Spegillinn

Afsögn Liz Truss og breytingar á stjórnarskrá


Listen Later

Liz Truss forsætisráðherra Bretlands fékk ekki stuðning þingflokks íhaldsmanna og valdi sér fjármálaráðherra sem hunsaði hennar stefnu. Fall hennar má rekja til þess að mati Hjartar Guðmundssonar alþjóðastjórnmálafræðings, Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hann.
Eitthvað verður að gera til að sporna við banaslysum á Kirkjufelli segir landeigandi, en ekki sé auðvelt að banna fólki að fara á fjallið. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Jóhannes Þorvarðarson, landeigenda og Bjarna Sigurbjörnsson bæjarfulltrúa í Grundarfirði.
Mörgum skipulögðum brotahópum hér á landi er stýrt af Íslendingum sem eru búsettir erlendis. Þrýstingur við landamærin hefur aukist, að mati greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Pétur Magnússon sagði frá.
Allir sakborningarnir í saltdreifaramálinu svokallaða voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tveir fengu þyngsta dóm sem lög leyfa. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Brestir eru þegar komnir í samstöðu nýrrar hægri stjórnar sem enn hefur ekki tekið við völdum á Ítalíu. Ítalskir miðlar greindu í dag frá leynilegum upptökum þar sem Silvo Berlusconi, lykilmaður innan stjórnarinnar, lofsamar Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexander Kristjánsson sagði frá.
------------
Snarpir pólitískir vindar hafa blásið í Bretlandi síðustu vikur og mánuði. Segja má að þeir hafi náð styrk fellibyls í dag þegar Liz Truss forsætisráðherra tilkynnti afsögn sína í beinni sjónvarpsútsendingu í hádeginu. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í .
Til að rjúfa pattstöðu í stjórnarskrármálinu gæti þurft að taka skref til baka og hugsa um hvernig eigi að breyta stjórnarskrá í stað þess að festast í deilum um hvað eigi að standa í henni að mati Ragnars Hjálmarssonar doktors í stjórnarháttum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Fyrir liggja áætlanir gegn einelti en þrátt fyrir það gengur illa að losna við þetta mein úr skólum og tómstundum barna. Í gær sagði ung stúlka sögu sína í fréttum, en einelti gegn henni gekk svo langt að hún reyndi að svipta sig lífi. Og dæmin eru mýmörg. Þorlákur Helgi Helgason er framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar, sem notuð er innan skóla til að vinna gegn einelti Bjarni Rúnarsson talaði við hann.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

21 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

37 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners