Spegillinn

9. desember. Jólaboð. Holskefla krabbameina. Sofandi bóksalar.


Listen Later

Komiði sæl og velkomin að Speglinum. Arnhildur Hálfdánardóttir er umsjónarmaður.
Hæstiréttur segir eigendur HD verks ekki hafa gert nægjanlega grein fyrir hvers vegna þeir hafa selt stærstan hluta fasteigna sinna eftir brunann á Bræðraborgarstíg í fyrra. Dómurinn staðfesti í dag að kyrrsetja ætti eignir fyrirtækisins vegna skaðabótakröfu eftirlifenda og aðstandenda þeirra sem fórust.
Samþykki Umhverfisstofnun nýtt starfsleyfi lyftæknifyrirtækisins Ísteka verða fylfullar blóðmerar fjórfalt fleiri en nú.
Umboðsmaður Alþingis brýnir mennta- og barnamálaráðherra til að kanna hvort reglur um heimildir og verklag varðandi svokölluð einveruherbergi í grunnskólum séu nægilega skýrar.
Indverskir bændur eru formlega hættir eins árs mótmælum gegn umbótaáformum stjórnvalda sem þeir segja að hefðu komið stórfyrirtækjum til góða.
Lengri umfjallanir:
Jólaboð frá í fyrra er enn efst á baugi í breskum stjórnmálum. Í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í gær kom á óvart að forsætisráðherra baðst afsökunar á myndbandi samstarfsfólks síns. Tárvot afsögn aðalpersónunnar þar, fyrrum talsmanns forsætisráðherra, er engin sögulok. Óvæntar Covid reglur í Englandi áttu kannski að leiða athyglina frá jólaboðinu en tókst ekki. Í morgun eignaðist forsætisráðherra barn, að öllum líkindum sjöunda barn hans og fjármögnun á forsætisráðherraíbúðinni, enn eitt mallandi mál, tengt forsætisráðherra kom aftur í fréttaveltunni. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Hættan á því að þú eða ég fái krabbamein er minni en hún var og batalíkur þeirra sem greinast meiri. Á móti kemur hækkandi meðalaldur þjóðarinnar. Á næstu 15 árum er útlit fyrir að krabbameinstilvikum fjölgi um tæpan þriðjung. Forsvarsmenn Krabbameinsfélagsins segja löngu tímabært að stjórnvöld bregðist við og fjármagni stefnu til framtíðar. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags Íslands og Laufeyju Tryggvadóttur forstöðumann rannsókna- og skráningaseturs félagsins.
Þriðjungur af veltu á bókamarkaði skrifast á hljóðbækur. Stjórnarformaður Forlagsins telur að hefðbundnar bókaútgáfur hafi sofið á verðinum, líkt og plötuútgáfurnar gerðu margar þegar streymisveiturnar tóku völdin á tónlistarmarkaðnum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Halldór Guðmundsson, rithöfund og stjórnarformann Forlagsins.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners