Heimskviður

38 | Afvopnunarsamningar, Bolsonaro og Inger Støjberg


Listen Later

Í þrítugasta og áttunda þætti Heimskviða er fjallað um afvopnunarsamninga, og þá staðreynd að Donald Trump dró nýverið Bandaríkin út úr samningi um svokallaða gagnkvæma loftelgi. Þetta er þriðji alþjóðasamningurinn sem Trump dregur Bandaríkin út úr á kjörtímabilinu. Hallgrímur Indriðason rýnir í hvaða afleiðingar úrsagnir frá þessum samningum geta haft á alþjóðasamfélagið, ásamt Alberti Jónssyni, fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi, og áður ráðgjafa utanríkisráðherra í öryggismálum.
Þá fjallar Guðmundur Björn um um hinn umdeilda forseta Brasilíu, Jair Bolsonaro, en hann hefur staðið í ströngu síðustu vikurnar, ekki aðeins vegna örar útbreiðslu Covid-19 þar í landi heldur einnig vegna rannsóknar á málum sona hans sem eru grunaðir um spillingu, en þeir eru báðir stjórnamálamenn. Vildi hann fá að sjá gögnin sem væru til rannsóknar hjá alríkislögreglunni en fékk þvert nei frá yfirmanni hennar. Hvað gerði hann þá? Jú, hann rak hann.
Loks fjallar Birta Björnsdóttir um Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála í Danmörku, sem tók umdeilda ákvörðun á sínum tíma um að heimilt væri að skilja að hjón hælisleitenda. Vitað mál var að slíkt væri ekki löglegt, en hún tók ákvörðunina samt. Og það hefur dregið dilk á eftir sér.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

66 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

148 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

35 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

38 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners