Heimskviður

36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan


Listen Later

Í þrítugasta og sjötta þætti Heimskviða er fjallað um ásakanir á hendur Joe Biden, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Nýverið var hann ásakður um alvarlegt kynferðisofbeldi af konu sem var aðstoðarmaður hans snemma á tíunda áratugnum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Biden er ásakaður um óviðeigandi framkomu í garð kvenna, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er sakaður um kynferðisofbeldi. En þrátt fyrir þessar alvarlegu ásakanir, er lítið fjallað um málið í fjölmiðum vestra, þ.e. í þeim fjölmiðlum sem þykja hliðhollir demókrötum. Hið sama má segja um flokksmenn Demókrata. Getur verið að þörfin fyrir að koma Trump úr embætti í haust, sé meiri en krafan um að hlustað verði á konu sem telji sig hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi? Guðmundur Björn fjallar um málið og ræðir meðal annars við Silju Báru Ómarsdóttur.
- Heimurinn stendur á tímamótum vegna veirufaraldurs og ný heimsmynd er að verða til. Enginn veit ennþá hvernig hún verður en ekki er víst að það heimsskipulag sem reis úr rústum stríðshrjáðrar veraldar um miðja síðustu öld verði áfram við lýði. Vera Knútsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna, og Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, velta fyrir sér nýrri heimsmynd í viðtölum við Bergljótu Baldursdóttur.
- Hvað gerði Michael Jordan að stærstu stjörnu bandaríska körfuboltans og íþrótta um allan heim, og hvað hefði breyst ef Jordan hefði nýtt þau völd og áhrif sem í þessu fólust til að bæta heiminn, og styðja til dæmis við réttindabaráttu svartra af krafti, sama krafti og gerði hann að þeim langbesta á vellinum, í stað þess að sitja á hliðarlínunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um síðasta dans Jordans.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

8 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

32 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners