Heimskviður

166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum


Listen Later

Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur nú sem hæst. Og hún á að verða ráðstefna aðgerða, svo að þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum síðustu ár náist. En er það yfir höfuð hægt? Erum við ef til vill orðin of sein að grípa í taumana? Þau sem eru við samningaborðið í Dubai telja að svo sé ekki. Og eru reyndar mörg hver á því að lokasamþykktin gæti orðið söguleg, takist að koma inn ákvæði um framtíð jarðefnaeldsneytis - olíu og gass. Þar til fyrir aðeins örfáaum árum þögðu samningamenn þunnu hljóði á COP-ráðstefnum um áhrif jarðefnaeldsneytis. En er hægt að taka nokkuð mark á því sem þarna gerist? Loftslagsráðstefna í olíuríkinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum hljómar eins og grín. Mörgum er reyndar ekki hlátur í huga og segja grafalvarlegt að svo mikilvæg ráðstefna sé haldin á viðlíka stað. Svo ekki sé nú minnst á manninn sem fer fyrir öllu klabbinu: Soldán sem gegnir framkvæmdastjórastöðu í ríkisolíufyrirtæki Abu Dhabi. Gagnaleki skömmu fyrir ráðstefnuna þótti sýna að gestgjafarnir hefðu aðrar meiningar með gestgjafahlutverkinu en að berjast gegn loftslagsvánni.
Oddur Þórðarson ætlar með okkur að samningaborðinu í Dubai.
Svo hugum við að jólahaldi í Úkraínu. Það hefur eðli málsins samkvæmt ótalmargt breyst í Úkraínu eftir innrás Rússa og þar á meðal jólin. Úkraínumenn vilja losa sig við allar hefðir sem tengjast Rússlandi og því verða jólin í ár og framvegis haldin 25. desember en ekki 7. janúar líkt og tíðkast í Rússlandi og hafði lengi tíðkast í Úkraínu. Dagný Hulda Erlendsdóttir kynnti sér málin og ræddi við Úkraínumenn í Kyiv og hér á Íslandi.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta BJörnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

63 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners