Spegillinn

27. janúar 2022. Afléttingar sóttvarna, bótakrafa og orkuskortur


Listen Later

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á höfuðborgarsvæðinu býst við holskeflu kórónuveirusmita á næstunni en ekki holskeflu alvarlegra veikinda.
Aðalmeðferð hefst á morgun í máli tveggja barna Sævars Marínós Ciecielski þar sem þau krefjast þess að ríkið verði dæmt til að greiða þeim milljarð í bætur. Þau segja að ekki fyrirfinnist jafn alvarleg brot opinbers valds á réttindum sakborninga og í máli föður þeirra.Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.
Lundúnalögreglan hefur enn ekki yfirheyrt Boris Johnson forsætisráðherra vegna rannsóknar á ýmsum veislum í Downingstræti 10 meðan strangar samkomutakmarkanir voru í gildi á Englandi. Ásgeir Tómasson tók saman.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi leggur til að undirbúningur deiliskipulags á nýrri íbúabyggð í Vatnsendahlíð verði hafinn þegar í stað, meðal annars til að mæta skorti á húsnæðismarkaði. Þórgnýr Einar Albertsson talaði við hana.
Sveitarstjórn Norðurþings hefur samþykkt að hefja formlegar viðræður við fyrirtækið Green fuel ehf um lóð á Bakka undir vetnis- og ammóníaksframleiðsluver á Bakka. Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri er bjartsýnn á frekari uppbyggingu, Óðinn Svan Óðinsson ræddi við hann.
Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefur fengið fjölmargar áskoranir um að gefa kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi ytra í sveitarstjórnarkosningum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá.
----------
Orkuskortur hér á landi er yfirvofandi og grípa þarf til olíubrennslu til að framleiða rafmagn. Landsnet telur að eftirspurn haldi áfram að vaxa umfram framboð á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Landsnets um horfur í raforkumálum á næstu fimm árum. Bjarni Rúnarsson ræddi við Gný Guðmundsson, yfirmann greiningar og áætlana hjá Landsneti.
Stækkun og þar með fækkun sveitarfélaga er nokkuð sem unnið hefur verið að og vilji til af ríkisins hálfu um árabil undir merkjum þess að efla sveitarstjórnarstigið. Sveitarfélögin eru nú rétt tæplega 70 og á næstunni verður kosið um sameiningu víða um land. Málefni sveitarfélaganna eru á borði Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

135 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners