Heimskviður

33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps


Listen Later

Í þrítugasta og þriðja þætti Heimskviðna er fjallað um trúarbrögð á tímum heimsfaraldurs. Fjölmargar kirkjur og trúfélög víða um heim hafa óhlýðnast yfirvöldum og virt samkomubann að vettugi, sem getur haft alvarlegar afleiðingar. En svo getur virkt trúarlíf fólks líka haft jákvæð áhrif, bæði á andlega líðan, og auðvitað með því að hlýða yfirvöldum en um leið hjálpa öðrum. Guðmundur Björn Þorbjörnsson segir frá.
Þótt eigendur streymisveitna á borð við Netflix hafi það gott um þessar mundir og horfi á áskriftartölur hækka, sitja leikarar, leikstjórar, kvikmyndatökumenn, hljóðmenn heima í stofu og bíða eftir því að hjólin geti farið að snúast að nýju. Búið er að fresta fjölmörgum frumsýningum stórmynda á borð við nýju Batman-myndina og segja má að Hollywood skjálfi og nötri. En faraldurinn hefur þó ekki stöðvað göngu eins langlífasta sjónvarpsþáttar sögunnar, eins og Hallgrímur Indriðason segir okkur frá.
Á Spáni má færa rök fyrir því að fótbolti sé ígildi trúarbragða, guðirnir sem tilbeðnir eru ýmist undir merkjum Barcelona eða Real Madrid. Það hefur hins vegar ekki ríkt nein lognmolla í herbúðum Barcelona undanfarið, og ásakanir um spillingu og óstjórn farið nokkuð hátt. Pálmi Jónasson ætlar að segja okkur frá því og sögu liðsins, og nýtur þar liðsinnis Einars Arnar Jónssonar, íþróttafréttamanns.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

8 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

32 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners