Spegillinn

Aflamark þorsks minnkar um 13%


Listen Later

Landlæknir segir nokkra þætti hafa valdið því að kórónuveirusmit breiddist hratt út á Landakoti í haust, meðal annars hólfaskipting, húsnæði og ekki næg fræðsla og þekking starfsmanna á smitvörnum.
Sjávarútvegsráðherra segir niðurstöðu veiðiráðgjafar Hafrannsóknastofnunar vonbrigði og högg fyrir íslenskan sjávarútveg. Lagt er til að 13 prósent minna verði veitt af þorski á næsta fiskveiðiári.
Gríðarlegar öryggisráðstafanir eru í Genf í Sviss þar sem forsetar Rússlands og Bandaríkjanna hittast á morgun. Fjögur þúsund hermenn, lögreglumenn og öryggissveitarmenn eiga að tryggja öryggi leiðtoganna.
Almannavarnir hafa ekki sótt um framkvæmdaleyfi til Grindavíkurbæjar fyrir byggingu varnargarða og leiðigarða við gosstöðvarnar. Prófessor í umhverfisrétti segir að samkvæmt lögum þurfi framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
-----------------------------------------------------------------------------------
Fjarðabeit gæti orðið ný tegund fiskeldis á Íslandi. Hún er fólgin í því að nota ljós í neðansjávarbúrum til að laða að ljósátu sem fæðir þorskinn í búrunum. Rannsóknir standa yfir í Steingrímsfirði. Sjávarlíffræðingur segir að árangurinn lofi góðu og hann hafi komið þægilega á óvart. Þá eru hugmyndir um að nota sömu tækni til að tæla þorskseiði inn í búr og ala þau þar. Fyrirtækið Ocean EcoFarm ehf. stendur að þessum rannsóknum. Stærstu hluthafar eru norska fyrirtækið Brage inovition og Ísfélag Vestmannaeyja. Arnar Páll Hauksson talaði við Jón Örn Pálsson.
Skömmu eftir morðið á einkaspæjaranum Daniel Morgan 1987 fór fjölskylda hans að hafa áhyggjur af morðrannsókninni. Málið er enn óupplýst. Eftir átta ára rannsókn óháðrar rannsóknarnefndar var birt skýrsla um málið í dag. Niðurstaðan er að kerfislæg spilling í lögreglunni hafi hindrað framgang réttvísinnar og meðal annars birst í tengslum lögreglunnar við fjölmiðlaveldi Rupert Murdochs. Eitt eru allir sammála um: áratuga barátta bróður Morgans hefur haldið málinu vakandi. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners