Í tuttugasta og öðrum þætti Heimskviðna er fjallað er um AMIA-sprengjuárásina í landinu árið 1994, versta gyðingahatursglæp frá helförinni og saksóknarann Alberto Nisman. Nisman var líklega myrtur degi áður en hann ætlaði að greina opinberlega frá ásökunum um að þáverandi forseti og núverandi varaforseti hefði hylmt yfir með árásarmönnum í skiptum fyrir viðskiptasamninga við Íran. Dauði saksóknarans er til umfjöllunar í nýrri þáttaröð á Netflix, sem vakið hefur mikil viðbrögð í Argentínu.
Brexit er orðið að veruleika, þremur og hálfu ári eftir þjóðaratkvæðagreiðslu sem klauf bresku þjóðina og Bretar hafa loks yfirgefið Evrópusambandið. En þótt Bretar séu á leið út, er enn langur vegur fram undan og nú taka við ellefu mánaða samningaviðræður við Evrópusambandið um framtíðar samskipti þeirra. Dóra Sif Tynes er gestur Heimskviðna í síðustu Brexit umfjöllun þáttarins, Í bili.
Einn besti körfuboltamaður allra tíma, Kobe Bryant, lést á sunnudagskvöld, aðeins 41 árs. Hver var Kobe Bryant og hver verður arfleið hans? Guðmundur Björn ræðir við Svala Björgvinsson, sálfræðing og körfuboltaspekúlant, um manninn að baki goðsögunni Kobe og linnulausa leit hans að fullkomnun.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.