Spegillinn

2. nóvember 2021 Bjartsýni í Glasgow


Listen Later

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er bjartsýn á að á loftslagsráðstefnunni í Glasgow sjáist breyting frá ráðstefnunni í París. Í Glasgow sé rætt um beinar aðgerðir en ekki aðeins markmið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana.
Yfir áttatíu þjóðir heita því að draga úr losun metangass úr andrúmsloftinu um þrjátíu af hundraði á næstu níu árum. Aðgerðirnar eru sagðar kosta lítið sem ekkert. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri hjá Reykjavíkurborg á næsta ári. Auknar fjárfestingar eru fyrirhugaðar en skuldir aukast sömuleiðis. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Knapi sem vikið var úr landsliði hestamanna um helgina segir stjórnarmenn Landssambands hestamannafélaga og forsvarsmenn landsliðsins hafa lengi vitað um dóm sem hann hlaut fyrir kynferðisbrot árið 1994. Landsliðseinvaldur segist hafa vitað óljóst af málinu. Bjarni Rúnarsson sagði frá.
Mjólkursamsalan stendur árlega fyrir teiknisamkeppni fyrir fjórðubekkinga í grunnskólum landsins í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Foreldrar hafa nokkrir gagnrýnt að stórfyrirtæki fái slíkan aðgang að börnum og einnig fullyrðingar um hollustu mjólkur sem þykja úreltar. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Eyrúnu Gísladóttur, móður og grænkera.
----------
Það virðast örlög afgönsku þjóðarinnar að vera á stöðugum flótta. Margir þeirra sem sneru heim úr útlegð fyrir 20 árum, við fall Talíbanastjórnarinnar, flýja nú landið enn á ný, segir fréttaritari okkar í Kabúl. Jón Björgvinsson í Kabúl sagði frá.
Þing Norðurlandaráðs hófst í Kaupmannahöfn í gær í Kristjánsborgarhöll. Þar er rætt um hvaða lærdóm megi draga af kórónuveirukreppunni og hvernig efla megi samstarfið. Viðbrögð Norðurlandanna hvers um sig þegar brast á með faraldri þótti sýna fram á nokkra bresti, til dæmis þegar bætt var í takmarkanir á landamærum þeirra á milli og ríkin fóru hvert í sína áttina með ráðstafanir, segir Kristján Sveinsson sagnfræðingur.Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Bretar og Frakkar hafa gert hlé á fiskirimmu sinni en deilan er ekki á enda. SIgrún Davíðsdóttir hefur fylgst með þeirri rimmu.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners