Spegillinn

4. nóvember 2021. Verður að herða sóttvarnaaðgerðir


Listen Later

Covid er komið á blússandi siglingu og óumflýjanlegt að herða aðgerðir, segir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Ríkisstjórnin fjallar um tillögur sóttvarnalæknis í fyrramálið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana.
Bretar hafa fyrstir þjóða heimilað notkun töflu sem draga á úr líkum þess að veikjast af COVID-19. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunar- og orkumálaráðherra segir ekki standa á íslenskum stjórnvöldum að framkvæma raunhæfar aðgerðir í loftslagsmálum en almenningur megi ekki sitja uppi með kostnaðinn. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir sagði frá.
Öll starfsemi Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ flyst annað um miðjan mánuðinn vegna myglu í skólahúsinu. Starfsemin verður á fimm stöðum út þetta skólaár. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá.
Mögulega verður ný ríkisstjórn kynnt eftir rúma viku segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur.
Bilun á samfélagsmiðlum, sem orsakaði að þeir lágu niðri í sex klukkustundir í síðasta mánuði, hafði almennt lítil áhrif á fólk - en þó mest á unga fólkið og minnst á kjósendur Miðflokksins. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá.
-----------
Alma Möller, landlæknir telur stefna í örvunarskammta af covid-bóluefni fyrir fleiri en elsta hópinn, faraldurinn sé í línulegum vexti og um 2% þeirra sem smitast þurfi að leggjast inn á sjúkrahús. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana.
Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri segir ekki nóg að framleiða meira af grænni orku, það þurfi líka að hugsa framleiðsluferlið upp á nýtt. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við hana.
Í Noregi er beðið átekta með að beita lokunum að nýju vegna vaxandi smits af völdum covid-19, stefnan er þar núna að láta smitið ganga og vona hið besta. Gísli Kristjánsson sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir.
Tæknmaður: Markús Hjaltason
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners