Spegillinn

Árás á kjarnorkuver fordæmd og Barnaþing


Listen Later

Fulltrúar Bandaríkjanna, Frakklands og annarra ríkja fordæmdu árás Rússa á stærsta kjarnorkuver Evrópu á neyðarfundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Sendiráð Bandaríkjanna í Kænugarði hefur sakað Rússa um stríðsglæpi vegna árásarinnar. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Atlantshafsbandalagið ætlar ekki að verða við beiðni Úkraínustjórnar um loftferðabann yfir Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir tóninn misjafnan í kollegum sínum í NATO, nágrannaríki Rússlands hafi réttmætar áhyggjur af fyrirætlunum Rússlandsforseta. Ólöf Ragnarsdóttir talaði við hana.
Rólegra er yfir Kýiv núna en fyrstu daga stríðsins þrátt fyrir að bardagar hafi harðnað annars staðar í landinu segir Óskar Hallgrímsson sem býr í miðborg Kyiv. Brynjólfur Þór Guðmundsson talaði við hann.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, aðvaraði í dag ríki sem hafa beitt Rússland refsiaðgerðum vegna innrásarinnar. Að sögn Mikhails Noskovs. sendiherra Rússlands á Íslandi verður refsiaðgerðunum svarað. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við hann.
Tveir tíu ára strákar á Akureyri hafa undanfarna daga teiknað myndir og selt bæjarbúum til styrktar börnum í Úkraínu. Óðinn Svan Óðinsson tók saman. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við Kjartan Gest Guðmundsson og Helga Hrafn Magnússon.
-------------
Rússnesk yfirvöld hafa hert mjög ritskoðun og sá sem flytur það sem yfirvöld skilgreina sem ?falskar upplýsingar? á yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisdóm. Öllum óháðum útvarps- og sjónvarpsstöðvum sem og erlendum fjölmiðlum hefur verið lokað. Bogi Ágústsson sagði frá.
Oft er haft á orði að hlusta þurfi betur á það sem börn hafa að segja um mál sem snerta þau og í dag fékk á annað hundrað barna tækifæri til að láta í sér heyra á Barnaþingi. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Hrafnhildi Eddu Ingvarsdóttur og Söru Katrínu Vignisdóttur, Rúnar Frostason og Vilhjálm Hauksson.
Helsti flokkur andstæðinga Atlantshafsbandalasins ? NATO ? í Noregi er að guggnað á andstöðunni. Þetta er Sósíalíski vinstriflokkurinn, systurflokkur gamla Alþýðubandalagsins og afkomenda þess. Gísli Kristjánsson segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason: Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

475 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners