Spegillinn

Aðgerðaáætlun, íþróttahatur og blóðugur sunnudagur


Listen Later

Spegillinn 28. janúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar dugar skammt, segir veitingamaður sem horfir fram á þriðju mánaðamótin í röð án greiðslu frá ríkinu. Hann segir að janúarmánuður sé sá versti í manna minnum.
Ísland hafnar í sjötta sæti á EM í handbolta eftir grátlegt tap gegn Norðmönnum í dag.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sakar vesturveldin um að hafa að engu áhyggjur Rússa af útþenslu Atlantshafsbandalagsins í Evrópu og stöðu Úkraínu.
Hvassviðri gengur yfir stóran hluta landsins í kvöld og nótt. Gul viðvörun tekur gildi þegar líður á kvöldið.
Lengri umfjöllun:
Afléttingaáætlun stjórnvalda var kynnt í dag. Hún er þríþrepa og verður fyrsta skrefið stigið á miðnætti. Þá mega 50 manns koma saman í stað 10, tveggja metra reglan verður að metersreglu og áhorfendur verða til að mynda leyfðir á íþróttaviðburðum. Opnunartími veitingastaða rýmkar til klukkan ellefu. Eftir þrjár vikur er svo stefnt að því að rýmka almennar samkomutakmarkanir í 200 manns og aflétta öllum takmörkunum um miðjan mars.
Líneik Anna Sævarsdóttir formaður velferðarnefndar og þingmaður Framsóknarflokksins og Oddný G. Harðardóttir fyrsti varaformaður velferðarnefndar og þingmaður Samfylkingarinnar ræddu við Bjarna Rúnarsson um afléttingaáætlunina.
Íþróttahatur er bakhliðin á hverjum verðlaunapeningi. Stundum vilja menn láta þetta hatur ganga út yfir bæði fortíðina og allar minjar um hana. Þannig er Christian den tiende Danakonungur nú hataðasti maður á Íslandi. En hvernig fer svona íþróttahatur í sálina á frændum okkar Norðmönnum? Þeir sitja uppi með sænskan kóng á hesti fyrir framan konungshöllina sína og kenna frægustu götu lands síns við þennan sama útlenda kóng. Er ekki mál að linni? Gísli Kristjánsson fjallar um málið.
Á sunnudag eru 50 ár liðin frá því að breski herinn skaut 13 kaþólikka til bana og særða aðra 13 skotsárum í mótmælagöngu í borginni Derry á Norður Írlandi. Þessi atburður markaði þáttaskil í ófriðnum a Norður Írlandi - The Troubles - Átökin hörðnuðu og ofbeldið jóxt um allan helming allt þar til friðarsamkomulag var undirritað í apríl 1998, 26 árum síðar. Gunnar Hansson dagskrárgerðarmaður á RÚV og Sólveig Jónsdóttir rithöfundur og stjórnmálafræðingur heimsóttu Derry fyrr í mánuðinum og ræddu við fólk sem varð vitni að þessum atburði - blóðuga sunnudeginum. Afrakstur þessarar ferðar má heyra í tveimur klukkustundar löngum útvarpsþáttum á rás eitt. Kristján Sigurjónsson ræddi við Gunnar Hansson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

135 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners