Spegillinn

19. október 2021 Sóttkvíarreglur endurskoðaðar


Listen Later

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir til skoðunar að slaka á reglum um sóttkví á næstunni, en segist vera eins og hrópandinn í eyðimörkinni boðandi að baráttunni við farsóttina sé ekki lokið
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra segir að ástand á bráðamóttöku Landspítalans tengist ekki COVID-19 - hann sjái ekkert ástand á spítalanum sjálfum. Hómfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Bjarna. Markús Þórhallsson tók saman.
Fundi undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa í Borgarnesi var að ljúka. Í morgun fylgdust nefndarmenn með þegar ónotaðir kjörseðlar voru taldir á lögreglustöðinni og stemmdi sú talning við kjörgögn. Elsa María Guðlaugs- Drífudóttir fréttamaður hefur fylgst með fundinum.
Stjórnvöld í Rússlandi leggja til að landsmenn verði sendir í átta daga frí til að draga úr fjölda kórónuveirusmita. Yfir eitt þúsund Rússar létust í gær af völdum COVID-19. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Samkomulag sem utanríkisráðherra gerði við bresk stjórnvöld í sumar eykur möguleika íslenskra námsmanna á að fá styrki til náms þar í landi. Markús Þórhallsson sagði frá.
Heiðdís Austfjörð hárgreiðslumeistari fagnar því að grímuskyldan verði afnumin með breyttum sóttvarnareglum. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hana.
----
Hafið er kapphlaup á milli þjóða um hverjir verða fremstir í lágkolefnis- og kolefnishlutlausu hagkerfi framtíðarinnar: Það er eina hagkerfið sem er í boði, segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst um mánaðamótin í Skotlandi. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann.
Vaxandi ógn frá Rússlandi hefur leitt til stóraukinna útgjalda til varnarmála í Noregi og Svíþjóð. Rússnesk herskip héldu sig innan tvöhundruð mílna markanna við Ísland um níu daga skeið í sumar. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók saman ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Katarzynu Zysk sérfræðing í alþjoðamálum.
Margt bendir til þess að falskt öryggi felist í því að taka símtal í gegnum handfrjálsan búnað eða hljóðkerfi bílsins á meðan setið er undir stýri. Einbeitingin við aksturinn er jafnfjarri og ef símtæki er haldið upp að eyranu segir Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri hjá samgöngustofu við Kristján Sigurjónsson.
Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar frétttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners