Heimskviður

80 | Rodrigo Duterte og blóðsýni Elizabeth Holmes


Listen Later

Í þessum þætti er fjallað um komandi baráttu um forsetastólinn á Filippseyjum og manninn sem ætlar að láta af embættinu eftir sex ára skrautlega valdatíð. Rodrigo Roa Duterte fæddist í mars árið 1945 í borginni Maasin á eyjunni Suður-Leite, einni af þeirri ríflega sjö þúsund og sex hundruð eyjum sem teljast til Filippseyja. Hann hefur verið forseti landsins í fimm ár af þeim sex sem kjörtímabil í landinu telja.
Dauðasveitirnar, DDS, eða Davao Death Squat, sem Duterte kom á laggirnar í landinu áttu upphaflega berjast gegn skæruliðasamtökum kommúnista í Davao-héraði, en með tíð og tíma, og með blessun Dutertes, fór athyglin að beinast að þeim sem hann taldi óæskileg, smákrimmar, fíkniefnasalar og götubörn.. Það átti að hreinsa upp Davao, og samkvæmt rannsókn Amnesty International tóku dauðasveitirnar í Davao yfir 300 manns af lífi á árunum 1998 til 2005. Á árunum 2005 til 2008 jukust þessar aftökur svo til muna, en yfir 700 voru myrt af dauðasveitunum þar í borg á þessum þremur árum. Þá hafa ýmis ummæli Dutertes vakið heimsathylgi og litla hrifningu, hann hefur meðal annars líkt sjálfum sér við Adolf Hitler. En nú segist Duterte ætla að láta af embætti, ein þeirra sem orðuð er við forsetaembættið er dóttir hans, Sara Duterte-Carpio. Svo gæti farið að mótframbjóðandi hennar væri maður að nafni Ferdinand Marcos yngri, faðir hans, Ferdinand Marcos eldri fór með völdin á Filippseyjum í um tuttugu ár áður en honum var steypt af stóli árið 1986 eftir stjórnartíð sem einkenndist af grimmd og spillingu.
Fyrir um sex árum var bandaríski tæknifrumkvöðullinn Elizabeth Holmes ein skærasta stjarnan meðal framafólks Kísildalsins. Fyrirtæki hennar, Theranos, var í þann mund að gjörbylta læknavísindum með nýrri tækni til að greina sjúkdóma með blóðsýni. Aðeins þyrfti lítinn blóðdropa úr fingri og lítið tæki til þess að greina allt frá kólestrólmagni til krabbameins á örskotsstundu og það heima í stofu. Margir af helstu og ríkustu fjárfestum Bandaríkjanna höfðu galopnað veski sín og lagt fram fleiri hundruð milljónir dollara í starfsemi Theranos en virði fyrirtækisins var á tímabili rúmlega 9 milljarða dollara virði. Bak við tjöldin var þó allt önnur saga. Tæknibylting Theranos reyndist vera svikamylla og nú sex árum frá hátindi sínum situr Elizabeth Holmes í réttarsal og á yfir höfði sér 20 ára fangelsisdóm fyrir fjársvik. En hvernig gat blekking Holmes gengið svona langt og hvers er að vænta úr réttarhöldunum? Jóhannes Ólafsson fjallar um málið.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um h
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

482 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

36 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners