Heimskviður

185 - Mengað blóð og mengað lýðræði


Listen Later

Yfir 30 þúsund Bretar fengu sýkt blóð með veirum á borð við HIV og lifrarbólgu C við blóðgjöf á árunum 1970 til 1991. Samkvæmt rannsóknarskýrslu sem birt var í vikunni er ljóst að ráðamenn reyndu að breiða yfir hneykslið, til að mynda með því að eyða gögnum um það árið 1993. Þau sem þáðu smitaða blóðið gerðu það ýmist eftir slys, vegna skurðaðgerðar eða vegna einhvers konar blóðkvilla á borð við dreyrasýki. Auk þeirra þrjú þúsund sem létu lífið af völdum veikinda eftir blóðgjöf barðist fjöldi við langvarandi veikindi. Brian Langstaff, yfirmaður rannsóknarnefndarinnar, segir niðurstöðurnar benda til þess að hægt hefði verið að koma í veg fyrir þessar blóðgjafir að langmestu leyti. Blóðþegarnir eiga inni skaðabætur frá breska ríkinu. Talið er að þær eigi eftir að nema milljörðum punda.
Rétt eins og aðrar þjóðir Kákasusfjallgarðsins eiga Georgíumenn sér ríka sögu. Aldur mannvistarleifa í þessum heimshluta er talinn í hundruðum þúsunda ef ekki milljónum ára. Nútímasaga Georgíu markast mjög af návíginu við Rússland í norðri. Rússar innlimuðu georgíska konungdæmið árið 1801. Rússakeisari, með sitt gríðarlega landflæmi og fjölmenna her, gat verndað Georgíumenn fyrir utanaðkomandi ógn, til að mynda frá Ottómanveldinu í suðvestri. Á sama tíma stýrði hann þó Georgíu með nokkuð harðri hendi. Eftir aldamótin 1900, þegar þjóðernishyggja reið röftum svo víða, reyndu Georgíumenn að brjótast til frelsis. Bylting árið 1905 mistókst en sjálfstæðisbaráttan dó hins vegar ekki. Það var ekki fyrr en eftir að bolsévikar höfðu gert byltingu sína í Rússlandi, að Georgíumenn fengu sjálfsyfirráð aftur, rúmum 100 árum eftir innlimun Rússlandskeisara. Gleðin var þó skammvinn, þar sem rauði herinn þverbraut sátt sem gerð hafði verið við georgísku þjóðina um sjálfstæði hennar, og marseraði inn í Tiblisi árið 1921. Aðeins ári síðar var Georgía formlega orðin hluti hinna nýju Sovétríkja.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

14 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners