Og hann er hættur því. Sunna Valgerðardóttir og Andrés Jónsson almannatengill grófu sig ofan í veruleika þessa merkilega risa, Ruperts Murdoch, og þau áhrif sem hann hefur haft á lýðræðið í hinum vestræna heimi.
Hvernig getur deila um númeraplötur næstum því leitt til stríðsátaka? Litlu munaði að það hefði gerst í deilu um þennan að því er virðist hversdagslega hlut milli Serbíu og Kósóvó, áður en samningar afstýrðu því að sinni. Deilan er þó birtingarmynd af mun djúpstæðari vanda í samskiptum þessara þjóða. Hallgrímur Indriðason rýnir í það með aðstoð Urðar Gunnarsdóttur, fyrrverandi starfsmanns ÖSE í Kosovo.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

128 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

32 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners