Spegillinn

Alvarlegt rútuslys


Listen Later

Minnst 4 slösuðust alvarlega í rútuslysi sem varð á Suðurlandsvegi í Öræfum í dag. Aðrir eru minna slasaðir. 32 auk ökumanns voru í rútunni sem valt út af veginum og lagðist á hliðina. Þyrla Landhelgisgæslunnar og dönsk herþyrla hafa flutt slasaða og einnig flugvél Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugvél frá Akureyri sem lentu í Skaftafelli. Landspítalinn hefur verið settur á gult viðbúnaðarstig vegna slyssins.
Vegna loftslagsbreytinga má búast við fleiri tjónum af völdum vatnsflóða í nánustu framtíð. Byggingaverkfræðingur hjá Náttúruhamfaratryggingu ríkisins segir mikilvægt að brugðist verði við því.
Ríkið þarf að stytta vinnuviku þeirra hjúkrunarfræðinga sem vinna vaktavinnu og bæta laun þeirra til að gera störfin meira aðlaðandi, segir sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Kjaraviðræður félagsins og ríkisins eru hafnar.
Leiðarahöfundur norska dagblaðsins Fædrelandsvennen segir að Marta Lovísa prinsessa eigi að afsala sér titlinum vegna þess að hún notfæri sér hann í viðskiptatilgangi.
Theresa May lætur að líkindum af embætti forsætisráðherra Bretlands í sumar. Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra, kveðst reiðubúinn að taka við embættinu.
Loftslagsráð stóð í dag fyrir fundi sem bar yfirskriftina. Erum við tilbúin? Aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum. Ég veit ekki hvort spurningunni var svarað en ýmsir fluttu erindi um stöðuna. Arnar Páll Hauksson talar við Hrönn Hrafnsdóttur og Fjólu Jóhannesdóttur.
Hjúkrunarfræðingar krefjast þess að laun þeirra verði bætt og hugað verði að vinnutíma og starfsumhverfi til að gera starfið meira aðlaðandi. Þetta segir Gunnar Helgason, sviðstjóri kjara- og réttindasviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ef bæta eigi ástandið í heilbrigðiskerfinu verði að bæta kaup og kjör hjúkrunarfræðinga. Bergljót Baldursdóttir talaði við Gunnar Helgason.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners