Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Árið er 1994
    Björk og Smekkleysa notfæra sér nýjustu tækni og koma sér fyrir á internetinu. Hin 16 ára gamla Emilíana Torrini slær í gegn í Söngkeppni framhaldsskólanna og syngur sig á topp vinsældalista landsins með hljómsveitinni Spoon. Unun veitir Ást í viðlögum og flytur Lög unga fólksins.
    Maus malar Músíktilraunir og Sigur Rós fæðist í Fellahelli. Birthmark gefur út óskrifaðar skáldsögur en listræn þreyta segir til sín hjá Nýdanskri. Páll Óskar gerist Milljónamæringur en þjóðin heldur að hann sé kominn í Bogomil Font. Hárið fer á svið í Íslensku óperunni og slær öll aðsóknarmet á meðan Jet Black Joe fer í fjórða sæti á Filippseyjum. Dos Pilas ferðast á eigin vængjum og Vinir vors og blóma eru frjálsir en Spinal Tap Íslands heldur lokatónleika í Tunglinu á meðan Björk er valin besta erlenda söngkonan og besti nýliðinn á Brit Awards hátíðinni.
    Árið er 1994
    Tólfti þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 laugardaginn 20. júlí og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 21. júlí kl. 22.05. Meðal viðmælenda í tólfta þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1994 verður tekið fyrir, eru Gunnar Lárus Hjálmarsson, Eyþór Arnalds, Þór Eldon, Sjón, Ingólfur Magnússon, Emilíana Torrini, Jón Ólafsson, Björk Guðmundsdóttir, Eggert Gíslason, Elíza Newman, Steingrímur Guðmundsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Baltasar Kormákur, Georg Holm, Gunnar Bjarni Ragnarsson, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Jón Símonarson, Ingimundur Elli Þorkelsson og Óttar Proppé.
    0 min
  • Árið er 1993
    Ellefti þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 laugardaginn 13. júlí og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 14. júlí kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í ellefta þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1993 verður tekið fyrir, eru Björk Guðmundsdóttir, Steingrímur Guðmundsson, Sigtryggur Baldursson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Guðmundur Jónsson, Eyþór Arnalds, Andrea Gylfadóttir, Páll Rósinkranz, Pálmi Sigurhjartarson, Björgvin Ploder, Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, Jakob Smári Magnússon, Helgi Björnsson, Orri Harðarson, Rafn Jónsson, Óttar Proppé, Jón Ólafsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Stefán Hjörleifsson, Bubbi Morthens, Stefán Hilmarsson, Davíð Magnússon, Máni Svavarsson og Gunnar Bjarni Ragnarsson.
    0 min
  • Árið er 1992
    Kolrassa rústar dauðarokkinu, Jet Black Joe rignir inn í íslenska tónlistarsumarið og KK hittir Vegbúann á Beinni leið á Þjóðvegi 66.
    Sálin fær Þessi þungu högg beint í andlitið og springur í loft upp.Ham breytist í Helíu í Sódómu Reykjavík og málar Partýbæinn rauðan á meðan Down & Out sá Ljótum hálfvitafræjum í höfuðborginni.
    Bubbi fer til Kúbu og Deep Jimi & The Zep Creams fara í útrás til Norður Ameríku en Nýdanskir Horfa til himins. Máni Svavars Veggfóðrar og finnst það vera Pís of keik. Megas yrkir um Gamansemi Guðanna en Sykurmolarnir túra með U2 og stimpla sig út.
    Árið er 1992.
    Tíundi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 í dag, laugardaginn 6. júlí og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 7. júlí kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í tíunda þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1992 verður tekið fyrir, eru Bubbi Morthens, Stefán Hilmarsson, Óskar Jónasson, Máni Svavarsson, Gunnar Bjarni Ragnarsson, Eyþór Arnalds, Elíza Newman, Sigrún Eiríksdóttir, Sigurður Eyberg, Kristján Kristjánsson, Helgi Björnsson, Jakob Smári Magnússon, Þór Eldon, Einar Örn Benediktsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Jón Ólafsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Árið er 1991
    Níundi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Meðal viðmælenda í níunda þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1991 verður tekið fyrir, eru KK, Óttar Felix, Rúni Júl, Gunnar Jökull, Geiri Sæm, Stebbi Hilmars, Eyfi, Jón Ólafs, Egill Ólafs, Jakob Frímann, Eyþór Arnalds, Þorvaldur Bjarni, Gísli Sigmunds og Einar Örn.
    0 min
  • Árið er 1990
    Áttundi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 í dag, laugardaginn 22. júní og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 23. júní kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í áttunda þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1990 verður tekið fyrir, eru Björk Guðmundsdóttir, Sigríður Beinteinsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Egill Ólafsson,Daníel Ágúst Haraldsson, Sigtryggur Baldursson, Máni Svavarsson, Jón Ólafsson, Helgi Björnsson, Jakob Smári Magnússon, Björgvin Halldórsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Árið er 1989
    Sjöundi þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 í dag, laugardaginn 15. júní og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 16. júní kl. 22.05.
    Boðið verður upp á tóndæmi með Risaeðlunni, Daníel Ágústi, Stjórninni, Póker, Valgeiri Guðjóns, Ríó tríói, Bítlavinafélaginu, Bubba, Eiríki Hauks, Villingunum, Nýdönsk,
    Geirmundi, Bróður Darwins, Bootlegs, Síðan skein sól, Hilmari Oddssyni, Todmobile, HLH, Grinders, Bjartmari, Langa Sela og Skuggunum, Pandóru, Rúnari Þór, Sálinni hans Jóns míns,
    Rokklingunum, Stuðmönnum, Sykurmolunum, Ham, Mezzoforte, Sverri Stormsker og fjölmörgum öðrum flytjendum sem komu við sögu hér á landi 1989.
    0 min
  • Árið er 1988
    Sjötti þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 í dag, laugardaginn 8. júní og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 9. júní kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í fimmta þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1988 verður tekið fyrir, eru Björk, Jón Ólafs, Gummi Jóns, Eiki Hauks, Bubbi, Megas, Helgi Björns, Jakob Smári, Magga Örnólfs, Sjón, Dr. Gunni, Jakob Frímann, Langi Seli, Jón skuggi og Kommi.
    Boðið verður upp á tóndæmi með Sykurmolunum, Bræðrabandalaginu, Sverri Stormsker, Eyjólfi Kristjánssyni, Sálinni hans Jóns míns, Nýdönsk, Todmobile, Bítlavinafélaginu, Jójó, Artch, Bubba Morthens, Bjarna Arasyni, Gildrunni, Gylfa Ægissyni, Stuðkompaníinu, Greifunum, Acid Juice, Megasi, Ham, Mosa frænda, Rúnari Þór, Síðan skein sól, Skriðjöklum, Johnny Triumph, Svarthvítum draumi, Strax, Valgeiri Guðjónssyni, Langa Sela og Skuggunum, Mannakornum, Kamarorghestum, E-X, Geira Sæm og Hunangstuglinu, Bjartmari Guðlaugssyni, Kátum piltum og fjölmörgum öðrum flytjendum sem komu við sögu hér á landi 1988.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Árið er 1987
    Fimmti þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 í dag, laugardaginn 1. júní og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 2. júní kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í fimmta þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1987 verður tekið fyrir, eru Ásgeir Sæmundsson, Bubbi Morthens, Bjartmar Guðlaugsson, Kristján Kristjánsson, Einar Örn Benediktsson, Rafn Jónsson, Magnús Þór Jónsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Björk Guðmundsdóttir og Helgi Björnsson.
    Boðið verður upp á tóndæmi með Geira Sæm, Höllu Margréti, Model, Bubba, MX 21, Varnöglum, Bjartmari, KK Son, Gunna Þórðar, Agli Ólafs, Stuðkompaníinu, Bítlavinafélaginu, Skriðjöklum, Gildrunni, Sykurmolunum, Tíbrá, Stuðmönnum, Bjarna Ara, Grafík, Herði Torf, Bergþóru Árna, Megasi, Nýdönsk, Sverri Stormsker, Stebba Hilmars, Rikshaw, Strax, S.H. Draumi, Bleiku böstunum, Sogblettum, Greifunum, Sú Ellen, Rauðum flötum, Björk og Tríó Guðmundar Ingólfs, Síðan skein sól og fjölmörgum öðrum flytjendum sem komu við sögu hér á landi 1987.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Árið er 1986
    Fjórði þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 laugardaginn 25. maí og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 26. maí kl. 22.05.
    Meðal viðmælenda í fjórða þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1986 verður tekið fyrir, eru Erla Ragnarsdóttir, Megas, Bubbi Morthens, Maggi Eiríks, Jón Ólafs, Jakob Frímann, Egill Ólafs, Eyfi, Stebbi Hilmars, Bjartmar, Raggi Sót, Þór Eldon, Einar Örn og Björgvin Halldórs.
    Boðið verður upp á tóndæmi með Dúkkulísunum, Megasi, Bubba, Greifunum, Icy, Eddu Heiðrúnu Bachman, Diddú, Bítlavinafélaginu, Bjarna Tryggva, Strax, Pálma Gunnarssyni, Gunnari Þórðarsyni, Agli Ólafssyni, Eyjólfi Kristjánssyni, Mezzoforte, Sniglabandinu, Bjartmari og Pétri Kristjáns, Rauðum flötum, Bjarna Hafþóri Helgasyni, Skriðjöklum, Sykurmolunum, Sverri Stormsker, Björgvini Halldórssyni, Geirmundi Valtýssyni og fjölmörgum öðrum flytjendum sem komu við sögu hér á landi 1986.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni.
    Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min
  • Árið er 1985
    Þriðji þátturinn í útvarpsþáttaröðinni Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Meðal viðmælenda í þriðja þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1985 verður tekið fyrir, eru Richard Scobie, Kormákur Geirharðsson, Herbert Guðmundsson, Gunnar Þórðarson, Ragnar Gunnarsson, Eiríkur Hauksson, Guðlaugur Kristinn Óttarsson, Pjetur Stefánsson, Helgi Björnsson, Rúnar Þórisson, Eyþór Gunnarsson, Tómas Tómasson og Bubbi Morthens.
    Boðið verður upp á tóndæmi með Mannakornum, Herbert Guðmundssyni, Grafík, Rikshaw, Gypsy, Drýsli, Skriðjöklum, Cosa Nostra, Fásinnu, Bjartmari Guðlaugssyni, Pétri Kristjánssyni, Smartbandinu, Bubba Morthens, Stuðmönnum, Gunnari Þórðarsyni, Agli Ólafssyni, Eiríki Haukssyni, Centaur, Oxzmá, Sverri Stormsker, Possibillies, Mezzoforte, SH Draumi, MegaKukli, CTV, Gísla Helgasyni, Hilmari Oddssyni, Diddú, Valgeiri Guðjónssyni, Rúnari Þór Péturssyni, Ladda, PS & Co, Magnúsi Þór Sigmundssyni, Leifi Haukssyni, Eddu Heiðrúnu Bachman og fjölmörgum öðrum flytjendum sem komu við sögu hér á landi 1984.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Þar eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu, auk þess sem drepið er á helstu dægurmálum samtímans hverju sinni. Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
    0 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners