Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Fjórir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum sérsveitar ríkislögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu í dag. Embættið segir að hættuástandi hafi verið afstýrt. Tveir mannanna eru sagðir hafa verið vopnaðir og hættulegir.
Ferðamálaráðherra hefur sett af stað vinnu til þess að stuðla að auknu öryggi ferðamanna hér á landi. Þetta gerir ráðherra í kjölfar frásagnar fjölskyldu sem lenti í bílslysi við Núpsvötn 2018 og birtist í Kveik í gær. Við heyrðum í Lilju Dögg Alfreðsdóttur í viðtali við Rúnar Snæ Reynisson.
Fleiri greinast með krabbamein vegna reykinga og offitu á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Krabbameinsfélagsins. Áhrif vatnsbólsmengunar, af völdum hersetuliðs í Keflavík á heilsufar Suðurnesjabúa, voru mun minni en óttast var. Oddur Þórðarson sagði frá.
Bandaríkjaforseti sakar Rússlandsstjórn um gróft brot á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann gagnrýnir yfirvofandi atkvæðagreiðslur um að innlima fjögur úkraínsk héruð í Rússlandi. Þórgnýr Einar Albertsson tók saman.
Þrátt fyrir að endurupptökudómstóll hafi synjað beiðni Erlu Bolladóttur vegna sakfellingar í Guðmundar og Geirfinnsmálinu ætlar hún að berjast áfram. Hún segist enga ósk eiga heitari en að réttlætið nái fram að ganga. Rætt var við Erlu Bolladóttur og Sigrúnu Gísladóttur. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
----------------------------------------------------
Rússneski herinn er laskaður eftir stríðsreksturinn í Úkraínu, það hefur gengið á vopnabúrið og mannfallið hefur verið töluvert. Rússnesk stjórnvöld segja að um 6 þúsund hermenn þeirra hafi dáið í Úkraínu í ár en aðrir, þar á meðal bandarísk varnarmálayfirvöld, telja að sú tala gæti verið næstum þrisvar sinnum hærri. Kvaðning 300 þúsund manna varaliðs í Rússlandi endurspeglar vonda stöðu hersins að mati Alberts Jónssonar, fyrrverandi sendiherra og sérfræðings í öryggis og varnarmálum, en hún á líklega ekki eftir að breyta miklu um gang stríðsins. Því fer fjarri að sjái fyrir endann á bardögum en þó telur Albert líklegt að úr þeim dragi þegar haustar og ekki meiri hætta á að kjarnavopnum verði beitt en áður. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Albert Jónsson.
Enn er unnið samkvæmt þeirri áætlun að þjóðarhöll verði risin í Laugardal árið 2025, segir Gunnar Einarsson, formaður nýskipaðrar framkvæmdanefndar um málið. Hann trúir ekki öðru en að ríkið standi við fyrri áætlanir, þótt innviðaráðherra hafi gefið í skyn að verkefninu seinki. Alexander Kristjánsson tók saman talaði við Gunnar